Síða 1 af 1

Óska eftir Lancer '92 árgerð

Sent: Fös 25. Nóv 2011 00:19
af Nördaklessa
Ég óska eftir 1992 árg. af MMC Lancer Sedan , ekki verkamanntýpu takk.

Re: Óska eftir Lancer '92 árgerð

Sent: Fös 25. Nóv 2011 00:36
af Danni V8
Eru ennþá til einhver góð eintök af svona í dag?

Ég átti nokkra svona fyrir 7 árum, aðallega Colt reyndar og í GTi útfærslunum. Þeir eru allir afskráðir í dag og meira að segja þá var erfitt að finna þetta í góðu standi.

Búinn að sjá þessa?:
https://bland.is/messageboard/messagebo ... d=26412257
https://bland.is/messageboard/messagebo ... d=26389384

Virðist alveg vera eitthvað af þessu á Bland.

En mætti ég forvitnast hvers vegna þú vilt endilega svona bíl?

Re: Óska eftir Lancer '92 árgerð

Sent: Fös 25. Nóv 2011 10:37
af einarhr
Gamla settið keyrði sinn Lancer -91 hátt í 400 þús km þegar vélin fór og var einungis um almennt slit á þeim tíma, td bremsur, kúpling og gúmmí. Hörku bílar en átti til að ryðga í rusl áður en að td vélin fór.

Re: Óska eftir Lancer '92 árgerð

Sent: Fös 25. Nóv 2011 12:12
af Varasalvi
Er hann eftirsóttur? Ég átti einn fyrir 4 árum, lét rífa hann á endanum. Hann var mikið bilaður og það borgaði sig ekki að gera við hann.

Re: Óska eftir Lancer '92 árgerð

Sent: Sun 27. Nóv 2011 23:36
af pattzi
Langar í svona 88 model station af lancer :-)

Veit um einn svoleðis ryðgaðan inní garði held að hann sé samt í lagi kramlega séð var allavega í notkun frá 1988-2010 af sama aðila svo ætti að vera í lagi fékk endurskoðun útaf ryði .

Re: Óska eftir Lancer '92 árgerð

Sent: Sun 27. Nóv 2011 23:52
af Nördaklessa
MMC lancer 92' EXE var fyrsti bíllinn minn, langar svo svaðalega í þessa týpu aftur, skemtilegir bilar :happy