Síða 1 af 2

[TS] DLS - 2 x 12" Bassahátalari W712 - [2 x Keilur og Box]

Sent: Fim 17. Jan 2013 19:09
af chaplin
Keypti 2 x W712 keilur - hef ekki bíl til að hafa þær í og hef því ekkert með þær að gera lengur nema safna ryki. Þetta eru held ég sömu leikur og voru í Poloinum sem vann græjukeppni fyrir nokkrum árum.

Mynd

Weight 6,15 kg (13,56 lb)
Impedance 4 ohm
Woofer size 12" (30 cm)
Power handling capacity 250 W RMS
Max power handling capacity 480 W
Peak power 600 W
Frequency range 20-1000 Hz
Sensitivity 91 dB (1W/1m)
Magnet size 156 mm (6,14"), 100 oz
Outer diameter of woofer 310 mm (12,2")
Mounting depth 140 mm ( 5,51")
Mounting hole 284 mm (11,18")
X-max +- 9 mm (0,35")

Mynd

Bókstaflega geðsjúkar keilur, hugsa að allir græjusjúklingar viti hvað þær geta.

LÆKKAÐ Í 35.000kr þar sem ég vill losna við þær.

6610076 - Daníel

Re: [TS] DLS - 2 x 12" Bassahátalari W712 - [2 x Keilur og B

Sent: Fim 17. Jan 2013 19:11
af DJOli
Flott ef þú myndir lækka verðið.
Kraftmeiri keilur frá þekktari framleiðanda á nánast sama pening.
http://sm.is/index.php?sida=vara&vara=GT52402BR

Re: [TS] DLS - 2 x 12" Bassahátalari W712 - [2 x Keilur og B

Sent: Fim 17. Jan 2013 19:22
af playman
Þær eru að vísu bara 25 RMS stærri sem þú bendir á DJOli
Þar sem að ég giska á að á síðuni er reiknað út heildar tala á báðum keilum 275+275=550 RMS
En chaplin er með fyrir hverja keilu að mér sínist.

En verðið er of hátt að mér fynnist.
DLS er nú ekkert svo óþekkt merki, bara lítið um það hérna heima.

Re: [TS] DLS - 2 x 12" Bassahátalari W712 - [2 x Keilur og B

Sent: Fim 17. Jan 2013 19:23
af DJOli
playman skrifaði:Þær eru að vísu bara 25 RMS stærri sem þú bendir á DJOli
Þar sem að ég giska á að á síðuni er reiknað út heildar tala á báðum keilum 275+275=550 RMS
En chaplin er með fyrir hverja keilu að mér sínist.

En verðið er of hátt að mér fynnist.
DLS er nú ekkert svo óþekkt merki, bara lítið um það hérna heima.


Ég sagði aldrei að dls væri óþekkt. Bara ekki eins þekkt.
Ef ég man rétt voru annaðhvort Audio.is eða Amg Aukaraf með DLS á sínum tíma.

Re: [TS] DLS - 2 x 12" Bassahátalari W712 - [2 x Keilur og B

Sent: Fim 17. Jan 2013 19:25
af playman
DJOli skrifaði:Ég sagði aldrei að dls væri óþekkt. Bara ekki eins þekkt.

Átti nú ekki að koma þannig frá mér, oh well :D
DJOli skrifaði:Ef ég man rétt voru annaðhvort Audio.is eða Amg Aukaraf með DLS á sínum tíma.

Aukaraf voru með DLS dótið

Re: [TS] DLS - 2 x 12" Bassahátalari W712 - [2 x Keilur og B

Sent: Fim 17. Jan 2013 19:37
af chaplin
Ég hugsa nú að JBL eigi lítið í DLS. Eina sem ég hef fundið af þeim til sölu er á eBay og þar kostar stykkið $219.99 +87.75 fyrir SH. Ef við mv. að þú færð SH á $25 eins og ég fann á Amazon (veit að vísu ekki hvort það sé eingöngu innan US48) að þá kostar stykkið komið heim með öllum gjöldum 54.897 kr. Ef þú þarft að borga hitt verðið er það 68.790 kr stykkið.

Veit ekki hvort ég sé að fara of langt með dæmið, en þetta er svolítið eins og Benz á móti Hyundai (DLS vs. JBL).

