Síða 1 af 2

Góð heyrnartól 20.000kr -/+

Sent: Fös 29. Apr 2011 21:05
af Dormaster
ég er að leita af góðum heyrnartólum undir 20.000.
Fyrst var ég að pæla í að fá mér Monster Beats by dr.dre nema þar sem þau eru mjög dýr þá veit ég nú ekki allveg hvort að ég myndi fara þangað.
Ég er líka aðeins búinn að heillast af sennheiser HD558 nema ég finn ekki mörg góð reviews á þeim svo að ég veit ekki allveg hvað ég á að gera :/

svo að vitið þið um einhver góð heyrnartól sem eru góð fyrir Dubstep mikinn bassa.?
ég mun nota þau bara í basic (tölvu og optimus one)
Gott væri ef að þetta væri komið fyrir sunnud. þar sem mamma ætlar að kaupa þetta þá úti fyrir mig :)
TAKK

Re: Góð heyrnartól 20.000kr -/+

Sent: Fös 29. Apr 2011 21:10
af Predator
Sennheiser HD 555 eða 595

Re: Góð heyrnartól 20.000kr -/+

Sent: Fös 29. Apr 2011 21:10
af halli7
Sennheiser HD 555

Re: Góð heyrnartól 20.000kr -/+

Sent: Fös 29. Apr 2011 21:26
af Dormaster
Predator skrifaði:Sennheiser HD 555 eða 595

var líka eitthvað að pæla í þeim nema fann þau ekki á bestbuy og heldur ekki hd595.
Vitiði kanski um einhverja aðra raftækjaverslun í florida ?

Re: Góð heyrnartól 20.000kr -/+

Sent: Fös 29. Apr 2011 21:35
af astro
Dormaster skrifaði:
Predator skrifaði:Sennheiser HD 555 eða 595

var líka eitthvað að pæla í þeim nema fann þau ekki á [url]Bestbuy.com[/url] og heldur ekki hd595.
Vitiði kanski um einhverja aðra raftækjaverslun í florida ?


Ég er sjálfur með Senniheiser HD598, nánast sömu og 595 nema meira "luxus" look á þeim, soldið elegant :) Kosta rúmar 40 þúsund hérna heima í sumum búðum en fann þau í fríhöfninni heima á 21 fjólubláa.
Annars sé ég 4 týpur af BOSE heyrnartólum þarna í Best Buy það er eithvað til að skoða ítarlega. :)

Svo hefur maður lesið að Dr.Dre Monster heyrnartólin séu ekki beint "bang 4 the buck".

Re: Góð heyrnartól 20.000kr -/+

Sent: Fös 29. Apr 2011 22:07
af dori
Ekki kaupa Bose. Kauptu Sennheiser eða eitthvað sem er semi "pro audio". Af hverju? Til dæmis eru Bose QC ekki user serviceable og ekki einu sinni factory serviceable. Það sem það þýðir er að ef eitthvað brotnar (sem mun gerast, þau eru ekki jafn gerðarleg og eitthvað hannað fyrir power notendur) þá þarftu að kaupa ný. Færð kannski smá afslátt ef þú skilar gömlu.

Ég á Sennheiser HD 595 og HD 25 og þau eru bæði mjög fín (til mismunandi hluta reyndar). Hugsaðu um hvar og hvernig þú vilt nota þau. Ef þú ert að kaupa þér heyrnartól sem eiga bara að vera notuð heima við í tölvuleikjaspilun þá ættirðu að taka þér þæginleg opin heyrnartól (t.d. HD 5XX). Ef þú hefur í huga að nota þau mikið í vinnu- eða skólaumhverfi ættirðu að taka lokuð (HD 4XX eða HD 25, finnur eitthvað sem þér finnst þæginlegt) bæði til að vera tillitsamur og til að fá ekki umhverfishljóð inná þig (sem lætur þig þurfa að hækka meira og þá verður þú pirrandi gæinn). Lokuð bjóða ekki uppá alveg jafn fallegt og rétt hljóð (bassinn er aðeins off í lokuðum og það er erfiðara að greina mismunandi hljóð) þannig að sound spot í tölvuleikjum er mun auðveldara með opnum heyrnartólum.

Það er fullt af upplýsingum á netinu um þetta. Google býður með einfaldri leit uppá miklar upplýsingar.

Bottom line. Hugsaðu fyrst um hvað þú ætlar að nota þau í. Vertu viðbúinn því að heyrnartólin sem þú kaupir eru ekki optimal í allt. HD 558/598 eru frekar "nýleg" sem er ástæðan fyrir því að það er ekki rosalega mikið um review á þeim en þau eru bæði mjög góð. Hérna er gott review um þau bæði.

