Síða 1 af 1

Gisting á Hótel Hengli (laugardag til sunnudags næsta)

Sent: Mán 12. Mar 2012 22:26
af Aimar
Vegna uppákomu í fjölskyldunni þá mun ég ekki geta nýtt mér aha.is tilboð sem ég keypti í nokkru.

Ég fekk seinkunn á gistingunni til þar til næstu helgi þótt tilboðið gildi aðeins til 1.mars.

svona hljómar tilboðið.

http://www.hotelhengill.is/is_IS

3ja rétta kvöldverður, gisting með morgunverði og aðgangur að potti, sauna og líkamsrækt fyrir tvo á 16.900 kr (fullt verð 34.100 kr). Hægt að fá sent sem gjafabréf í pósti.

Verð tilboð. (tek fram að ég set þessa auglýsingu annars staðar líka og býð vinum og vandamönnum þetta einnig. Þannig að tilboð hérna inni eru ekki einu boðin sem ég fæ. Læt þó vita ef hæsta boð er utan frá.

kv. Aimar





Er ekki fínt að koma konunni á óvart ;)

upplýsingar um hótelið.

Hótel Hengill er við þjóðgarðinn á Þingvöllum sem er á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna og af mörgum talin fallegasta náttúruperla Íslands. Hótel Hengill er nýlegt hótel sem var opnað sumarið 2008. Hótelið er skemmtilega staðsett undir hlíðum Hengils og er einstakt útsýni frá hótelinu yfir Þingvallavatn og fjöllin í kring. Að okkar mati er best að njóta þessa stórbrotna útsýnis úr heitum potti í garði hótelsins.

Hengilssvæðið ólgar af krafti og orku. Mikið er af heitum uppsprettum og gufustrókum og auðvelt er að koma auga á norðurljósin í björtu veðri. Á Nesjavöllum er ein af stærstu jarðvarmavirkjunum á Íslandi og boðið er upp á skoðunarferð með leiðsögn um virkjunina sem er staðsett í næsta nágrenni við hótelið. Þegar þú gistir á Hótel Hengli geturðu verið viss um að finna fyrir orku og krafti þessa fallega umhverfis.

Þriggja stjörnu hótel
Næg bílastæði fyrir framan hótelið
Fyrsta flokks veitingastaður
Þráðlaust Internet
Gufubað og heitur pottur
Líkamsræktaraðstaða
Stórkostlegt útsýni yfir Þingvallavatn
Fundar- og ráðstefnuaðstaða

Þriggja stjörnu hótel

Á Hótel Hengli eru 22 úrvals herbergi sem eru fallega innréttuð og vel útbúin nútímatækjum. Herbergi hótelsins eru snyrtileg og rúmgóð. Öll herbergin eru með síma, sjónvarpi, útvarpi og aðgangi að þráðlausri nettengingu. Frábært útsýni til fjalla er úr flestum herbergjum hótelsins. Frír aðgangur er að heitum pottum, gufu og líkamsræktarherbergi.
Veitingastaður sem hæfir þjóðgarði

Góður veitingastaður er á hótelinu þar sem áhersla er lögð á íslenska sérrétti m.a. silung úr Þingvallavatni. Veitingastaðurinn tekur auðveldlega um 70 manns í sæti. Þar er notalegt andrúmsloft með frábæru útsýni yfir magnþrungið umhverfi Nesjavalla og nágrenni Hengils.

Á morgunverðarborðinu eru fjölbreyttar veitingar í boði, heimabakað brauð, heimagerðar sultur, AB mjólk, múslí og ávaxtasafar ásamt kaffi og te.

Á hótelbarnum má finna úrvals hressingu auk sérstakra „orkudrykkja“ sem koma orkuflæðinu af stað að sögn heimamanna.

Re: Gisting á Hótel Hengli (laugardag til sunnudags næsta)

Sent: Þri 13. Mar 2012 14:59
af Aimar
bump

Re: Gisting á Hótel Hengli (laugardag til sunnudags næsta)

Sent: Mið 14. Mar 2012 16:39
af Bjarni44
enþá til sölu ?

Re: Gisting á Hótel Hengli (laugardag til sunnudags næsta)

Sent: Mið 14. Mar 2012 22:40
af Aimar
enn til sölu. set 14þúsund á þetta þar sem 13 er hæsta boð utan frá.

klikkað hótel með öllu....
Mynd