Síða 1 af 1

$195 inneign á Amazon.com til sölu - SELT

Sent: Þri 05. Apr 2011 18:23
af gRIMwORLD
Er með inneignarkóða á Amazon.com til sölu að verðmæti $195

Hef ekki planað að nota hann en ef það eru einhverjir duglegir Amazon.com viðskiptavinir þá væri ég til í að losna við þennan inneignarkóða fyrir 22.000 krónur íslenskar. ($195 = 22.335,30)

Hægt að nota inneignina samhliða greiðslukortum ef fólk er að versla dýrari vörur.

Inneignin er fengin frá points.com og því alveg lögmæt.

Sendið mér PM ef þið hafið áhuga.

kv,
Kristján

SELT

Re: $195 inneign á Amazon.com til sölu/skipta fyrir ísl. krónur

Sent: Þri 05. Apr 2011 19:54
af MatroX
þú verður að lækka verðið ef þú vilt að eitthver kaupi þetta:D fólk gæti alveg eins bara verslað fyrir 195 dollar og ekki staðið í veseni að leggja inn á þig eða hvernig sem er til að spara sér eitthvern 400kr. allavega myndi ég ekki skoða þetta nema þetta væri á kannski sirka 19.000 kr í mesta lagi

Re: $195 inneign á Amazon.com til sölu/skipta fyrir ísl. krónur

Sent: Þri 05. Apr 2011 21:42
af gRIMwORLD
Já já það er þitt mat, ég er samt ekki tilbúinn að borga fólki 3000+ krónur fyrir það eitt að logga sig inn á heimabankann sinn.

Ætla að reyna að höfða til þeirra sem hugsa ekki endilega um gróðann, ég er ekki að gera það :)

Re: $195 inneign á Amazon.com til sölu/skipta fyrir ísl. krónur

Sent: Þri 05. Apr 2011 21:46
af biturk
á sennilega engin eftir að nenna að kaupa þetta á kostnaðarverði

venjulega selja menn svona á nokkrum þússurum undir

Re: $195 inneign á Amazon.com til sölu/skipta fyrir ísl. krónur

Sent: Þri 05. Apr 2011 22:48
af gRIMwORLD
Gæti hugsað mér að fara í 20.000 en ekki lægra.

Þannig að ef einhver hér hefur áhuga á því þá hafa samband.

Re: $195 inneign á Amazon.com til sölu/skipta fyrir ísl. krónur

Sent: Mið 06. Apr 2011 00:06
af Danni V8
Rennur inneignin einhverntíman út?

Re: $195 inneign á Amazon.com til sölu/skipta fyrir ísl. krónur

Sent: Mið 06. Apr 2011 00:18
af gRIMwORLD
Get ekki skilið annað á þessu http://www.amazon.com/gp/gc/ref=sv_cm_gft_0 en að þetta renni ekki út en ég er ekki búinn að lesa allt smáaletrið.

Re: $195 inneign á Amazon.com til sölu/skipta fyrir ísl. krónur

Sent: Mið 06. Apr 2011 18:37
af arnarj
Ég á svona, skipti út punktum á points.com og þetta gildir í 18 mánuði frá útgáfudegi. Sammála fyrra kommenti að það er enginn að fara að kaupa þetta nema með amk 20% afslætti. Einfaldlega of mikið vesen.

Re: $195 inneign á Amazon.com til sölu/skipta fyrir ísl. krónur

Sent: Þri 12. Apr 2011 19:07
af gRIMwORLD
arnarj skrifaði:Ég á svona, skipti út punktum á points.com og þetta gildir í 18 mánuði frá útgáfudegi. Sammála fyrra kommenti að það er enginn að fara að kaupa þetta nema með amk 20% afslætti. Einfaldlega of mikið vesen.


Gott að vita endingartímann á þessu.

Veit ekki hvort það er mikið vesen. Ég á ónotaðan kóða sem virkar á Amazon.com. Hann er því ekki tengdur neinum Amazon account'i ennþá. Hvort það sé rúmlega 4000kr vinna að móttaka email með kóða og millifæra í heimabanka er væntanlega bara eitthvað sem fólk getur gert upp við sig.

Ég er hinsvega tilbúinn að láta punktana á 20.000 krónur. Þá fær fólk strax rúmlega 2000 krónur í vasann :)