Síða 1 af 2

SELT: 42“ Panasonic Plasma TH-37PV70F – ódýrt

Sent: Þri 24. Jan 2012 10:09
af Claw
Sælt veri fólkið.

Ég er með 42“ Panasonic plasma sjónvarp sem var keypt í Svar tækni fyrir rúmum þremur árum. Það virkaði beutifully þar til fyrir nokkrum mánuðum þegar þrjár mjóar, dauðar, lóðréttar línur mynduðust á skjánum. Að sjálfsögðu var þetta tveimur mánuðum eftir að tækið rann úr ábyrgð!

En tækið er til sölu, er opinn fyrir tilboðum. Meðfylgjandi er mynd af sjónvarpinu í action.

Kv.
Claw

Re: TS: 42“ Panasonic sjónvarp – ódýrt

Sent: Þri 24. Jan 2012 12:16
af Darknight
hvar eru þessar 3 línur? geturðu sett inn mynd?

Re: TS: 42“ Panasonic sjónvarp – ódýrt

Sent: Þri 24. Jan 2012 12:32
af Claw
Darknight skrifaði:hvar eru þessar 3 línur? geturðu sett inn mynd?


Já, ég skal taka mynd af því í gangi í kvöld og post-a.

Kv.
Claw

Re: TS: 42“ Panasonic sjónvarp – ódýrt

Sent: Þri 24. Jan 2012 18:38
af Claw
Hef fengið nokkur PM og menn að biðja um mynd af þessum línum. Er búinn að uppfæra auglýsinguna með mynd. Endilega verið í sambandi sem fyrst ef þið hafið áhuga, það fer sennilega á morgun.

Re: TS: 42“ Panasonic sjónvarp – ódýrt

Sent: Mið 25. Jan 2012 16:08
af Hauxon
Ég las einhvernsstaðar að Panasonic verksmiðjuábyrgð væri 5 ár.

Ertu búinn að hringja í Svar?

Re: TS: 42“ Panasonic sjónvarp – ódýrt

Sent: Mið 25. Jan 2012 21:36
af Claw
Já ég hringdi í þá þegar þetta kom upp og þeir töluðu um þriggja ára ábyrgð...

Re: TS: 42“ Panasonic sjónvarp – ódýrt

Sent: Mið 25. Jan 2012 21:47
af Klaufi
Allt í lagi að benda á að samkvæmt mínum heimildum er þetta viðurkenndur framleiðslugalli en stendur alls ekki undir kostnaði að gera við þetta.
Í framleiðsluferlinu kemst raki inn í skjáinn og myndar sýru sem étur borðakaplana í sundur eða veldur sambandsleysi í borðinu fyrir ofan skjáinn.
Því lengur sem það er notað því fleiri línur koma.

Þetta er algengt vandamál, og það er víst ódýrara að kaupa nýtt sjónvarp.

Það sem þarf til að gera við þetta kostar 500 pund, og þá er öll vinna eftir, og það er víst erfitt að fá fagaðila hérna heima til að gera við þetta.

Þið þurfið ekki að trúa þessu svona heimildalausu frekar en þið viljið.

Í þínum sporum myndi ég hafa samband við Panasoinc í bretlandi og kanna hvernig er með alþjóðlega ábyrgð varðandi framleiðslugalla hjá þeim.

Re: TS: 42“ Panasonic sjónvarp – ódýrt

Sent: Mið 25. Jan 2012 23:50
af steinarorri
Ætla að benda þér á lagagrein sem þú getur prófað að benda Svar-mönnum á en sú segir að ef þetta er vara sem ætla má að endist í lengri tíma hefur neytandi 5 ár til að bera fyrir sig gallann. (grein 27, málsgr. 2)
Svo eru úrræði vegna galla í grein 26 :)

http://www.althingi.is/lagas/nuna/2003048.html

Skaðar ekki að reyna, ég vil allavega meina að sjónvarpi sé ætlað að endast í a.m.k. 5 ár og ég veit til þess að Neytendastofa hefur eitthvað skorið úr um þessi lög en það er ekki bindandi.

Vona að þetta geti eitthvað hjálpað þér í að leita réttar þíns.

Hérna er m.a.s. ályktun frá Neytendastofu um svipað case þar sem er úrskurðað neytandanum í hag.
http://www.neytendastofa.is/lisalib/get ... temid=2546

Re: TS: 42“ Panasonic sjónvarp – ódýrt

Sent: Mið 25. Jan 2012 23:58
af pattzi
steinarorri skrifaði:Ætla að benda þér á lagagrein sem þú getur prófað að benda Svar-mönnum á en sú segir að ef þetta er vara sem ætla má að endist í lengri tíma hefur neytandi 5 ár til að bera fyrir sig gallann. (grein 27, málsgr. 2)
Svo eru úrræði vegna galla í grein 26 :)

http://www.althingi.is/lagas/nuna/2003048.html

Skaðar ekki að reyna, ég vil allavega meina að sjónvarpi sé ætlað að endast í a.m.k. 5 ár og ég veit til þess að Neytendastofa hefur eitthvað skorið úr um þessi lög en það er ekki bindandi.