Re: Góð heyrnartól 20.000kr -/+

Sent: Fös 29. Apr 2011 22:15
af Dormaster
dori skrifaði:Bottom line. Hugsaðu fyrst um hvað þú ætlar að nota þau í. Vertu viðbúinn því að heyrnartólin sem þú kaupir eru ekki optimal í allt. HD 558/598 eru frekar "nýleg" sem er ástæðan fyrir því að það er ekki rosalega mikið um review á þeim en þau eru bæði mjög góð. Hérna er gott review um þau bæði.

ég mun nota þau aðalega í leikjaspilun, og bara on the go en mjög líklega ekki í skólanum ef ég er að fara í einhver flott og dýr heyrnartól.

Re: Góð heyrnartól 20.000kr -/+

Sent: Fös 29. Apr 2011 22:17
af Storm
sennheiser 380 pro ef þú vilt lokuð heyrnatól, fáránlega góð!

Re: Góð heyrnartól 20.000kr -/+

Sent: Fös 29. Apr 2011 22:22
af Dormaster
Storm skrifaði:sennheiser 380 pro ef þú vilt lokuð heyrnatól, fáránlega góð!

myndiru segja að þau gefa góðan bassa og góð í dubstep ?

Re: Góð heyrnartól 20.000kr -/+

Sent: Fös 29. Apr 2011 22:23
af Storm
Dormaster skrifaði:
Storm skrifaði:sennheiser 380 pro ef þú vilt lokuð heyrnatól, fáránlega góð!

myndiru segja að þau gefa góðan bassa og góð í dubstep ?


óóóójá :D

Re: Góð heyrnartól 20.000kr -/+

Sent: Fös 29. Apr 2011 22:42
af Dormaster
Storm skrifaði:
Dormaster skrifaði:
Storm skrifaði:sennheiser 380 pro ef þú vilt lokuð heyrnatól, fáránlega góð!

myndiru segja að þau gefa góðan bassa og góð í dubstep ?


óóóójá :D

Hugsa þetta ;)

Re: Góð heyrnartól 20.000kr -/+

Sent: Fös 29. Apr 2011 22:55
af mercury
Storm skrifaði:sennheiser 380 pro ef þú vilt lokuð heyrnatól, fáránlega góð!

skal alveg vera sammála honum. Elska þessi tól. keypti þau af þvi að ég varð að hafa high end lokuðtól.
Hef samt heyrt að bassinn nái betri tón í opnum. Þá er úrvalið orðið rugl mikið. 555 eru eðal tól en komin til ára sinna að mínu mati.
það sem ég gerði þegar ég verslaði mín hd 380pro var að fara í gegnum samanburð á netinu og fór einfaldlega eftir því.
Ekkert að marka hvað 100 manns á vaktinni segja flestir hafa prufað 2-5 tól en þú getur eflaust fundið samanburð á mun fleiri tólum. svona fyrir utan það að flestir hafa misjafna skoðun á þessu.
Skoðaðu bara samanburð á tólum og þú ættir að geta séð hvað hentar þér best.
Eina sem ég ætla að mæla sterklega með varðandi gæði vs aur er SENNHEISER
gangi þig vel með þetta.

Re: Góð heyrnartól 20.000kr -/+

Sent: Lau 30. Apr 2011 03:13
af Output
Ég mæli með Sennheiser HDR130 Ef þú vilt þráðlaus headphone!

Re: Góð heyrnartól 20.000kr -/+

Sent: Lau 30. Apr 2011 03:14
af vesley
Dormaster skrifaði:
Predator skrifaði:Sennheiser HD 555 eða 595

var líka eitthvað að pæla í þeim nema fann þau ekki á [url]Bestbuy.com[/url] og heldur ekki hd595.
Vitiði kanski um einhverja aðra raftækjaverslun í florida ?



515-555-595 eiga held ég bráðum að hætta í framleiðslu og 518-558-598 á að taka við.

