Síða 1 af 1

[TS] Iphone 4s ónotaður, ólæstur 125þús!!!!

Sent: Þri 08. Nóv 2011 23:06
af Geita_Pétur
Til sölu "factory unlocked" Iphone 4s 16gb svartur.
Síminn er ónotaður og er enn í lokuðum original umbúðum.
Síminn er í ábyrgð innan evrópu (samt ekki hjá epli.is) Kvittun frá Apple Store UK fylgir með.
Verð 125þús.

Re: [TS] Iphone 4s ónotaður, ólæstur

Sent: Þri 08. Nóv 2011 23:11
af Tiger
Eftir því sem ég hef frá starfsmanni Epli.is þá virkar ekki Apple ábyrgð frá UK eða öðrum Evrópulöndum hérna heima (hjá epli.is) fyrir iPhone.

P.S.

Bara 6 dagar í að hann verður seldur ólæstur í US á 650$ og þá geturu fengið hann hingað heim í kringum 100.000kr með öllum gjöldum og vsk (16GB útgáfuna).

Re: [TS] Iphone 4s ónotaður, ólæstur

Sent: Mið 09. Nóv 2011 02:15
af ArnarF
Snuddi skrifaði:Eftir því sem ég hef frá starfsmanni Epli.is þá virkar ekki Apple ábyrgð frá UK eða öðrum Evrópulöndum hérna heima (hjá epli.is) fyrir iPhone.

P.S.

Bara 6 dagar í að hann verður seldur ólæstur í US á 650$ og þá geturu fengið hann hingað heim í kringum 100.000kr með öllum gjöldum og vsk (16GB útgáfuna).


Svo til að bæta ofan á það, þá hvet ég fólk til að kynna sér það hvort búið sé að greiða tollagjöld af farsímunum ef þeir eru keyptir erlendis.

Getið alveg átt von á því að vera stoppuð af tollinum í flugstöðinni í framtíðinni og vera beðin um að framvísa gögn um kaupsögu hlutsins.

Re: [TS] Iphone 4s ónotaður, ólæstur

Sent: Mið 09. Nóv 2011 10:02
af finnbogi0
já það er satt með að (epli.is) viðurkenna ekki neina síma nema þá sem eru seldir hjá þeim í ábyrgð hjá þeim


og fyndið að þú getur keypt hann á minn á íslandi í ábyrgð hjá BUY.IS en þú aulýsir þennan á hérna :o

mjög gott verð hjá þeim

http://buy.is/category.php?id_category=9204246

Re: [TS] Iphone 4s ónotaður, ólæstur

Sent: Mið 09. Nóv 2011 10:25
af GuðjónR
Epli.is ber ekki skylda til að gera við bilaða iPhone.
Ég er með bréf frá Thorkild Ipsen AppleCare Service Manager á norðurlöndunum en hann segir:

I have asked Skakkiturn to honor their Apple Service Provider obligations, and service ALL defective Apple products in Iceland, regardless the origin of these products.
Only exception is iPhone, which cannot be serviced at all in Iceland.


Þetta er partur af bréfi sem ég er með frá honum eftir að epli.is neitaði mér um viðgerð á iMac keyptum hjá buy.is á sínum tíma.
Þeir drógu í land og gerðu við tölvuna og allt endaði vel.

Re: [TS] Iphone 4s ónotaður, ólæstur

Sent: Mið 09. Nóv 2011 11:25
af hsm
Nú er ég alveg hættur að skilja..... #-o

GuðjónR skrifaði:Þetta er partur af bréfi sem ég er með frá honum eftir að epli.is neitaði mér um viðgerð á iMac keyptum hjá buy.is á sínum tíma.
Þeir drógu í land og gerðu við tölvuna og allt endaði vel.


GuðjónR skrifaði:Auðvitað vitum við að apple tölvur bila aldrei, það þarf ekkert að eyða peningum í að auglýsa það.

Re: [TS] Iphone 4s ónotaður, ólæstur

Sent: Mið 09. Nóv 2011 12:29
af GuðjónR
hsm skrifaði:Nú er ég alveg hættur að skilja..... #-o

GuðjónR skrifaði:Þetta er partur af bréfi sem ég er með frá honum eftir að epli.is neitaði mér um viðgerð á iMac keyptum hjá buy.is á sínum tíma.
Þeir drógu í land og gerðu við tölvuna og allt endaði vel.


GuðjónR skrifaði:Auðvitað vitum við að apple tölvur bila aldrei, það þarf ekkert að eyða peningum í að auglýsa það.


BUSTED :face

Hvernig klóra ég mig út úr þessu....hugs...hugs...

Jú...sko...

Þær bila ekki...en þær geta komið "gallaðar" af færibandinu og þá þarf að laga :)

Re: [TS] Iphone 4s ónotaður, ólæstur

Sent: Mið 09. Nóv 2011 13:10
af Geita_Pétur
Ok, þar sem ábyrgðin virðis ekki gilda á Íslandi hef ég ákveðið að lækka verðið, kjarakaup sem gerast ekki betri, aðeins 125þús fyrir ónotaðan síma, :happy

Re: [TS] Iphone 4s ónotaður, ólæstur 125þús!!!!

Sent: Mið 09. Nóv 2011 17:36
af FBG
Sæll,

Ég tek hann - sendu mér pm

MBK
Friðjón

Re: [TS] Iphone 4s ónotaður, ólæstur 125þús!!!!

Sent: Fös 11. Nóv 2011 13:26
af Geita_Pétur
Síminn er ekki seldur ef einhver vill Iphone 4s á gjafaverði