Síða 1 af 1

[ÓE] Rafhlöðu í þyrlu --3.7V 200mAh Polymer Li-ion Battery

Sent: Mið 05. Mar 2014 14:59
af Vaski
Er einhver sem á rafhlöður í svona þyrlu?
Pantaði þetta þarna, ásamt 5 auka rafhlöðum, allt dótið kom til landsins (pantaði annað líka) en þetta var stoppað í tollinum vegna CE merkingar. Eftir svolítið stapp við tollinn fór þetta þó í gegn, en það voru engar rafhlöður í sendingunni, hvorki þessar 5 auka né þessar 2 sem að áttu að vera í pakkanum sjálfum. Hef grun um að þetta hafi "týnst" í tollinum, en hann þvertekur fyrir það.
Þannig að núna er ég með þyrlu en vantar rafhöður, þannig að ef einhver á rafhlöður sem að passa í þetta, eða getur bent mér á stað þar sem hægt er að kaupa þannig, væri það frábært.

Re: [ÓE] Rafhlöðu í þyrlu --3.7V 200mAh Polymer Li-ion Batte

Sent: Mið 05. Mar 2014 15:44
af lukkuláki
Þessi getur líklega bjargað þér. og hugsanlega tómstundahúsið ?
http://tactical.is/details/walkera-v120d02s-battery-3-7v-600mah

Re: [ÓE] Rafhlöðu í þyrlu --3.7V 200mAh Polymer Li-ion Batte

Sent: Mið 05. Mar 2014 16:07
af Vaski
Kíki til þeirra.

Re: [ÓE] Rafhlöðu í þyrlu --3.7V 200mAh Polymer Li-ion Batte

Sent: Mið 05. Mar 2014 16:24
af elri99
Segðu okkur hvernig þú ferð að því að hafa betur í stappi við tollinn vegan CE merkinga.

Re: [ÓE] Rafhlöðu í þyrlu --3.7V 200mAh Polymer Li-ion Batte

Sent: Mið 05. Mar 2014 16:30
af dori
Tactical, Smábílar eða Tómstundahúsið.

Svo er hobbyking.com solid síða ef þig vantar fleiri.