Síða 1 af 1

(TS) Fighting Vipers SPILAKASSI!! Tilboð óskast. (má læsa)

Sent: Fim 12. Apr 2012 21:58
af Hrollu
Er með Fighting Vipers spilakassa til sölu. Sér pínu á honum (ekkert hrikalegt bara wear and tear...)

Allt virkar fullkomnlega! Skjárinn og controls í fínu lagi.

Tekur 50 kalla og 100 kalla. (100 kall = 2 leikir).

Tilvalið til að græða á félögunum í næsta partýi eða breyta í MAME cabinet. ;)

Set inn myndir við fyrsta tækifæri.

Óska eftir tilboðum.
Hef þessa auglýsingu uppi fram að næstu helgi (til 20. apríl) og hæstbjóðandi vinnur.

Engin bull tilboð og óska eftir að fólk bjóði í fullri alvöru.

Happy bidding.

Re: (TS) Fighting Vipers SPILAKASSI!! Tilboð óskast.

Sent: Fim 12. Apr 2012 22:41
af bulldog
áttu mynd af honum ?

Re: (TS) Fighting Vipers SPILAKASSI!! Tilboð óskast.

Sent: Fim 12. Apr 2012 22:43
af Hrollu
Nei get ekki tekið mynd af honum fyrr en eftir helgi....

Re: (TS) Fighting Vipers SPILAKASSI!! Tilboð óskast.

Sent: Fim 12. Apr 2012 22:57
af bulldog
verðhugmynd ?

Re: (TS) Fighting Vipers SPILAKASSI!! Tilboð óskast.

Sent: Fim 12. Apr 2012 23:00
af Hrollu
Bara bjóða. ;) En ég læt hann ekki fyrir minna en 30.000.

Re: (TS) Fighting Vipers SPILAKASSI!! Tilboð óskast.

Sent: Fös 13. Apr 2012 00:02
af Saber
Spilakassar eru awesome í réttum aðstæðum, en þar sem þetta er mjög fyrirferðamikið tæki sem eingöngu sérvitrir nostalgíusjúklingar (eins og ég) kaupa sér, þá stórlega efast ég um að þú verðir kominn með boð upp á 30k fyrir 20. apríl.

Ég var með Neo Geo kassa (með útskiptanlegum leikjum) í nokkra mánuði. Það var geðveikt fyrst um sinn, en svo var þetta bara farið að vera fyrir manni.

En gangi þér vel með söluna og vonandi eignast þetta einhver sem hefur áhuga á að viðhalda þessu! :happy

Re: (TS) Fighting Vipers SPILAKASSI!! Tilboð óskast.

Sent: Fös 13. Apr 2012 00:13
af Hrollu
Ok.... Takk fyrir söguna Janus en ég ætla að biðja menn um að halda sig við að bjóða bara eða koma með fyrirspurnir.
Finnst þetta pínu pointless hjá þér Janus (nema pointið sé að reyna að lækka verðið eða koma í veg fyrir sölu).

En ég er kominn með 2 boð. Kassinn stendur í 35.000 og fer á það föstudaginn 20. apríl.

Nema einhver bjóði betur. :happy

p.s. Kassinn er á hjólum. Kem með myndir og mál (hæð, breidd...) eftir helgi.

Re: (TS) Fighting Vipers SPILAKASSI!! Tilboð óskast.

Sent: Fim 19. Apr 2012 15:31
af Saber
Þetta var nú ekki meint sem tilraun til þess að lækka verðið, heldur frekar til þess að meina að það taki lengri tíma að finna einhvern sem er til í að borga almennilega fyrir svona græju. En ég hafði greinilega rangt fyrir mér. :oops:

Frítt bump. ;)

Re: (TS) Fighting Vipers SPILAKASSI!! Tilboð óskast.

Sent: Fim 19. Apr 2012 17:23
af zedro
Halló myndir eða ég læsi þessum þræði! :mad

(Ókey ég læsonum ekki en koma með myndir takk fyrir!)

Re: (TS) Fighting Vipers SPILAKASSI!! Tilboð óskast.

Sent: Fim 19. Apr 2012 17:28
af Hrollu
Er fastur út á landi að vinna fram á fimmtudag. Get ekki tekið myndir héðan.
Læstu honum bara.

Re: (TS) Fighting Vipers SPILAKASSI!! Tilboð óskast.

Sent: Fim 19. Apr 2012 17:39
af zedro
Hrollu skrifaði:Er fastur út á landi að vinna fram á fimmtudag. Get ekki tekið myndir héðan.
Læstu honum bara.

Hahaha lestu smáaletrið kappi, þetta var létt grín :japsmile

Hef svolítinn áhuga og væri til í að sjá gripinn :happy

Re: (TS) Fighting Vipers SPILAKASSI!! Tilboð óskast.

Sent: Fim 19. Apr 2012 18:00
af biturk
Hrollu skrifaði:Ok.... Takk fyrir söguna Janus en ég ætla að biðja menn um að halda sig við að bjóða bara eða koma með fyrirspurnir.
Finnst þetta pínu pointless hjá þér Janus (nema pointið sé að reyna að lækka verðið eða koma í veg fyrir sölu).

En ég er kominn með 2 boð. Kassinn stendur í 35.000 og fer á það föstudaginn 20. apríl.

Nema einhver bjóði betur. :happy

p.s. Kassinn er á hjólum. Kem með myndir og mál (hæð, breidd...) eftir helgi.



menn meiga víst koma með athugasemdir á þessari síðu og þessi átti fullan rétt á sér :happy

annars er rosalega sniðugt á svona síðum að setja í uppboðum að setja nickið hver á hæsta boð...bara svona smá hugmynd fyrir þig

gangi þér vel, mig langar ofboðslega í hann en ég efast um að ég komi honum uppá fjórðu hæð í gegnum þröngann gang :cry:

Re: (TS) Fighting Vipers SPILAKASSI!! Tilboð óskast. (má læsa)

Sent: Fim 19. Apr 2012 18:10
af Hrollu
Auðvitað mega menn koma með svona sögur. Ég sé bara ekki tilgang í því að koma með svona komment:
"......en þar sem þetta er mjög fyrirferðamikið tæki sem eingöngu sérvitrir nostalgíusjúklingar (eins og ég) kaupa sér, þá stórlega efast ég um að þú verðir kominn með boð upp á 30k fyrir 20. apríl."

Ef menn hafa ekki áhuga á að bjóða í vöruna þá ættu þeir að sleppa því að koma með neikvæð ummæli um hana.

Ég er allavega ekki mikið að troða mér inná söluþræði og benda á neikvæða hluti við vöruna og koma með spár hvort hún seljist eða ekki, ef ég á annaðborð hef ekki áhuga á vörunni sjálfur.