En öllum er velkomið að prufa keilurnar, eina sem þarf er snúrurnar og þá er þetta ready to go! :happy

Re: [TS] DLS - 2 x 12" Bassahátalari W712 - [2 x Keilur og B

Sent: Fim 17. Jan 2013 20:13
af chaplin
DJOli skrifaði:Texti

Nú þekki ég þetta ekki vel, er en ekki alveg talsverður munur á 20hz og 40hz, þeas. varðandi dýpt eða bassa? Sem og líka 2 vs. 4 ohm? Væri gaman að fá álit frá þeim sem þekkja þetta vel þar sem ég þori ekki að lofa neinu. Matrox eða audiophile, eru þið ekki mjög klárir með allt þetta að gera?

Og ég er 90% viss um að rsm / w tölurnar þínar eiga að vera

250 rms / 480w (báðar saman 960w)
275 rms / 550w (báðar saman 1100w)

Án þess að reyna að vera með nokkurn móral, því sjálfur veit ég ekki betur, en veistu eitthvað hvað þú ert að segja þegar þú ert að tala um hljóðbúnað?

Ég veit allavega að ég er aldrei að fara selja þær á undir 40.000 kr, setti upphaflega á þær 55.000 kr en lækkaði í 40.000 kr þar sem ég nenni ekki lengur að hafa þær upp á skáp að safna ryki. Eins og ég sagði, eina sem ég hef fundið til sölu er stykkið komið heim fyrir +50.000 kr, þá held ég að það sé dálítið út í hött að selja þær á 20.000 kr báðar með boxinu. :happy

Re: [TS] DLS - 2 x 12" Bassahátalari W712 - [2 x Keilur og B

Sent: Fim 17. Jan 2013 20:20
af MatroX
DJÓLI þetta er bara ekki rétt hjá þér. þetta er alveg 40þús virði hjá honum. DLS étur JBL í öllu nema þegar kemur að Tónleika kerfum. þótt JBL keilurnar hafa 2ohm á DLS þá er JBL keilan bara 40-200hz en DLS keilan er 20hz-1khz sem þýðir einfaldlega að það mun koma mikið flottari og tærari bassi úr þeim heldur en þessu JBL dóti. sambandi við wöttin þá eru DLS keilurnar oftast rétt mældar en sumar af þessum mælingum sem JBL koma með eru úti hött, þegar ég var sem mest í þessu græju dóti þá mældum við félagrnir 1200w JBL keilu og hún var ekki nema 210rms wött eða eitthvað kringum það. DLS er merki en JBL er bara dót. þótt að JBL sé svaka þekkt hérna heima þá er DLS milljón sinnum þekktara merki út í heimi.

danni þetta er alveg mjög fair verðlagt hjá þér

Re: [TS] DLS - 2 x 12" Bassahátalari W712 - [2 x Keilur og B

Sent: Fim 17. Jan 2013 20:30
af chaplin
Takk fyrir innleggið þitt! Vissi að þú eða audiophile væru líklegast með þetta á hreinu.

Einnig tók ég ekki eftir fyrr en að þú nefndir það að hún er 20Hz-1KHz ekki 20Hz-200Hz eins og DJOli sagði, ég hugsa að það þurfi engan sérfræðing til að segja mér að það breytir öllu. Mun meiri dýpt og all mikið tærari hljómur.

Ég held mig þá við þetta verð alveg pikk fast eða tek hæsta boði (þeas. allt yfir 40.000 kr).

Tilvalið fyrir þá sem vilja gíra sig fyrir sumarið með ótrúlegan hljóm. :happy

Re: [TS] DLS - 2 x 12" Bassahátalari W712 - [2 x Keilur og B

Sent: Fös 18. Jan 2013 00:19
af DJOli
Dafuq. En það að bassakeila geti keyrt á 1khz hefur ekkert að segja með hljómgæði þar sem að magnarar fyrir bassakeilur eru stilltir undir 100hz, oftast er 'prime' svæðið á milli 35 og 50hz.

Auk þess voru W712 framleiddar 2006 sem þýðir að keilan þín er orðin allavega 6 ára.
Framleiðslu á þessum keilum hefur einnig verið hætt, þó svo að Dls séu ekki hættir störfum.

Auk þess.

