Síða 1 af 1

Samsung 1.5TB EcoGreen eða Crucial m4 64GB 2.5" Solid-State

Sent: Mán 20. Feb 2012 20:33
af aron9133
var bara velta fyrir mér hvort maður hafi meira að gera við: http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=1537 eða http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... s_id=2046.? er með 128 gb SSD disk fyrir stýrikerfið sem er alveg að verða fullur 2 gb eftir held ég, leikir farnir að hökta og frosna á milli, ég vill meina að það sé diskurinn.

opinions? :D

Re: Samsung 1.5TB EcoGreen eða Crucial m4 64GB 2.5" Solid-State

Sent: Mán 20. Feb 2012 20:40
af AciD_RaiN
Persónulega finnst mér skemmtilegra að vera með venjulega diska sem geymslu. Ertu ekki annars að pæla í því??

Re: Samsung 1.5TB EcoGreen eða Crucial m4 64GB 2.5" Solid-State

Sent: Mán 20. Feb 2012 23:05
af aron9133
Er hrifnari af ssd eini gallinn þeir eru svo fljótir að fyllast :/

Re: Samsung 1.5TB EcoGreen eða Crucial m4 64GB 2.5" Solid-State

Sent: Mán 20. Feb 2012 23:11
af AciD_RaiN
Þarft ekki SSD nema undir stýrikerfið... Ef það er rangt þá vinsamlegast einhver að leiðrétta það...

Re: Samsung 1.5TB EcoGreen eða Crucial m4 64GB 2.5" Solid-State

Sent: Þri 21. Feb 2012 00:59
af Moquai

Re: Samsung 1.5TB EcoGreen eða Crucial m4 64GB 2.5" Solid-State

Sent: Þri 21. Feb 2012 10:04
af aron9133
Bara er svo hræddur um að fylla hann strax :/

Re: Samsung 1.5TB EcoGreen eða Crucial m4 64GB 2.5" Solid-State

Sent: Þri 21. Feb 2012 10:27
af Tiger
Mér finnst þetta pínu eins og spyrja, hvort á ég að fá mér dráttarvél eða mótorhjól. Þetta er tveir ólíkir hlutir fyrir ólíkar þarfi og í fæstum skiptum gætu þau komið í staðinn fyrir hvort annað.

Ég myndi halda þessum 128GB SSD og strauja hann og setja stýrikerfið upp aftur, 128GB eiga að vera meira en nóg fyrir það og forrit. Og fá þér svo 1,5TB diskinn fyrir alla gagnageymslu.