Síða 1 af 1

[TS] Samsung Galaxy SII. Hættur við sölu

Sent: Sun 14. Okt 2012 00:20
af spankmaster
Er með til sölu SII nýjan í kassanum, insigli enn órofin :happy
Óska eftir tilboðum, einginn rugl boð :thumbsd takk fyrir :happy
Áskil mér rétt til að hafna öllum tilboðum, vegna þess að konana mín á þennan síma og ég er ekki ennþá búinn að segja henni að ég sé að reyna að selj'ann :-"
Langar að hafa þetta simple og byðja ykkur um að bjóða hérna í þræðinum, nenni ekki að skoða PM (lati ég)
Getur mögulega fylgt með honum 1árs auka ábyrgð, veit það samt ekki alveg hvort tryggingin leyfi það, I'll have to check it out

P.s. hann kostar 70k í elko fyrir verðlöggur og aðra sem vantar að mynda sér verðhugmynd :happy

pp.s. ættla að hafa tíma ramma á þessu, ef ekki fæst viðunandi tilboð fyrir kl. 18:00 á mánudag eða konana mín verður fjúríus (úff hvað ég er að leika mér að eldinum, hún er nebblega ólétt líka :crazy ) verður hætt við sölu

Re: [TS] Samsung Galaxy SII

Sent: Sun 14. Okt 2012 00:38
af Tesy
Ha? Ég er ekki alveg að skilja þetta.
Afhverju ertu að selja síma sem konan þín á án þess að segja henni það? :-k

Re: [TS] Samsung Galaxy SII

Sent: Sun 14. Okt 2012 00:41
af rango
Tesy skrifaði:Ha? Ég er ekki alveg að skilja þetta.
Afhverju ertu að selja síma sem konan þín á án þess að segja henni það?


Suicide by wife?

Re: [TS] Samsung Galaxy SII

Sent: Sun 14. Okt 2012 00:47
af spankmaster
málið er að þetta er sími sem hún fékk úr viðbótartryggingu fyrir LG optimus 2x síma sem eyðilagðist, og það tók smá tíma fyrir tryggingarnar að meta LG símann, á meðan það gerðis keypti ég mér SIII og hún hefur verið að nota gamla SII símann minn. Þannig að ég er að skoða það hvort ég geti selt þennan fyrir nægilegan pening og komið henni á óvart með því að láta hana hafa nýjan SIII :happy með því að selja þennan og borga soldið á milli

Re: [TS] Samsung Galaxy SII

Sent: Sun 14. Okt 2012 00:50
af Tesy
spankmaster skrifaði:málið er að þetta er sími sem hún fékk úr viðbótartryggingu fyrir LG optimus 2x síma sem eyðilagðist, og það tók smá tíma fyrir tryggingarnar að meta LG símann, á meðan það gerðis keypti ég mér SIII og hún hefur verið að nota gamla SII símann minn. Þannig að ég er að skoða það hvort ég geti selt þennan fyrir nægilegan pening og komið henni á óvart með því að láta hana hafa nýjan SIII :happy með því að selja þennan og borga soldið á milli


Ó, ég ætlaði að segja "rest in peace spankmaster" en ætla núna þá í staðinn að segja "well played sir, I salute you" =D>
Gangi þér vel með söluna :)

Re: [TS] Samsung Galaxy SII

Sent: Sun 14. Okt 2012 04:41
af CurlyWurly
Langar bara að henda því inn sem svona "fríu bumpi" að þú tókst ekki fram litinn á símanum, en það er svosem ekkert mál að bæta því við ;)

Re: [TS] Samsung Galaxy SII

Sent: Sun 14. Okt 2012 10:20
af spankmaster
CurlyWurly skrifaði:Langar bara að henda því inn sem svona "fríu bumpi" að þú tókst ekki fram litinn á símanum, en það er svosem ekkert mál að bæta því við ;)


Takk fyrir fría bumbið \:D/
En hann er svartur :happy

Re: [TS] Samsung Galaxy SII

Sent: Mán 15. Okt 2012 10:00
af spankmaster
Ég ætla bumpa þetta einu sinni og vill benda mönnum á að PM skilaboðum verður ekki svarað =;

og bara til að gera allar verðlöggur pínu brjál (ég er bara með svona mikið skrítinn húmor :-" ) þá finnst mér 20k ekki vera eðlileg aföll af innsigluðum, í kassanum, síma sem ekkert er búið að gera við annað en að halda á honum út úr búðinni, hann er ekki stolinn nóta með kennitölu fylgir til sönnunar, ásamt mögulegri 1árs viðbótar tryggingu

BTW ef kaupandi er staðsettur á Höfuðborgarsvæðinu eða suðurlandi fylgir frí heimsending :happy

Re: [TS] Samsung Galaxy SII. Hættur við sölu

Sent: Mán 15. Okt 2012 10:19
af spankmaster
Er hættur við sölu vegan þess að ég talaði við tryggingafélagið sem bætti síman, og þau sögðu mér að að ég þyrfti ekki að fá leyfi frá þeim til að skila honum eins og starfsmennirnir á þjónustuborði ELKO sögðu mér. Þannig að, til að losna við öll afföll og vesen ætla ég bara að skila honum til ELKO \:D/