Vona að þetta geti eitthvað hjálpað þér í að leita réttar þíns.

Hérna er m.a.s. ályktun frá Neytendastofu um svipað case þar sem er úrskurðað neytandanum í hag.
http://www.neytendastofa.is/lisalib/get ... temid=2546


Já Túbusjónvörp en ég er nú ekki að búast við að flatskjár dugi meira en 2-3 ár .

Re: TS: 42“ Panasonic sjónvarp – ódýrt

Sent: Fim 26. Jan 2012 00:04
af steinarorri
Mér þykir 2-3 ára ending á tæki sem kostar kannski 200k (eða miklu, miklu meira) mjög léleg. Auk þess getur það ekki skaðað hann að prófa að sýna þessa ályktun frá NS sem er einmitt líka um 42" Panasonic Plasmatæki sem er með "rönd á skjánum með
mismunandi lit" sem ég myndi telja mjög svipað case og Claw er með.

Re: TS: 42“ Panasonic sjónvarp – ódýrt

Sent: Fim 26. Jan 2012 00:24
af SolidFeather
pattzi skrifaði:
steinarorri skrifaði:Ætla að benda þér á lagagrein sem þú getur prófað að benda Svar-mönnum á en sú segir að ef þetta er vara sem ætla má að endist í lengri tíma hefur neytandi 5 ár til að bera fyrir sig gallann. (grein 27, málsgr. 2)
Svo eru úrræði vegna galla í grein 26 :)

http://www.althingi.is/lagas/nuna/2003048.html

Skaðar ekki að reyna, ég vil allavega meina að sjónvarpi sé ætlað að endast í a.m.k. 5 ár og ég veit til þess að Neytendastofa hefur eitthvað skorið úr um þessi lög en það er ekki bindandi.

Vona að þetta geti eitthvað hjálpað þér í að leita réttar þíns.

Hérna er m.a.s. ályktun frá Neytendastofu um svipað case þar sem er úrskurðað neytandanum í hag.
http://www.neytendastofa.is/lisalib/get ... temid=2546


Já Túbusjónvörp en ég er nú ekki að búast við að flatskjár dugi meira en 2-3 ár .


What.

Dell 2405 skjárinn minn er 5+ ára.

Átti annan og hann var um 9 ára.

Re: TS: 42“ Panasonic sjónvarp – ódýrt

Sent: Fim 26. Jan 2012 00:33
af AciD_RaiN
Ertu búinn að prófa að tala við framleiðandann eða kynna þér Evrópusambandsreglurnar um þetta? BT ætluðu að taka vinkonu mína í þurrt en ég fletti upp EES reglunum um neytendaábyrgð og þá breyttist tónninn í þeim. Ef út í það fer að þeir ætli að vera með einhverja stæla þá gætirðu talað við lögfræðing. Það er frítt að spjalla við þá og ég mæli eindregið með Krisjáni Thorlacius í bótamál af þessu tagi. Getur annaðhvort hringt í 520-5800 eða sent honum beint mail á kristjan@fortis.is Kostar ekkert að kanna málið...

Re: TS: 42“ Panasonic sjónvarp – ódýrt

Sent: Fim 26. Jan 2012 09:58
af Claw
Takk kærlega fyrir þessar ráðleggingar.

Ég ætla að skoða þetta mál í dag.

Kv.
Claw

Re: TS: 42“ Panasonic sjónvarp – ódýrt

Sent: Fim 26. Jan 2012 11:24
af Claw
Sælir verið þið.

Ég hringdi í Svar áðan. Þeir segja engan söluaðila á Íslandi fara eftir þessum úrskurði og að allir haldi sig við þessi tvö ár. Ég ætla að senda tölvupóst á ofangreindan lögmann og fá upplýsingar frá honum.

Satt að segja finnst mér frekar magnað að Panasonic tæki eigi ekki að endast lengur en í tvö ár og þar af leiðandi finnst mér fásinna að eyða 150.000 krónum og uppúr fyrir tæki sem ekki er hægt að ábyrgjast að virki lengur en í rúma 700 daga!

Kv.
Claw

Re: TS: 42“ Panasonic sjónvarp – ódýrt

Sent: Fim 26. Jan 2012 11:33
af blitz
Það stendur mjög skýrt í lögum (48/2003 - 27. gr.) að það er 5 ára ábyrgð á vörum sem er ætlað að endast til lengri tíma (TV, kæliskápar, þvottavélar o.s.f.rv)

Ef þeir fallast ekki á það þá þarftu að fara með málið fyrir kærunefnd um lausafjár- og þjónustuakaup

http://neytendastofa.is/Pages/270

Kostar einhvern 5k ef ég man rétt.

