Síða 1 af 1

iPod Touch 5g 32GB Space Gray

Sent: Mið 18. Des 2013 08:51
af jojoboyo
Nýjasta gerðin af iPod Touch 32GB Space Gray til sölu. Hann er með 4“ skjá, 5MP myndavél og linsu, 1080p upptökumöguleika, tveggja-kjarna A5 örgjörva og grafík og nýja Ios 7 stýrikerfið. Tækið0 var keypt fyrir um ári síðan og er með eitthvað af rispum en heldur samt sem áður frábæru „look“-i og virkar fullkomlega. iPodinn virkar nánast mjög líkt iPhone 5 nema auðvitað möguleikann á því að hringja og að senda sms. Hann hefur reynst mér hreint út sagt stórkostlega og með 32 GB plássi get ég verið með rúmlega 2000 lög á honum þrátt fyrir að fullt af myndum, víjdóum og öppum voru í honum fyrir. Ástæðan fyrir sölunni er sú að ég er að fá mér nýjan iPhone og þarf því frekar á pening en iPodnum að halda.

Kostar 59.990 kr. í epli.is
http://www.epli.is/ipod/ipodtouch-1/ipo ... -grey.html

Vil selja hann á 35 þúsund en hlusta samt á önnur tilboð. Vil helst ekki selja tækið á mikið minna en 30 þúsund þó. Læt fylgja með "Lightning cable" en enga aðra aukahluti.