Síða 1 af 1

Pioneer VSX-520-K - 5.1 Heimabíómagnari HDMI 1.4 Full HD(3D)

Sent: Fim 19. Júl 2012 16:54
af astro
Er með heimabíómagnara sem er keyptur í Ágúst 2011.

Notaður í uþb 800Klst, mjög ánægður með hann, er að selja hann því ég er að uppfæra í 7.1 kerfi.

Styður alla nýjustu og helstu HD staðla sem og Dolby TrueHD og DTS-HD Master Audio.
Styður Full HD mynd og einnig 3D ef þú ert með 3D sjónvarp.

130W per rás x5

Dolby TrueHD - Dolby Digital Plus - Dolby Pro Logic llz - DTS-HD Master Audio

HDMI 36-Bit Deep Color

4x HDMI inngangar
1x HDMI útgangur

Hægt að nota hann við 2.1 kerfi og 5.1 kerfi.

Frekari upplýsingar um magnarann má finna hérna: http://www.pioneer.eu/eur/products/arch ... index.html

Get líka selt hátalarakerfið mitt með sem er Harman Kardon, en einungis ef það selst saman. http://sm.is/index.php?sida=vara&vara=HKTS30

Verð fyrir magnarann: 70.000Kr.- Dónaleg tilboð eru afþökkuð.

Mynd Mynd

Re: Pioneer VSX-520-K - 5.1 Heimabíómagnari HDMI 1.4 Full HD(3D)

Sent: Fim 19. Júl 2012 18:31
af fallen
VSX-520-K er með 3 HDMI innganga, ekki 4.. 70k finnst mér heldur dýrt þegar maður getur fengið nýjann VSX-521-K, sem er með fleiri tengimöguleikum og fíneríi, á 80k í Ormsson.

Re: Pioneer VSX-520-K - 5.1 Heimabíómagnari HDMI 1.4 Full HD(3D)

Sent: Fim 19. Júl 2012 19:11
af astro
fallen skrifaði:VSX-520-K er með 3 HDMI innganga, ekki 4.. 70k finnst mér heldur dýrt þegar maður getur fengið nýjann VSX-521-K, sem er með fleiri tengimöguleikum og fíneríi, á 80k í Ormsson.


Ormsson eru ekki lengur með 521-K og hafa ekki verið með hann lengi.

En ég er allveg hagganlegur niður í 65 :)

Re: Pioneer VSX-520-K - 5.1 Heimabíómagnari HDMI 1.4 Full HD(3D)

Sent: Fim 19. Júl 2012 20:01
af kfc

Re: Pioneer VSX-520-K - 5.1 Heimabíómagnari HDMI 1.4 Full HD(3D)

Sent: Fim 19. Júl 2012 20:51
af astro
kfc skrifaði:http://ormsson.is/vorur/4924/



Fallen linkaði í hann áðan, hann er víst ekki til, bróðir minn keypti gallað eintak af þessum fyrir um hálfu ári síðan og skilaði honum og fékk endurgreitt, hann hefur ekki komið aftur. Eru sennilega ekki búnir að taka hann út af síðunni :/

Re: Pioneer VSX-520-K - 5.1 Heimabíómagnari HDMI 1.4 Full HD(3D)

Sent: Fim 19. Júl 2012 21:38
af Tiger
Hvort sem hann er uppseldur eða ekki, finnst þér réttlætanlegt að hafa hann til sölu á 15.000kr minna en týpan fyrir ofan kostar/kostaði? Just saying :klessa

Fullt af tölvuvörum sem seljast upp eða eru sérpantaðar, en fólk miðar samt við verðin á þeim sem eru á heimasíðum verslana.

Re: Pioneer VSX-520-K - 5.1 Heimabíómagnari HDMI 1.4 Full HD(3D)

Sent: Fim 19. Júl 2012 22:07
af astro
Tiger skrifaði:Hvort sem hann er uppseldur eða ekki, finnst þér réttlætanlegt að hafa hann til sölu á 15.000kr minna en týpan fyrir ofan kostar/kostaði? Just saying :klessa

Fullt af tölvuvörum sem seljast upp eða eru sérpantaðar, en fólk miðar samt við verðin á þeim sem eru á heimasíðum verslana.


Uppseldur eða ekki þá var ég bara að svara þeim fyrir ofan ?

