Síða 1 af 1

Hvernig á að unlocka Iphone hér á íslandi?

Sent: Fim 24. Nóv 2011 18:05
af Any0ne
Sælir, ég er að pæla kaupa mér Iphone 4 á ebay.. Þeir eru muun ódýrari þegar þeir eru skráðir t.d hjá AT@T eða Verizon,


Gæti ég þá notað símann hér í Nova til að vafra á netinu o.sfrv
Hvernig færi ég að því að unlocka hann?? nenni ekki að standa í einhverju að herma eftir youtube video-i... Gæti ég farið með hann í Macland?

Re: Hvernig á að unlocka Iphone hér á íslandi?

Sent: Fim 24. Nóv 2011 20:45
af cure
Getur talað við Tomma hér http://hjalp.isiminn.is/wp/ hann unlockar hann fyrir þig fyrir eithvað slikk minnir 3.000 krónur,
vertu bara viss um að, myndi klárlega gera það í staðin fyrir að reyna að gera þetta sjálfur (ég tala af reynslu) læsti símanum 2 sinnum og þurfti að bíða í ár með það að nota hann :face og vertu einnig viss um að það sé eldra aflæsanlegt firmware á Iphoneinum, gangi þér vel.

Re: Hvernig á að unlocka Iphone hér á íslandi?

Sent: Fim 24. Nóv 2011 21:27
af dedd10
Ég mæli ekki með því að kaupa læstann Iphone 4... Bara vesen að unlocka þetta en það er alveg hægt með suma með forriti en hægt með flesta með Gevey aflæsingarkortum, en ekki á IOS 5 (held ég)

og ekki kaupa Verizon síma.. það er ekki hægt að nota þá hérna, þeir eru í raun ekki með gsm kerfi eða eitthvað, amk ekki hægt að setja gsm kort í þá að mér skilst.