Síða 1 af 2

Skriðdreki til sölu

Sent: Mán 07. Apr 2014 18:59
af gullig
Ég hef til sölu M4 Sherman skriðdreka. Skriðdrekinn var notaður af Bandaríkjamönnum í Túnis frá 1943 - 1944. Síðan þá hefur hann ekki verið notaður í hernaðarlegum tilgangi. Skriðdrekinn var til sýnis á hersafni í Norður Dakóta frá 1965 til 1982. Hann var keyptur til Íslands árið 1982 og hefur verið í einkaeigu síðan.
Mynd
Mynd af skriðdreka af sömu tegund.

Skriðdrekinn er í góðu ásigkomulagi, það er þó eitthvað að í hægra belti (sennilega er ein lega farin). Það er hægt að keyra skriðdrekann þrátt fyrir þetta. Drekinn er ekki götuskráður og erfitt gæti reynst að fá hann götuskráðan. Hann hefur að mestu staðið óhreyfður í geymslu frá 82.

Það fylgir eitt auka belti með og kennsla á drekann. Enginn skotfæri fylgja með og eru skotfærin ólögleg á Íslandi. Skriðdrekinn er í geymslu í Hafnarfirði. Það er hægt að koma að skoða hann á virkum dögum frá 8 - 16, eða eftir samkomulagi. Hringið bara á undan.

Re: Skriðdreki til sölu

Sent: Mán 07. Apr 2014 19:03
af Yawnk
Jahá, er þessi góður innanbæjarsnattari? hvað eyðir hann á hundraði?

Re: Skriðdreki til sölu

Sent: Mán 07. Apr 2014 19:05
af gullig
Hægt er að koma og skoða skriðdrekann frá 8-16 á virkum dögum, eða eftir samkomulagi. Hafið bara samband fyrst.

Re: Skriðdreki til sölu

Sent: Mán 07. Apr 2014 19:08
af hrafn1995
Hef mögulega áhuga, hvað væri sanngjarnt verð fyrir allan pakkann

Re: Skriðdreki til sölu

Sent: Mán 07. Apr 2014 19:08
af aggibeip
Smá forvitni..

Hver er verðmiðinn á svona tæki ? :fly

Re: Skriðdreki til sölu

Sent: Mán 07. Apr 2014 19:11
af gullig
Ég veit ekki hversu mikils virði hann er, þess vegna óska ég eftir tilboðum. Skriðdrekinn er hluti af dánarbúi og hann hafði mikið tilfinningalegt gildi.

Mér þykir sennilegt að hann fari nokkuð ódýrt. Við værum helst til í að selja hann á safn og það hann gæti farið á mjög lítinn pening ef einhvert safn hefur áhuga á drekanum.

Re: Skriðdreki til sölu

Sent: Mán 07. Apr 2014 19:15
af tdog
Ertu til í að láta inn myndir af skriðdrekanum?

Re: Skriðdreki til sölu

Sent: Mán 07. Apr 2014 19:16
af MrSparklez
Reyklaus ?

Re: Skriðdreki til sölu

Sent: Mán 07. Apr 2014 19:39
af gullig
Ég þarf að skjótast niðureftir á morgun, ég get tekip myndir þá og sett þær inn á morgun. Drekinn er annars að öllu leiti sambærilegur þessum á myndinni fyrir utan það að það eru ekki málaðar stjörnur á hann og það er ekki vélbyssa á toppnum.

Re: Skriðdreki til sölu

Sent: Mán 07. Apr 2014 19:50
af vesley
Færð held ég töluvert meiri pening ef þú selur hann úr landi..

Miðað við stutt google eru þeir alveg frá 100-400 þús USD

Re: Skriðdreki til sölu

Sent: Mán 07. Apr 2014 20:21
af lukkuláki
gullig skrifaði:...og það er ekki vélbyssa á toppnum.


Fokk! þar fór það.
Var farinn að sjá fyrir mér ákveðið notagildi í þessu :evillaugh

Re: Skriðdreki til sölu

Sent: Mán 07. Apr 2014 20:25
af GuðjónR
Það hefur margt sérstakt dottið í sölu hérna á Vaktinni, en þetta toppar allt held ég :)

Re: Skriðdreki til sölu

Sent: Mán 07. Apr 2014 20:30
af Stuffz
gullig skrifaði:Ég þarf að skjótast niðureftir á morgun, ég get tekip myndir þá og sett þær inn á morgun. Drekinn er annars að öllu leiti sambærilegur þessum á myndinni fyrir utan það að það eru ekki málaðar stjörnur á hann og það er ekki vélbyssa á toppnum.


er hlaupið langt og mjótt á honum eins og á myndinni eða styttra og feitara?

