Síða 1 af 1

Tveggja vikna S4 til sölu eða skipti á iPhone 5

Sent: Mán 12. Maí 2014 20:45
af PCMAC
Ég er með tveggja vikna hvítan Samsung S4 til sölu.

Eðli málsins samkvæmt er tækið eins og nýtt enda einungis tveggja vikna gamall. Nótan fylgir.

Kemur með 2x S-Flip cover hulstrum (hvítu og bláu) og í upprunalegum umbúðum.

Selst á 65.000 (kostar 90.000 í Símanum) eða skiptist á sléttu á iPhone 5. Einnig skoða ég skipti á iPhone 5s þar sem ég myndi borga eitthvað á milli.

Ástæða sölu: Ég er komst að því að ég er of mikill Apple maður til að geta átt Android síma. ;)

Áhugasamir sendið skilaboð eða hafið samband í 8689295.

Afsakið slæmar myndir.

Mynd
Mynd
Mynd
Mynd

Re: Tveggja vikna S4 til sölu eða skipti á iPhone 5

Sent: Mán 12. Maí 2014 21:16
af Stuffz
Hvar keypturðu hann?


Það er gott að hafa skýrar myndir af svona vörum á spjallinu, útaf neðangreindum ástæðum.





http://www.androidauthority.com/beware- ... s4-239366/

Re: Tveggja vikna S4 til sölu eða skipti á iPhone 5

Sent: Mán 12. Maí 2014 23:02
af Oak
Greinilega keyptur hjá emobi.is og þar kostar hann 75 þús.

Re: Tveggja vikna S4 til sölu eða skipti á iPhone 5

Sent: Mán 12. Maí 2014 23:23
af PCMAC
Keyptur hjá Emobi á 75 fyrir tæpum tveimur vikum síðan og S-Flip coverin tvö voru keypt í Símabæ á 4.990 per stk sama dag. Annað coverið ónotað. Eyrnarplöggarnir óuppteknir frá kaupdegi.

Svo samanlegt er þetta 20 þúsund króna afföll á tveimur vikum. Kalla það ágætan afslátt af ekki dýrari grip en þessum.

Stuffz, mikið rétt. Góðar myndir skipta öllu máli í svona þráðum. En ég hafði því miður úr litlu að moða þar sem ég hafði einungis Nokia asha 301 til að taka myndir með ofangreindum útkomum. :)

En eins og ég segi, nótan fylgir með svo það fer ekkert á milli mála að tækið er ekta.

Ef einhver raunverulegur áhugi kemur upp þá skal ég henda mér í það að redda mér betri myndavél/síma til að geta sent á viðkomandi í alvöru gæðum. Þangað til megið þið trúa mér, tækið er eins og nýtt þar sem faktíst séð þá er það nýtt.

http://simabaer.is/index.php?option=com ... &Itemid=26
http://simabaer.is/index.php?option=com ... &Itemid=26

Re: Tveggja vikna S4 til sölu eða skipti á iPhone 5

Sent: Fim 15. Maí 2014 19:39
af PCMAC
Seldur!