Síða 1 af 1

Tíðni fyrir 4G boðin út í ár

Sent: Mán 20. Feb 2012 02:55
af sxf
http://visir.is/tidni-fyrir-4g-bodin-ut ... 2702209971 Snilld! Er einmitt nýbúinn að fá mér 4g síma og er víst ekki með 3g samkvæmt nova. Kemst varla á netið í símanum núna, fínt að fara beint í 4g hraða. :happy

Re: Tíðni fyrir 4G boðin út í ár

Sent: Mán 20. Feb 2012 13:42
af Tesli
Ég myndi ekki halda niður í mér andanum, þú verður kominn með annan síma þegar þetta verður orðið að fullu nothæft

Re: Tíðni fyrir 4G boðin út í ár

Sent: Mán 20. Feb 2012 16:14
af corflame
Amm, tíðnin boðin út í ár, svo tekur tíma fyrir símafyrirtækin að fá búnað, setja hann upp o.s.frv.
Giska á að þetta verði ekki komið fyrr en í fyrsta lagi eftir rúmt ár (sumar/haust 2013).

Alveg til í að hafa rangt fyrir mér og þetta verði komið fyrr ;)