Re: Skriðdreki til sölu

Sent: Mán 07. Apr 2014 20:44
af Maakai
MrSparklez skrifaði:Reyklaus ?


fylgir varadekk líka með?

Re: Skriðdreki til sölu

Sent: Mán 07. Apr 2014 20:45
af Klaufi
Verðhugmynd?

Re: Skriðdreki til sölu

Sent: Mán 07. Apr 2014 20:53
af Garri
Væri þetta fyrir viku.. þá hefði ég stimplað þetta strax sem apríl gabb!

Annars, þá hefði mátt setja auglýsinguna öðruvísi upp.

Dæmi.
Eru nágrannarnir eitthvað leiðinlegir við þig?

Ef svo er, ekki gefast upp. Lausnin er innan seilingar. Ég er með tækið fyrir þig.

Tada..

Mynd

Re: Skriðdreki til sölu

Sent: Mán 07. Apr 2014 20:54
af gullig
Hlaupið er langt og mjótt, mig minnir að það hafi staðið 70 eða 75mm í bæklingnum sem fylgir með skriðdrekanum. Við viljum helst fá a.m.k. 4 milljónir fyrir hann.

Re: Skriðdreki til sölu

Sent: Mán 07. Apr 2014 22:07
af capteinninn
Væri í lagi að ég kæmi að skoða hann þegar þú ert við?, hef ekki efni á að kaupa hann en mér finnst þetta mjög áhugavert og væri til í að sjá skriðdreka með eigin augum.

Annars skal ég láta einn vita af þessu sem hefur áhuga á alls konar hlutum en ég lofa engu um áhuga hjá honum á drekanum.

Re: Skriðdreki til sölu

Sent: Mán 07. Apr 2014 22:25
af IL2
https://www.facebook.com/hinrik.steinsson

Búinn að hafa samband við þennan?

Re: Skriðdreki til sölu

Sent: Mán 07. Apr 2014 22:33
af AsgeirM81
gæti verið að Víkingasveitinn myndi hafa áhuga, um að gera að hafa samband við þá, ættir þá að geta fengið eitthvað meira fyrir, sem og við gætum mögulega séð hann í Action.

Re: Skriðdreki til sölu

Sent: Mán 07. Apr 2014 22:36
af Frikkasoft
Skriðdreki... ég hélt að þetta væri einhver mass turn vél, kom skemmtilega á óvart

Re: Skriðdreki til sölu

Sent: Mán 07. Apr 2014 23:37
af gullig
Ég þakka ábendingarnar. Ég veit ekki hvort Víkingasveitin hafi áhuga á að nota 70 ára gamalt stríðstæki, mundi kannski virka á mótmælendur á Austurvelli :) En endilega ef þið vitið um áhugasama kaupendur, endilega látið þá vita. Það ætla 2 að koma og skoða hann á morgun.

Ég ræddi við bifvélavirkja og lögfræðing í kvöld og það er sennilega lítið mál að fá leyfi til að keyra hann ef steypt er fyrir byssuhlaupið.

Re: Skriðdreki til sölu

Sent: Mán 07. Apr 2014 23:55
af ManiO
gullig skrifaði:Ég þakka ábendingarnar. Ég veit ekki hvort Víkingasveitin hafi áhuga á að nota 70 ára gamalt stríðstæki, mundi kannski virka á mótmælendur á Austurvelli :) En endilega ef þið vitið um áhugasama kaupendur, endilega látið þá vita. Það ætla 2 að koma og skoða hann á morgun.

Ég ræddi við bifvélavirkja og lögfræðing í kvöld og það er sennilega lítið mál að fá leyfi til að keyra hann ef steypt er fyrir byssuhlaupið.



Hve mikil er eyðslan í innanbæjarsnatti?

Re: Skriðdreki til sölu

Sent: Þri 08. Apr 2014 00:11
af JohnnyRingo

Re: Skriðdreki til sölu

Sent: Þri 08. Apr 2014 00:18
af AsgeirM81
Miða við wikipedia, þá á hann að komast 193 km á tankinum, 660 lítrar(svo um 342 lítrar pr 100 km), en tekur aðeins 80 oct eldsteyti, svo gæti reynst erfitt að koma honum í gang.