JBL GT5-12.

Type Car Subwoofer
Low-Frequency Transducer 12" (305mm) Polypropylene cone
Voice Coil 2" (51mm) diameter
Power Handling, RMS 275 W
Power Handling, Peak 1100 W
Frequency Response 27Hz–450Hz
Nominal Impedance 4 ohms
Sensitivity (2.83V @1m) 90 dB
Diecast Aluminum Frame No
Vented Polepiece Yes
Surround Hi-roll rubber
Progressive Spider Yes
Grille None
External Diameter (Metric, English) 12-5/16" (313mm)
Mounting Cutout Diameter (Metric, English) 11-1/4" (286mm)
Mounting Depth (Metric, English) 6-7/16" (164mm)

Heimildir:
http://uk.jbl.com/jbl-product-detail-uk/gt5-12.html
http://uk.jbl.com/tl_files/catalog//jbl ... glish%20EU).pdf

Ástæðan fyrir því að þær keyra á 2ohm er vegna þess að þær eru brúaðar (ef ég man rétt þá var brúun innan box eitthvað á þennan veg: úr + í + á sub 1, úr + frá sub 1 í + í sub 2, og úr - í - á sub 2, og úr - á sub 2 í - á sub 1.)


MatroX skrifaði:DLS milljón sinnum þekktara merki út í heimi.


http://www.youtube.com/results?search_q ... 5Q0NXURaxw
Gefur upp eitt myndband.

http://www.youtube.com/results?search_q ... tZRTUl3vHk Ég nenni ekki einusinni að telja hvað koma upp mörg hérna.

Re: [TS] DLS - 2 x 12" Bassahátalari W712 - [2 x Keilur og B

Sent: Fös 18. Jan 2013 00:27
af chaplin
DJOli skrifaði:Dafuq. En það að bassakeila geti keyrt á 1khz hefur ekkert að segja með hljómgæði

Vinsamlegast komdu með heimildir.

DJOli skrifaði:magnarar fyrir bassakeilur eru stilltir undir 100hz, oftast er 'prime' svæðið á milli 35 og 50hz.

Vinsamlegast komdu með heimildir.

Þú ert ennþá að bera saman við top-of-the-line á móti fjöldaframleiddu dóti. Það er ástæða fyrir því að JBL keilurnar kosta undir 9.500 kr úti, en DLS kosta 28.600 kr. Hugsaðu.

Annars eru keilurnar jú +2 ára, notaðar í uþb. hálft ár eða gott sem ónotaðar, þarf sjálfsagt að nota þeir meira til að klára "break in" ferlið. Ef þú hefur ekkert gott að segja sem þú getur supportað með heimildum, slepptu því þá. Í flestum tilvikum væri ég búin að gefa þér viðvörun en finnst það óviðeigandi þar sem þetta er minn þráður.

DJOli skrifaði:Samanburður


Þú hættir núna, þetta er eins og að segja Maybach Landaulet er bara með 446 niðurstöður en Hyundai i30 með næstum því hálfa milljón, Hyundainn er því betri og virtari bíll. Þú ert núna á mjög hálum ís, hættu að snúa útúr.

Re: [TS] DLS - 2 x 12" Bassahátalari W712 - [2 x Keilur og B

Sent: Fös 18. Jan 2013 00:32
af beatmaster
Eitt sem að mig langar til að benda á hérna

1 stk (Já bara eitt stykki en ekki tvö og ekkert box) af DSL W712 á ebay á $219.99

JBL GTS-2402BR pakkinn (2 keilur í boxi) á ebay $238.15

Þannig að ég held að 40.000 kr. sé ekkert útúr korti fyrir þetta box með 2 DSL keilum

Re: [TS] DLS - 2 x 12" Bassahátalari W712 - [2 x Keilur og B

Sent: Fös 18. Jan 2013 00:39
af Squinchy
Þetta er bara mjög flott verð fyrir þennan gullmola :happy

Re: [TS] DLS - 2 x 12" Bassahátalari W712 - [2 x Keilur og B

Sent: Fös 18. Jan 2013 01:27
af axyne
Gott stuff, sangjarnt verð

Re: [TS] DLS - 2 x 12" Bassahátalari W712 - [2 x Keilur og B

Sent: Lau 19. Jan 2013 14:12
af Plushy
Myndi þetta ekki passa vel í Yaris hjá mér?

