Síða 1 af 1

[ÓE] Shadow of the collosus (PS2)

Sent: Þri 28. Des 2010 03:25
af icup
Jæja, nú hefur mig lengi langað til að spila þennan leik og ákvað ég bara að kaupa hann. Nenni ekki að leita að leik sem eingin búð á líklega svo ég kem hingað.

Hérna er díllinn, er tilbúinn að borga 3000 kall ef það er hægt að skuttlast með hann til mín, 2000 kr ef ég þarf að sækja hann. Er á höfuðborgarsvæðinu.

Leikurinn VERÐUR að vera með boxi og hann VERÐUR að vera í góðu ástandi.

Ef þú átt þetta einhverstaðar í skúffu og villt góðan pening fyrir þetta endilega að senda PM eða bara í þennan þráð.

Re: [ÓE] Shadow of the collosus (PS2)

Sent: Þri 28. Des 2010 11:49
af ulvur
framhaldið af ico right?
skammast mín að segja að ég spilaði þessa leiki aldrei, því eru víst alveg allsvakalegir.
svo er framhald á leiðinni skilst mér :)

Re: [ÓE] Shadow of the collosus (PS2)

Sent: Þri 28. Des 2010 11:59
af Optimus
Ég hugsa að þú fáir þennan leik aldrei á minna en 5 þúsund, allavega myndi ég ekki selja mitt eintak á minna (myndi reyndar aldrei selja það). Þetta er alveg safngripur.

Re: [ÓE] Shadow of the collosus (PS2)

Sent: Þri 28. Des 2010 14:58
af icup
Optimus skrifaði:Ég hugsa að þú fáir þennan leik aldrei á minna en 5 þúsund, allavega myndi ég ekki selja mitt eintak á minna (myndi reyndar aldrei selja það). Þetta er alveg safngripur.

Ég mun aldrey borga yfir 5000 K.r. fyrir leik sem ég get flutt inn nýan á undir 4000.

http://www.amazon.com/Shadow-Colossus-P ... pd_cp_vg_0

Re: [ÓE] Shadow of the collosus (PS2)

Sent: Þri 28. Des 2010 15:22
af Optimus
Miðað við þennan link færðu þetta aldrei heim á undir 5000 með sendingarkostnaði og gjöldum. Það er frekar dýrt að senda frá bandaríkjunum til íslands, auk þess sýnist mér ekki vera hægt að senda til íslands á þessum link. Þú gætir notað ShopUSA, en þeir þrefalda oftast verðið á tölvuleikjum. Þú gætir líka látið senda frá bretlandi ( http://www.amazon.co.uk/Shadow-of-the-C ... 325&sr=1-1 ) en þarna er kostnaður leiksins án gjalda strax yfir 5000 krónum.

Re: [ÓE] Shadow of the collosus (PS2)

Sent: Þri 28. Des 2010 16:41
af icup
Optimus skrifaði:Miðað við þennan link færðu þetta aldrei heim á undir 5000 með sendingarkostnaði og gjöldum. Það er frekar dýrt að senda frá bandaríkjunum til íslands, auk þess sýnist mér ekki vera hægt að senda til íslands á þessum link. Þú gætir notað ShopUSA, en þeir þrefalda oftast verðið á tölvuleikjum. Þú gætir líka látið senda frá bretlandi ( http://www.amazon.co.uk/Shadow-of-the-C ... 325&sr=1-1 ) en þarna er kostnaður leiksins án gjalda strax yfir 5000 krónum.

Sá ekki að þetta shippaði bara innan USA. Finnst sammt 5000+ mikið fyrir fjögura ára PS2 leik.

Re: [ÓE] Shadow of the collosus (PS2)

Sent: Þri 28. Des 2010 18:24
af Optimus
Ég er alveg sammála því að það er svolítið mikið, en það verður að viðurkennast að þetta er ekki hvaða leikur sem er.

Re: [ÓE] Shadow of the collosus (PS2)

Sent: Þri 28. Des 2010 20:47
af Viktor

Re: [ÓE] Shadow of the collosus (PS2)

Sent: Mið 29. Des 2010 18:59
af icup
Jæja, hef ákveðið að hækka verðið úr 3000/2000 í 3500/2500

Re: [ÓE] Shadow of the collosus (PS2)

Sent: Fim 30. Des 2010 18:11
af icup
Á þetta enginn?