Síða 1 af 1

[Óskast] Þrýstikútur f/bjór

Sent: Fös 10. Jún 2011 21:42
af FuriousJoe
Sælir, vantar þrýstikút 25L fyrir bjór ef einhver á slíkann.

Er ekki að nenna að kaupa 30 glerflöskur, tappa og tappafestara. :/

Sendið bara PM eða komment hér.

Edit; Hætt við, búinn að redda mér flöskum.

Re: [Óskast] Þrýstikútur f/bjór

Sent: Fös 10. Jún 2011 21:48
af biturk
Maini skrifaði:Sælir, vantar þrýstikút 25L fyrir bjór ef einhver á slíkann.

Er ekki að nenna að kaupa 30 glerflöskur, tappa og tappafestara. :/

Sendið bara PM eða komment hér.

getur leigt tappafestara í mörgum bruggverslunum og tappar kosta lítið

ég safnaði bara flöskum með að drekka bjór :megasmile

Re: [Óskast] Þrýstikútur f/bjór

Sent: Fös 10. Jún 2011 21:53
af kubbur
svo dýr bjórinn með áföstu töppunum

Re: [Óskast] Þrýstikútur f/bjór

Sent: Fös 10. Jún 2011 21:59
af biturk
kubbur skrifaði:svo dýr bjórinn með áföstu töppunum

nei nei, bavaria er rétt yfir 200 kallinum :happy

Re: [Óskast] Þrýstikútur f/bjór

Sent: Fös 10. Jún 2011 22:22
af FuriousJoe
Kemur því ekkert við, frekar bara áhuginn við að brugga :)
Skemmtilegt verkefni fyrir mann.

Er bara ekki að nenna glerflöskunum, væri þæginlegast að geta bara skellt þessu í 25L þrýstikút

Re: [Óskast] Þrýstikútur f/bjór

Sent: Fös 10. Jún 2011 22:53
af Squinchy
þarft líka þrýstijafnara fyrir Co2, Co2 flösku, slöngur, krana og svo kúplingu á kútinn, ef þú átt þessa hluti er bara málið að fara á næsta bar og bjóða þeim 5k fyrir tóman kút, egils kútar eru auðveldari í opnun

Re: [Óskast] Þrýstikútur f/bjór

Sent: Fös 10. Jún 2011 23:21
af FuriousJoe
Squinchy skrifaði:þarft líka þrýstijafnara fyrir Co2, Co2 flösku, slöngur, krana og svo kúplingu á kútinn, ef þú átt þessa hluti er bara málið að fara á næsta bar og bjóða þeim 5k fyrir tóman kút, egils kútar eru auðveldari í opnun

Nei þarf ekkert af því, er með beer kit, set ákveðið magn af sykri með í þrýstikútinn, bíð í ca 10-15 daga og voila (skv leiðbeiningunum amk, er að gera þetta í fyrsta skipti)

Er bara að leita að svona plast þrýstikút

Re: [Óskast] Þrýstikútur f/bjór

Sent: Fös 10. Jún 2011 23:38
af Snorrivk

Re: [Óskast] Þrýstikútur f/bjór

Sent: Lau 11. Jún 2011 00:04
af FuriousJoe
Snorrivk skrifaði:Á eina svona http://aman.is/index.php?page=shop.prod ... p&Itemid=1 get selt þér hana.

Nei takk, er búinn að leggja í fötu, vantar bara flöskur eða þrýstikút :)

Langar helst í kútinn

Re: [Óskast] Þrýstikútur f/bjór

Sent: Lau 11. Jún 2011 00:18
af Snorrivk

Re: [Óskast] Þrýstikútur f/bjór

Sent: Lau 11. Jún 2011 00:30
af FuriousJoe
Snorrivk skrifaði:http://aman.is/index.php?page=shop.product_details&flypage=shop.flypage&product_id=169&category_id=91ce3b31bb6b10f342b61d36cc9375a6&option=com_phpshop&Itemid=61

19.000 kr :/

Er ekki alveg að tíma því :)

Re: [Óskast] Þrýstikútur f/bjór

Sent: Lau 11. Jún 2011 01:07
af capteinninn
Dýrt sport.

Annars hefur mig alltaf langað að brugga landa bara því þeir selja fullkomnar "moonshine" flöskur í Ikea eins og beint úr einhverjum hick myndum frá Kanaveldinu.

Var ekki annars einhver spjallsíða fyrir fólk sem er að gera sitt eigið vín og svoleiðis?

Re: [Óskast] Þrýstikútur f/bjór

Sent: Lau 11. Jún 2011 01:55
af Squinchy
Maini skrifaði:
Squinchy skrifaði:þarft líka þrýstijafnara fyrir Co2, Co2 flösku, slöngur, krana og svo kúplingu á kútinn, ef þú átt þessa hluti er bara málið að fara á næsta bar og bjóða þeim 5k fyrir tóman kút, egils kútar eru auðveldari í opnun

Nei þarf ekkert af því, er með beer kit, set ákveðið magn af sykri með í þrýstikútinn, bíð í ca 10-15 daga og voila (skv leiðbeiningunum amk, er að gera þetta í fyrsta skipti)

Er bara að leita að svona plast þrýstikút

Mæli ekki með því, bjórinn verður mjög líklega undir eða yfir kolsýrður og þú munt klára þrýstinginn sem sykurinn myndar langt áður en bjórinn klárast úr kútnum og þá endarðu með þó nokkra lítra af flötum bjór

hvort sem það er beer kitið sem þú ert að malla eða all grain eins og er í mínum kútum þá þarf Co2 kerfi til að halda þessu fersku á kútunum

hannesstef: Jú http://www.fagun.is

Re: [Óskast] Þrýstikútur f/bjór

Sent: Lau 11. Jún 2011 02:18
af FuriousJoe
Squinchy skrifaði:

Pantaði 48 500ml flöskur, efast um að Co2 klárist þar áður en bjórinn klárast.

Það eru rosalega margir um allan heim sem gera þetta svona, og margir snillingar sem mæla með þessu til að spara peninga. Efast um að þetta séi það slæmt.
(btw gaurarnir á fagun.is gera þetta sjálfir.)

Edit; Ég fer í Co2 kút og allan pakkan þegar ég er orðinn fagmaður ;)

Re: [Óskast] Þrýstikútur f/bjór

Sent: Lau 11. Jún 2011 16:16
af Squinchy
Flottur :), gott að byrja á flöskunum, þá sérðu það betur hversu gott þú hefur það þegar þú ferð yfir í Co2 kerfi ;D

Re: [Óskast] Þrýstikútur f/bjór

Sent: Lau 11. Jún 2011 16:51
af FuriousJoe
Squinchy skrifaði:Flottur :), gott að byrja á flöskunum, þá sérðu það betur hversu gott þú hefur það þegar þú ferð yfir í Co2 kerfi ;D

Þetta hentar mér mjög vel svona eins og ég segi, jú alveg örugglega þrælmagnað að hafa Co2 kút en ég ætla ekki að stökkva beint í 60-70þús króna kostnað og kunna ekki neitt :)

Er að læra á þetta beer kit svo fer ég í BIAB bruggun þá verð ég að fá mér Co2 kút og dælu og læti :)