Síða 1 af 1

Canon EOS 500D, 18-55mm IS, taska og auka battery [SELD]

Sent: Þri 01. Mar 2011 00:21
af Glazier
Er með 1 árs gamla Canon EOS 500D til sölu.

Vélin: Canon EOS 500D + Auka battery (semsagt 2 stykki)
Linsa: Canon 18-55mm IS
Taska: Lowepro, kemst myndavél með kit linsu á ásamt annari lítilli.
Minniskort: 8gb

Allur pakkinn er 1 árs gamall og mjög vel farinn, held ég sé búinn að taka ca. 6-7 þús. ramma á vélina (sem telst alls ekki mikið).
Vélin er mjög vel farin, engar rispur hvorki á vél né linsu.

ATH !!
-Sel ekki staka hluti úr pakkanum.
-Engin skipti.
-Hæsta boð er 80.000 kr. (Kominn með 4 svoleiðis)
-Sendið mér skilaboð eða commentið hér á þráðinn ef þið viljið bjóða.

Ástæða sölu: Vantar pening til að setja í önnur dýr áhugamál.

Re: Canon EOS 500D, 18-55mm IS, taska og auka battery til sölu !

Sent: Þri 01. Mar 2011 00:27
af Klemmi
Fjandans fjandi, hefði vilja bjóða þér skipti... en færð frítt bump í staðin :)

Re: Canon EOS 500D, 18-55mm IS, taska og auka battery til sölu !

Sent: Þri 01. Mar 2011 01:07
af Glazier
Vó.. meiri viðbrögð hérna á vaktinni heldur en á barnaland :roll:
Kannski vegna þess að ég sagði í auglýsingunni á barnalandi að ég væri ekki þroskaheftur og fólk gæti sleppt því að láta sig dreyma um að fá pakkann á 10 þús.
Voruð tveir sem vilduð bjóða mér skipti á fyrstu 5 mín :)

Re: Canon EOS 500D, 18-55mm IS, taska og auka battery til sölu !

Sent: Þri 01. Mar 2011 01:23
af division
Getur þessi vél tekið Full HD video?

Re: Canon EOS 500D, 18-55mm IS, taska og auka battery til sölu !

Sent: Þri 01. Mar 2011 01:26
af GullMoli
division skrifaði:Getur þessi vél tekið Full HD video?


Samkvæmt http://www.dpreview.com/reviews/specs/c ... os500d.asp

1920 x 1080 (HD 20 fps), 1280 x 720 (HD 30 fps), 640 x 480 (30 fps)

Re: Canon EOS 500D, 18-55mm IS, taska og auka battery til sölu !

Sent: Þri 01. Mar 2011 01:29
af Glazier
division skrifaði:Getur þessi vél tekið Full HD video?

Já.

1080p @ 20 fps
720p @ 30 fps

Gleymdi líka að taka fram að það fylgja allir diskar, bæklingar og snúrur með (og auðvitað hleðslutæki).

Re: Canon EOS 500D, 18-55mm IS, taska og auka battery til sölu !

Sent: Þri 01. Mar 2011 20:58
af Glazier
Ætla að stelast til að bumpa þetta aðeins fyrr en reglur leyfa.. :roll:

Re: Canon EOS 500D, 18-55mm IS, taska og auka battery til sölu !

Sent: Þri 01. Mar 2011 21:00
af biturk
Glazier skrifaði:Ætla að stelast til að bumpa þetta aðeins fyrr en reglur leyfa.. :roll:

[-X

Re: Canon EOS 500D, 18-55mm IS, taska og auka battery til sölu !

Sent: Fim 03. Mar 2011 19:12
af Glazier
Var kominn með boð uppá 90.000 kr.
Sá gæji hætti við svo nú stendur hæsta boð í 85.000 kr.

Re: Canon EOS 500D, 18-55mm IS, taska og auka battery [SELD]

Sent: Mán 07. Mar 2011 17:08
af Glazier
Vélin er seld !

Fór á 95.000 kr.