Sælir nú
Hef ákveðið að setja bílinn á sölu þar sem hann stendur núna úti og fær enga umhyggju þessa dagana.
Ég er búinn að vera með hann í geymslu frá síðasta sumri en missti plássið í lok desember og vildi athuga hvort einhver hefði áhuga á honum.
Hérna er skemmtilegur þráður um þegar ég tók hann í gegn að utan og innan (nema vélina)
http://www.mbclub.is/spjall/viewtopic.php?t=18331
Helsta ástæðan fyrir sölu er tímaleysi og hef margt annað að gera við peningana en að eyða í svona drossíu
Langar líka að selja einhverjum bílinn sem hefur áhuga á að gera hann upp, ekki leiðinlegt að selja fyrsta bílinn sinn frá sér í góðar hendur :tumbsup2:
helstu aukahlutir eru :
Rafdrifnar frammrúður
rafdrifin topplúga
ASD kerfi
fjarstýrð læsing
hálfleðruð cosworth sæti
Bíllinn er ekinn um 250 þúsund km
2.0L Bensín vél, sjálfskiptur
dekkin eru í fínu standi, myndi sjálfur keyra þau eitt ár í viðbót
auka umgangur sem fylgir af 17" AEM felgum á frekar slitnum sumardekkjum
Enginn geislaspilari eða hátalarar í aftur hillu
Er með allar nótur frá því að ég fékk hann í mínar hendur, (allar skrúfur, listar, viðgerðir og þess háttar síðustu 3 eða 4 árin)
Það sem er að þessa stundina er að hann er orðinn helvíti leiðinlegur í gang aftur. Fór með hann í viðgerð á tíma hjá bíladoktornum sem fékk hann í lag, nema það gekk aðeins í 3-4 mánuði.
Þarf að skipta um headpakkningu.
verðhugmynd á svona grip er um 350 þar sem ég ætlaði ekkert að selja hann.. en.. svona gerist bara
Sendið mér rausnaleg tilboð á mail -> olif89@gmail.com
Er með cosworth innréttingu full leðraða með hurðaspjöldum (eitt af þeim orðið slappt, aftara hægra megin ef ég man rétt)
Ef áhugi er fyrir því geta menn boðið sér í það. Hiti í sætum og alles !!!
Ein rifa á HÆGRA sæti þar sem þetta er tekið úr breskum bíl
Ef ég er að gleyma einhverju megið þið benda mér á það án hroka :wink:
M. Benz 190E, sportline 1991 til sölu
-
Höfundur - Ofur-Nörd
- Póstar: 246
- Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 16:24
- Reputation: 5
- Staða: Ótengdur
M. Benz 190E, sportline 1991 til sölu
Síðast breytt af olafurfo á Mán 14. Jan 2013 17:43, breytt samtals 2 sinnum.
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 924
- Skráði sig: Fim 11. Okt 2007 17:17
- Reputation: 131
- Staða: Ótengdur
Re: M. Benz 190E, sportline 1991 til sölu
Rosalega er hann flottur hjá þér!
Minn fyrsti bíll var einmitt 190E 91 módel. Klárlega eitt uppáhalds boddíið mitt af Benz og frábær fyrsti bíll.
Sé samt hvergi hvaða vél er í honum og hvort hann sé ekki alveg örugglega sjálfskiptur
PS. Hef ekki áhuga á að kaupa (ekki nema svo ótrúlega vilji til að þetta sé 2,5 turbo dísel útgáfan, þá yrði ég að skoða hann )
Minn fyrsti bíll var einmitt 190E 91 módel. Klárlega eitt uppáhalds boddíið mitt af Benz og frábær fyrsti bíll.
Sé samt hvergi hvaða vél er í honum og hvort hann sé ekki alveg örugglega sjálfskiptur
PS. Hef ekki áhuga á að kaupa (ekki nema svo ótrúlega vilji til að þetta sé 2,5 turbo dísel útgáfan, þá yrði ég að skoða hann )
-
Höfundur - Ofur-Nörd
- Póstar: 246
- Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 16:24
- Reputation: 5
- Staða: Ótengdur
Re: M. Benz 190E, sportline 1991 til sölu
haha takk fyrir það, Nei því miður ekki 2.5 turbo disel.
Ef ég ætti að ráða væri 2.3 cosworth í honum en hann er aðeins með 2.0 bensín vél sem gerir hann samt sem áður ótrúlega þæginlegann og hljóðlátann
Ef ég ætti að ráða væri 2.3 cosworth í honum en hann er aðeins með 2.0 bensín vél sem gerir hann samt sem áður ótrúlega þæginlegann og hljóðlátann