Re: [TS] DLS - 2 x 12" Bassahátalari W712 - [2 x Keilur og B

Sent: Mán 21. Jan 2013 02:03
af chaplin
Plushy skrifaði:Myndi þetta ekki passa vel í Yaris hjá mér?

Haha, ætti jú að passa - það verður þó takmarkað eftir á. ;)

Re: [TS] DLS - 2 x 12" Bassahátalari W712 - [2 x Keilur og B

Sent: Þri 22. Jan 2013 12:42
af chaplin
Tilbúnar fyrir sumarið! ;)

Re: [TS] DLS - 2 x 12" Bassahátalari W712 - [2 x Keilur og B

Sent: Fös 17. Maí 2013 12:30
af chaplin
Gleymt og farið! Aftur á toppinn!

Ef þú ert með snúrukerfið tilbúið og magnara er minnsta málið að prufa græjurnar. :happy

Re: [TS] DLS - 2 x 12" Bassahátalari W712 - [2 x Keilur og B

Sent: Fös 17. Maí 2013 15:33
af DJOli
Ég nenni ekki að skíta yfir græjurnar hjá þér lengur, en svo að þú lærir allavega eitthvað smá, þá er hérna mynd handa þér sem sýnir þér hvað er fyrir hvaða tíðnisvið.

* MYNDIR OG TEXTI *

Ég óska þér auðvitað velgengni með söluna, en ef þú myndir segja þetta við sannan áhugamann, sérvitring og fiktara að þú værir með 'omg bassakeilu sem keyrir upp í 1KHz' þá yrði sko hlegið að þér.

Re: [TS] DLS - 2 x 12" Bassahátalari W712 - [2 x Keilur og B

Sent: Mán 20. Maí 2013 13:32
af chaplin
Ég er kominn með nóg af þér, þú þykist vera algjör snillingur, þykist vita allt en ert svo ekkert nema dónalegur.

Heldur þú í alvörunni að ég sé að semja speccana? Þetta er það sem framleiðandinn gefur upp!

Ekki senda fleiri póst hingað inn, ef þú vilt ræða þetta frekar þá ferðu annað!

Re: [TS] DLS - 2 x 12" Bassahátalari W712 - [2 x Keilur og B

Sent: Mán 20. Maí 2013 16:09
af atlifreyrcarhartt
Dsl er dyrt merki i bílgræjjum og jblin hefur alllllltaf verið odyrari :) en það er ekki þarmeðsagt að dsl se mikið betra eg hef nað 143.1 db með 2x Jbl keilum og það er mjög gott þarsem islandsmetið i 150db en þetta er lika spurning um endingartima og þar helld eg að dls komi sterkt inn :) 40 er gott verð :) bara tómt 2x12 box kostar 15þ nytt

Re: [TS] DLS - 2 x 12" Bassahátalari W712 - [2 x Keilur og B

Sent: Þri 25. Jún 2013 00:29
af chaplin
Prufum þetta aftur! ;)

Re: [TS] DLS - 2 x 12" Bassahátalari W712 - [2 x Keilur og B

Sent: Þri 25. Jún 2013 09:09
af MatroX
atlifreyrcarhartt skrifaði:Dsl er dyrt merki i bílgræjjum og jblin hefur alllllltaf verið odyrari :) en það er ekki þarmeðsagt að dsl se mikið betra eg hef nað 143.1 db með 2x Jbl keilum og það er mjög gott þarsem islandsmetið i 150db en þetta er lika spurning um endingartima og þar helld eg að dls komi sterkt inn :) 40 er gott verð :) bara tómt 2x12 box kostar 15þ nytt

þú áttar þig samt á því að dsl mun sounda mun tærar og betur á 143.1db heldur en jbl. db tala segir ekkert til um gæði bara læti!

Re: [TS] DLS - 2 x 12" Bassahátalari W712 - [2 x Keilur og B

Sent: Þri 25. Jún 2013 18:46
af chaplin
Á toppinn!

Re: [TS] DLS - 2 x 12" Bassahátalari W712 - [2 x Keilur og B

Sent: Fös 28. Jún 2013 13:42
af chaplin
Upp á toppinn!