Síða 1 af 1

Alfa Romeo 156 - 1999 árgerð - Skipti á TV eða leiktæki !

Sent: Mán 18. Feb 2013 16:53
af aggibeip
Alfa Romeo 156
Árgerð:1999 - Nóvember
Litur: Grár
Aflgjafi: Bensín
2000cc - 156 hestöfl
Skipting: Sjálfskipting
Ekinn 193.000 km.

Búnaður:

Loftkæling (A/C)
Rafmagn í speglum
Rafmagn í öllum gluggum
Álfelgur

Ástand:


Sjálfskiptingin er eitthvað farin að segja til sín.
A/C virkar ekki.

Frekari upplýsingar:

Bíllinn er staðsettur í Garði.

Bíllinn er með 12miða.

Verðhugmynd: 150þ eða tilboð - skoða allt - skoða skipti á leiktæki t.d. krossara eða sleða í svipuðum verðflokki eða stóru flatsjónvarpi. <--- PM

Svara öllum skilaboðum í PM eða email: aggibeip@gmail.com

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Re: Alfa Romeo 156 - 1999 árgerð

Sent: Mán 18. Feb 2013 17:10
af krissdadi
Hvað kostar skipting í svona græju??

Re: Alfa Romeo 156 - 1999 árgerð

Sent: Mán 18. Feb 2013 17:42
af littli-Jake
krissdadi skrifaði:Hvað kostar skipting í svona græju??


ný? einhverja hundraðþúsundkalla.

Re: Alfa Romeo 156 - 1999 árgerð

Sent: Mán 18. Feb 2013 19:41
af aggibeip
Hmm.. Ég veit ekki hvað svoleiðis kostar, en örugglega dýr ef þú kaupir hana nýja.

Annars fann ég gírkassa og kúplingu á bland, á eitthvern 50þ kall saman. Væri ekki málið að breyta honum bara í bsk :happy

Re: Alfa Romeo 156 - 1999 árgerð

Sent: Mán 18. Feb 2013 20:28
af krissdadi
aggibeip skrifaði:Hmm.. Ég veit ekki hvað svoleiðis kostar, en örugglega dýr ef þú kaupir hana nýja.

Annars fann ég gírkassa og kúplingu á bland, á eitthvern 50þ kall saman. Væri ekki málið að breyta honum bara í bsk :happy


Passar þetta samann??

Re: Alfa Romeo 156 - 1999 árgerð

Sent: Mán 18. Feb 2013 21:41
af Ulli
Var hann mikið tjónaður?

Re: Alfa Romeo 156 - 1999 árgerð

Sent: Mán 18. Feb 2013 22:12
af aggibeip
Var hver tjónaður ? Ég veit ekki til þess að hann hafi nokkurn tímann lent í tjóni.. :) Ég veit ekki hvort þetta passi saman, ég hef voðalega lítið vit á Alfa Romeo hehe :)

Re: Alfa Romeo 156 - 1999 árgerð

Sent: Mán 18. Feb 2013 22:25
af Ulli
Sést að loftpúðin hefur farið út þarna á einni myndini .

Re: Alfa Romeo 156 - 1999 árgerð

Sent: Mán 18. Feb 2013 22:40
af aggibeip
Ah, sé það núna.. Ég veit ekki afhverju þetta er svona, ég skal spyrja eigandann :happy

*Edit: Bíllinn lenti ekki í tjóni í hans eign, að hans sögn. Þetta er ekki laust, bara hornið búið að losna.. Ég pósta bílnúmerinu um leið og ég veit það svo menn geti tékkað á tjónasögu bílsins á skattur.is (sjá póstinn frá GuðjónR)

Re: Alfa Romeo 156 - 1999 árgerð

Sent: Mán 18. Feb 2013 22:51
af GuðjónR
Það er hægt að fara á skattur.is og logga sig inn og sækja ferilsskrá bílsins.
Þar kemur allt fram, tjón, skoðanir, skráning km. mæla á milli skoðana.
Hvernig hafa verið eigendur og margt fleira.

