Síða 1 af 1

Onkyo 905 heimabíómagnari

Sent: Mán 19. Nóv 2012 13:26
af keyser
http://www.avland.co.uk/onkyo/txnr905/txnr905.htm ... Til sölu. Tilboð takk.

Frábær græja. Eina sem vantar er 3D video passthrough sem er vesen fyrir mig þar sem ég nota sjávarpa og 3D varpi á leiðinni. Annars myndi ég aldrei skipta honum út.

Re: Onkyo 905 heimabíómagnari

Sent: Mán 19. Nóv 2012 21:46
af Valdimarorn
Sæll

Hvar á maður að byrja? Segi 40 þús til að segja eitthvað?

Kv Val.

Re: Onkyo 905 heimabíómagnari

Sent: Mán 19. Nóv 2012 23:48
af Garri
Ehmm... 40k hlýtur að vera nokkuð langt undir sanngjörnu verði.. 80k var eitthvað sem ég hafði látið mér detta í hug áður en ég vissi hvað þetta kostaði nýtt og miðað við það, þá dró úr mér.

Svona magnarar halda verðgildi sínu mun betur en tölvur.. vissulega er samt þróun þar eins og í öðrum tækjum sem tengjast miðlun. Langar samt að vita hvernig hann hefur verið geymdur/hýstur, í opnu eða lokuðu rými varðandi hitamyndun. Hugsa til að mynda að svona græja framkalli nokkurn hita og þótt helstu element séu vel hitaþolin, þá á það ekki við allt sem er í svona græju..

Re: Onkyo 905 heimabíómagnari

Sent: Þri 20. Nóv 2012 11:46
af gRIMwORLD
Það er þarf hinsvegar að skoða vel kaupin á þessum magnara miðað við user review sem hann er að fá td á Amazon. Ekki hægt að segja annað en að þessi týpa sé smá gallagripur. Þá má þó vel vera að þetta eintak sé í góðu lagi en margir lent í vandræðum. Þetta getur hugsanlega haft áhrif á endursöluverðmætið.

Hérna má þó lesa user reviews, bæði góð og ekki svo góð. Fleiri góð reyndar.

http://www.testfreaks.com/a-v-receivers/onkyo-tx-nr905/user-reviews/