Það hafa fallið margir úrskurðar um nákvæmlega svona mál.

Re: TS: 42“ Panasonic sjónvarp – ódýrt

Sent: Fim 26. Jan 2012 11:45
af AciD_RaiN
Það væri oft gaman að eiga upptökur af þeim samtölum þar sem þeir reyna að brjóta svona á manni því þegar hið rétta kemur svo í ljós þá kannast náttúrulega enginn við að hafa sagt neitt um þetta mál... Þegar ég vann hjá vodafone í gamla daga og fólk var að spyrja mig eitthvað í sambandi við svona mál, ef ég vissi það ekki þá einfaldlega benti ég þeim á að tala við tfirmann sem þá var ábyggilega heiðarlegasti sölumaður veraldar (var samt ekki yfir öllu vodafone). Hann hætti vegna þess að hann vildi ekki taka þátt í glæpastarfsemi. Þetta er bara mannréttindabrot...

Re: TS: 42“ Panasonic sjónvarp – ódýrt

Sent: Fim 26. Jan 2012 12:07
af steinarorri
Held nefnilega að úrskurður Neytendastofu er ekki bindandi, heldur þarf þetta að fara fyrir dóm. Þessi lagagrein er algjör bastarður, það kemur hvorki neytendum né seljendum vel að hafa þetta svona óskýrt.

Re: TS: 42“ Panasonic sjónvarp – ódýrt

Sent: Fim 26. Jan 2012 13:36
af Claw
Það er rétt, þetta er ekki bindandi úrskurður. Ég hringdi í Neytendastofu.

Re: TS: 42“ Panasonic sjónvarp – ódýrt

Sent: Fim 26. Jan 2012 13:45
af Klaufi
Getur byrjað á að tala við einhvern annan hjá Panasonic, höfuðstöðvar í Bretlandi t.d.

Athuga hvað þeir myndu gera í þessu máli.
Það getur vel verið að þjónustuaðilarnir heima séu bara að skíta upp á bak með þetta mál.

Ef þeir segja að þetta sé galli, þá fær þjónustuaðilinn á Íslandi símtal, og endar á að hringja í þig með skottið á milli lappana.

Re: TS: 42“ Panasonic sjónvarp – ódýrt

Sent: Fim 26. Jan 2012 15:59
af Claw
Hef sent fyrirspurn á Panasonic úti. Vonandi fæ ég góð svör frá þeim.

Re: TS: 42“ Panasonic Plasma TV PV70F – ódýrt

Sent: Fös 03. Feb 2012 19:40
af Claw
Panasonic höfuðstöðvarnar segja að það sé alfarið í valdi söluaðila hve löng ábyrgð sé á tækjunum, ef Svartækni vill standa við 2 ára ábyrgðina er ekkert sem höfuðstöðvarnar geta gert. Ég hef rætt við Neytendastofu sem segir sannarlega að úrskurður þeirra í sambærilegu máli sé á þá leið að svona stór og dýr tæki eigi að vera í 5 ára ábyrgð. Hinsvegar er sá úrskurður ekki bindandi fyrir söluaðila.

Tækið er því aftur falt fyrir 30þús eða hæsta boð.

Kv.
Claw

Re: TS: 42“ Panasonic Plasma TV PV70F – ódýrt

Sent: Fös 03. Feb 2012 20:17
af steinarorri
Þá veit maður hvar maður verslar ekki sjónvörp í framtíðinni. Gangi þér vel með söluna.
Svartækni :thumbsd :thumbsd

Re: TS: 42“ Panasonic Plasma TV PV70F – ódýrt

Sent: Fös 03. Feb 2012 20:46
af biturk
bíð 15 þar sem þær eiga eftir að fjölga

Re: TS: 42“ Panasonic Plasma TV PV70F – ódýrt

Sent: Fös 03. Feb 2012 21:43
af russi
get líka bent áþað, að þó þú hefðir allt bakvið þig rétt, þa stórefa ég að nafni minn í SvarTækni myndi ábyrgjast þetta hann hefur skipt allavega 2x um kennitölur á síðustu fimm árum.
Í mínum bissness er hreinlega varað við honum, þetta er maðurinn sem kom Tæknival á hausinn, enn hann kom þeim líka á toppinn á sinum tíma

Re: TS: 42“ Panasonic Plasma TV PV70F – ódýrt

Sent: Fös 03. Feb 2012 22:46
af Claw
biturk skrifaði:bíð 15 þar sem þær eiga eftir að fjölga


15k er alltof lítið. 30k er lágmarksboð en tækið fer á því verði ef enginn bíður betur.