Re: Alfa Romeo 156 - 1999 árgerð

Sent: Þri 19. Feb 2013 07:48
af biturk
er bíllinn keirsluhæfur í þessu ástandi? er eitthvað sem er vitað um að þurfi að gera fyrir skoðun fyrir utan skiptinguna? hvernig lýsa leiðindin sér

Re: Alfa Romeo 156 - 1999 árgerð

Sent: Þri 19. Feb 2013 07:53
af littli-Jake
aggibeip skrifaði:Hmm.. Ég veit ekki hvað svoleiðis kostar, en örugglega dýr ef þú kaupir hana nýja.

Annars fann ég gírkassa og kúplingu á bland, á eitthvern 50þ kall saman. Væri ekki málið að breyta honum bara í bsk :happy



Jájá. Því það tekur ekki nema svona korter að henda þessu á milli.... :face
Það er víst talsvert mál að breita ssk yfir í bsk. Efast sárlega um að einusinni festingarnar stemmi á milli.

Re: Alfa Romeo 156 - 1999 árgerð

Sent: Þri 19. Feb 2013 13:00
af aggibeip
biturk skrifaði:er bíllinn keirsluhæfur í þessu ástandi? er eitthvað sem er vitað um að þurfi að gera fyrir skoðun fyrir utan skiptinguna? hvernig lýsa leiðindin sér


Sko mér skilst að skiptingin sé ekki farin, svo það er hægt að keyra hann og í raun ekkert sem ég veit af sem þarf að gera fyrir skoðun. Ég skal spyrja eigandann út í skiptinguna og bílnúmerið og pósta svo hérna svo menn geti farið yfir eigendaferil bílsins og svona :)

Re: Alfa Romeo 156 - 1999 árgerð

Sent: Þri 19. Feb 2013 13:09
af zobbah
Ég á svona bíl árg 2000. Verkstæðiskallinn minn pantaði skiptinguna á netinu fyrir 70 þúsund og tók svo 100þús fyrir að skipta, sem var mjög mikil vinna.

Virkar þó mjög vel í dag. Frábært að keyra hann, sérstaklega út af Selec speed skiptingunni þannig að þú getur keyrt hann eins og beinskiptan án þess að
þurfa að kúpla. Getur notað plús og mínus í stýrinu eða stillt á city mode sem er sjálfskipting.

Sé ekki fram á að skipta yfir í annan bíl á næstu árum á meðan þessi virkar.

Re: Alfa Romeo 156 - 1999 árgerð

Sent: Þri 19. Feb 2013 13:14
af aggibeip
Númerið á bílnum er: RU-890
Airbagheilinn er bilaður, airbagið hefur allavega ekki sprungið út á meðan núverandi eigandi hefur átt hann..
Skiptingin: Það er hægt að keyra bílinn, hann er góður í langkeyrslu, hann er lengi að skipta milli gíra..

Re: Alfa Romeo 156 - 1999 árgerð

Sent: Mið 20. Feb 2013 08:12
af biturk
helduru að hann vilji skipta á beinskiptri octaviu, sömu árgerð með gírkassa keirðann 60 þúsund ?

Re: Alfa Romeo 156 - 1999 árgerð

Sent: Mið 20. Feb 2013 09:09
af aggibeip
Sendu mér uppl um hvernig þeim skiptum yrði hagað og ég skal bera það undir hann :)

Re: Alfa Romeo 156 - 1999 árgerð - Skipti á TV eða leiktæki

Sent: Mið 20. Feb 2013 11:43
af aggibeip
Kominn með verðhugmynd.
Skoða skipti á leiktæki eða stóru flatsjónvarpi, slétt skipti eða mjög nálægt sléttum skiptum kemur til greina.

Re: Alfa Romeo 156 - 1999 árgerð - Skipti á TV eða leiktæki

Sent: Mið 27. Feb 2013 11:59
af aggibeip
TTT - Skoða allt sem telst sniðugt :)