Síða 1 af 1

[ÓE] Snjóflóðaýli, stöng og skóflu

Sent: Þri 05. Feb 2013 08:27
af jonolafur
Ekki vill svo heppilega til að einhver hér á vaktinni sem lumar á snjóflóðaýli, má vera gamall en gangfær.
Einnig væri heppilegt en ekki eins mikilvægt, er einhver á snjóflóða stöng og snjóflóða skóflu.

Re: [ÓE] Snjóflóðaýli, stöng og skóflu

Sent: Mið 06. Feb 2013 14:23
af jonolafur
upp.

Re: [ÓE] Snjóflóðaýli, stöng og skóflu

Sent: Fim 07. Feb 2013 16:54
af jonolafur
upp

Re: [ÓE] Snjóflóðaýli, stöng og skóflu

Sent: Fim 07. Feb 2013 17:06
af krissdadi
Hvað viltu borga fyrir Life-Link skóflu

Hún er ný aldrei verið notuð
Mynd

Re: [ÓE] Snjóflóðaýli, stöng og skóflu

Sent: Fim 07. Feb 2013 17:58
af jonolafur
er ekki viss... 4000kr? er það sangjart, leitaði að henni og fann á 40$ en veit ekki með hingaðkomna.

Re: [ÓE] Snjóflóðaýli, stöng og skóflu

Sent: Fim 07. Feb 2013 18:31
af Glazier
jonolafur skrifaði:er ekki viss... 4000kr? er það sangjart, leitaði að henni og fann á 40$ en veit ekki með hingaðkomna.

Hvað sem þú kaupir.. ekki kaupa plast skóflu!

Re: [ÓE] Snjóflóðaýli, stöng og skóflu

Sent: Fim 07. Feb 2013 20:35
af jonolafur
Glazier skrifaði:
jonolafur skrifaði:er ekki viss... 4000kr? er það sangjart, leitaði að henni og fann á 40$ en veit ekki með hingaðkomna.

Hvað sem þú kaupir.. ekki kaupa plast skóflu!


Já, helst vildi maður ál eða stál en ég veit um fólk sem á plast og er ánægt með þær...

Re: [ÓE] Snjóflóðaýli, stöng og skóflu

Sent: Fim 07. Feb 2013 20:41
af krissdadi
Þú vilt ekki ál í snjóskóflu af því að álið kólnar og frís og snjór festist við blaðið
Life-Link skóflurnar eru " if you break it we replace it " :happy

svona skófla kostar um 10þ út úr búð hérna heima
skoða ýmis skipti :megasmile

Re: [ÓE] Snjóflóðaýli, stöng og skóflu

Sent: Fim 07. Feb 2013 20:46
af jonolafur
Ýmis skipti segirðu... Ég sting uppá tveim flökum af reyktum makríl og gamlann IDE hdd :guy

Re: [ÓE] Snjóflóðaýli, stöng og skóflu

Sent: Fim 07. Feb 2013 20:47
af jonolafur
En í fullri alvöru, hverskonar skipti? útivistartengt, tölvutengt, eða hvað?

Re: [ÓE] Snjóflóðaýli, stöng og skóflu

Sent: Fim 07. Feb 2013 20:53
af Bjosep
Flestar þessara skófla með plastblaði eru með lífstíðarábyrgð og eru líklegast mikið algengari en álskóflurnar.

Það er ekki bara að þær séu með lífstíðarábyrgð heldur eru blöðin frekar sterk. Ég hef reyndar ekki handleikið svona skóflu lengi en við vorum með ortovox skóflur og blöðin voru alveg óbrjótanleg í þeim. Ég veit hinsvegar ekkert hvernig aðrar skóflur eru en það ætti ekki að vera nein ástæða til þess að óttast plastið.

Re: [ÓE] Snjóflóðaýli, stöng og skóflu

Sent: Fim 07. Feb 2013 20:54
af krissdadi
Tölvutengt :)

Re: [ÓE] Snjóflóðaýli, stöng og skóflu

Sent: Fim 07. Feb 2013 20:56
af jonolafur
Já, er búinn að googla, sýnist að flestir séu á sama máli, prufaði um dagin teflonhúðaða skóflu... mjög funky, en hún var no stick !!!

Re: [ÓE] Snjóflóðaýli, stöng og skóflu

Sent: Fim 07. Feb 2013 20:58
af jonolafur
Já, ég á PsP með ónítan pinna, 14" túbusjónvarp og gamlan IDE hdd... Ekki margt sem ég má missa.

Re: [ÓE] Snjóflóðaýli, stöng og skóflu

Sent: Fim 07. Feb 2013 21:14
af DabbiGj
er búinn að brjóta eina ortovox, er í dag með Black Diamond transfer úr áli og er búinn að massa hana og stífbóna og það er frekar lítill snjór sem festist á henni ef einhver

Re: [ÓE] Snjóflóðaýli, stöng og skóflu

Sent: Fim 07. Feb 2013 21:14
af krissdadi
jonolafur skrifaði:Já, ég á PsP með ónítan pinna, 14" túbusjónvarp og gamlan IDE hdd... Ekki margt sem ég má missa.


Ekkert sem mig vantar :catgotmyballs

Re: [ÓE] Snjóflóðaýli, stöng og skóflu

Sent: Fim 07. Feb 2013 21:25
af jonolafur
En hvað um peninga?

Re: [ÓE] Snjóflóðaýli, stöng og skóflu

Sent: Fim 07. Feb 2013 21:34
af krissdadi
jonolafur skrifaði:En hvað um peninga?


6000 kr :happy

Re: [ÓE] Snjóflóðaýli, stöng og skóflu

Sent: Fim 07. Feb 2013 21:37
af jonolafur
Hljómar sanngjarnt, svara þér á morgun.

Re: [ÓE] Snjóflóðaýli, stöng og skóflu

Sent: Fös 08. Feb 2013 18:59
af jonolafur
Sorry, fékk aðra ódírari. En takk samt.

Re: [ÓE] Snjóflóðaýli, stöng og skóflu

Sent: Fös 08. Feb 2013 21:23
af krissdadi
jonolafur skrifaði:Sorry, fékk aðra ódírari. En takk samt.


Ekki málið :happy