Upprunarverð er 119.950 eða það sem ég keypti hann á fyrir tæpu ári, ég er að verðsetja hlutinn minn það sem mér fynst nú bara sanngjarnt eða það sem ég vill fá fyrir hann gegn því að hann verði seldur og ég sé ekkert að því
að lækka hann um tæp 20% frá búðarverði í dag, ekki eins og þetta sé vélbúnaður eða slíkt sem fyrnist og/eða eyðinlegst útfrá mikillar notkunar, eða ekki svo ég best viti til.

Ég myndi skilja ef þetta væri einhver úrelt græja með wear & tear sjáanlegu, en þetta er nú ekki nema bara frá því í fyrra sem þessi kom í búðir hérna (held 2010 í USA).

Re: Pioneer VSX-520-K - 5.1 Heimabíómagnari HDMI 1.4 Full HD(3D)

Sent: Fim 19. Júl 2012 22:25
af Tiger
Ok þannig að bróðir þinn keypti VSX-521 fyrir hálfu ári á 80.000 og þú keyptir VSX-520 líka fyrir hálfu ári á 119.000?

Re: Pioneer VSX-520-K - 5.1 Heimabíómagnari HDMI 1.4 Full HD(3D)

Sent: Fim 19. Júl 2012 22:55
af astro
Tiger skrifaði:Ok þannig að bróðir þinn keypti VSX-521 fyrir hálfu ári á 80.000 og þú keyptir VSX-520 líka fyrir hálfu ári á 119.000?


Ég sagði það í auglýsingunni og svarinu mínu áðan að ég keypti magnarann minn fyrir rúmu ári síðan eða í ágúst 2011, ég borgaði 119.950Kr fyrir hann þá.

astro skrifaði:Er með heimabíómagnara sem er keyptur í Ágúst 2011.

astro skrifaði:Upprunarverð er 119.950 eða það sem ég keypti hann á fyrir tæpu ári


Sagði alldrei að bróðir minn keypti sinn VSX-521-K á 80.000Kr, enda hef ég ekki hugmynd hvar eða á hvað hann keypti hann á, og hvað kemur það því við ? Ég er ekki að selja hans magnara.

Er ekki hægt að vera með söluþráð hérna eða hvernig er það ? komið fram við mann eins og maður sé fífl.
Ég er tilbúinn að selja magnarann minn á 65-70, sé bara hvernig áhuginn er fyrir honum og ef enginn vill hann fyrir þann pening so be it, þá held ég honum eða lækka verðið.
Auglýsi hann ekki á 40 eða 50.000 ef það er áhugi fyrir honum á því verði sem ég vill fá fyrir hann.

Ég er búinn að vera nógi lengi á vaktinni til að vita það að hérna eru engir vitleysingar hérna, hver um sig verður bara að dæma hvort þetta sé yfirverðsett, það sem lítið er um nýlega heimabíómagnara svona second hand til sölu.

Ég nenni ekki að svara meira í þennan póst. Hægt er að ná í mig í PM ef áhugi er fyrir magnaranum, hægt er að koma og skoða, prufa og fikta ;)

Re: Pioneer VSX-520-K - 5.1 Heimabíómagnari HDMI 1.4 Full HD(3D)

Sent: Fim 19. Júl 2012 23:19
af DJOli
Eflaust fínasti magnari.
Ég á 97 árg. Pioneer VSX-806RDS og hann stendur sig eins og champ.
Minn er þó ekki til sölu ;).

Re: Pioneer VSX-520-K - 5.1 Heimabíómagnari HDMI 1.4 Full HD(3D)

Sent: Fös 20. Júl 2012 09:17
af Viktor
Vandamálið er greinilega það að magnarinn er töluvert minna virði en 120k, og það að hafa úrelt verð í huga þegar maður verðsetur á verðvaktarapjalli fellur það sjaldan vel í kramið.

Eftir bræðurnir selja nýrri gerð, ónotaða á 80þ., þá væri ansi slæmt move að kaupa þennan á 70k.

Ekki það að það skipti máli, enda fer þetta eftir eftirspurn(sem ég efast reyndar að sé mikil), ekki ég persónulega myndi setja á þetta 60k og búast við tilboðum á milli 50-60.

No hard feelings, bara mitt álit.

(skrifað í síma)

Re: Pioneer VSX-520-K - 5.1 Heimabíómagnari HDMI 1.4 Full HD

Sent: Þri 04. Sep 2012 16:30
af sponni60
Hvað væri það minnsta sem þú værir til í að selja hann á?? Væri kannski til í að taka hann á 45-50 þús.