Síða 1 af 1

Vodafone vs Síminn

Sent: Sun 26. Maí 2013 15:26
af Arkidas
Er einhver hérna sem hefur verið hjá báðum fyrirtækjum og getur
deilt reynslu af þjónustu?

Re: Vodafone vs Síminn

Sent: Sun 26. Maí 2013 15:27
af Viktor
Ljósnet > Síminn
Ljósleiðari > Vodafone

:)

Re: Vodafone vs Síminn

Sent: Sun 26. Maí 2013 15:27
af Arkidas
Afsakið gleymdi að taka fram að ég er aðallega að spá í farsímaþjónustu!

Er frekar ánægður hjá Hringiðunni með ljósleiðarann!

Re: Vodafone vs Síminn

Sent: Sun 26. Maí 2013 15:30
af Viktor
Arkidas skrifaði:Afsakið gleymdi að taka fram að ég er aðallega að spá í farsímaþjónustu!

Er frekar ánægður hjá Hringiðunni með ljósleiðarann!


Grunsamlega svipaðar áskriftaleiðir og verð nema að Vodafone mínútur gilda líka í GSM til útlanda.

http://www.siminn.is/einstaklingar/farsiminn/askrift/
http://www.vodafone.is/simi/gsmaskrift

Hef heyrt að Síminn sé með betra 3G

Re: Vodafone vs Síminn

Sent: Sun 26. Maí 2013 15:47
af Arkidas
Já hugsa að ég fari í Símann upp á 3G-ið nema einhver komi með önnur rök.

Re: Vodafone vs Síminn

Sent: Sun 26. Maí 2013 16:02
af Plushy
Það er líka spurning ef þú notar mikið netið í símanum er Tal með 10GB á 500kr

Re: Vodafone vs Síminn

Sent: Sun 26. Maí 2013 16:40
af Arkidas
Held að 1GB dugi alveg. Er eiginlega að pæla í þjónustugæðum frekar en verði.

Re: Vodafone vs Síminn

Sent: Sun 26. Maí 2013 16:41
af Viktor
Arkidas skrifaði:Held að 1GB dugi alveg. Er eiginlega að pæla í þjónustugæðum frekar en verði.


Tal er náttúrulega á sama dreifikerfi og síminn, en gæti ýmindað mér að þjónustuverið hjá Símanum sé öflugra.