Re: Góð heyrnartól 20.000kr -/+

Sent: Lau 30. Apr 2011 12:43
af Dormaster
mercury skrifaði:
Storm skrifaði:sennheiser 380 pro ef þú vilt lokuð heyrnatól, fáránlega góð!

skal alveg vera sammála honum. Elska þessi tól. keypti þau af þvi að ég varð að hafa high end lokuðtól.
Hef samt heyrt að bassinn nái betri tón í opnum. Þá er úrvalið orðið rugl mikið. 555 eru eðal tól en komin til ára sinna að mínu mati.
það sem ég gerði þegar ég verslaði mín hd 380pro var að fara í gegnum samanburð á netinu og fór einfaldlega eftir því.
Ekkert að marka hvað 100 manns á vaktinni segja flestir hafa prufað 2-5 tól en þú getur eflaust fundið samanburð á mun fleiri tólum. svona fyrir utan það að flestir hafa misjafna skoðun á þessu.
Skoðaðu bara samanburð á tólum og þú ættir að geta séð hvað hentar þér best.
Eina sem ég ætla að mæla sterklega með varðandi gæði vs aur er SENNHEISER
gangi þig vel með þetta.

svolitið erfitt að meta hvaða heyrnartól eru góð og hver eru það ekki þegar að þú getur basicly ekki prófað og heyrt hljóminn í þeim.
Annars hef ég heyrt úr Beats og mér fannst þau allveg sjúklega góð nema það eru slatti af fólki að segja að þau leki ekkert smá..
svo að ég veit ekkert hvað ég að fá mér og ég þarf að vera kominn með niðurstöðu fyrir morgunn daginn svo að ég veit ekki neitt hvað ég á að gera . :/

Re: Góð heyrnartól 20.000kr -/+

Sent: Lau 30. Apr 2011 16:07
af dori
Dormaster skrifaði:svolitið erfitt að meta hvaða heyrnartól eru góð og hver eru það ekki þegar að þú getur basicly ekki prófað og heyrt hljóminn í þeim.
Annars hef ég heyrt úr Beats og mér fannst þau allveg sjúklega góð nema það eru slatti af fólki að segja að þau leki ekkert smá..
svo að ég veit ekkert hvað ég að fá mér og ég þarf að vera kominn með niðurstöðu fyrir morgunn daginn svo að ég veit ekki neitt hvað ég á að gera . :/

Hvað meinarðu með að þau leki? Heyrist útfrá þeim?

Annars með að prufa... Það er fínasta úrval af heyrnartólum á Íslandi. Farðu t.d. í Pfaff og prufaðu þessi Sennheiser tól sem þú hefur áhuga á.

Re: Góð heyrnartól 20.000kr -/+

Sent: Lau 30. Apr 2011 16:10
af svanur08

Re: Góð heyrnartól 20.000kr -/+

Sent: Lau 30. Apr 2011 16:11
af ViktorS
Er mjög sáttur með mín Sennheiser HD555 en það fer í taugarnar á mér förin sem þetta skilur eftir sig í hárinu :/

Re: Góð heyrnartól 20.000kr -/+

Sent: Lau 30. Apr 2011 16:21
af Dormaster
svanur08 skrifaði:Þessi langar mig i :D -----> http://www.sony.co.uk/product/hps-extra ... /mdr-xb700

Hef einmitt verid ad paela i tessum profadi tau og fannst godur bassi en ogedslega ljot og of storir pudar

Re: Góð heyrnartól 20.000kr -/+

Sent: Lau 30. Apr 2011 16:37
af addifreysi
HD380 Pro eru að standa sig vel hérna.

Re: Góð heyrnartól 20.000kr -/+

Sent: Lau 30. Apr 2011 21:14
af Dormaster
var aðeins að pæla eru samt ekki hd558 betri en hd380 pro ?

Re: Góð heyrnartól 20.000kr -/+

Sent: Lau 30. Apr 2011 22:36
af mercury
eginlega ekki hægt að bera saman opin og lokuð headphones.
Sennilega mjög svipaðir speakers í þeim en hljómurinn getur samt verið mjög svo ólíkur.

Re: Góð heyrnartól 20.000kr -/+

Sent: Lau 30. Apr 2011 23:01
af Dormaster
mercury skrifaði:eginlega ekki hægt að bera saman opin og lokuð headphones.
Sennilega mjög svipaðir speakers í þeim en hljómurinn getur samt verið mjög svo ólíkur.

aarrrrrgh ! afhverju er svona erfitt að bera saman heyrnartól :-k
mér finnst bara HD 558 svo miklu flottari :(
en eru HD 380 mjög vel einangruð og með gott sound-canceling ?

Re: Góð heyrnartól 20.000kr -/+

Sent: Lau 30. Apr 2011 23:10
af Output
Lokuð heyrnatól eru miiiikið betri heldur en lokuð ;) finnst mér.

Re: Góð heyrnartól 20.000kr -/+

Sent: Lau 30. Apr 2011 23:12
af Glazier
Output skrifaði:Lokuð heyrnatól eru miiiikið betri heldur en lokuð ;) finnst mér.

Öööm, ha ? :roll: ](*,)