Síða 1 af 1

Seldur: iPod Touch 2nd gen 32gb

Sent: Fim 23. Des 2010 10:12
af Danni V8
Ætla að selja iPodinn minn þar sem ég var að fá iPhone og hef því ekki þörf á iPod. Hann var keyptur nýr 2009 í Noregi.

Ástand er sæmilegt. Það er rispa á skjánum sem sést þegar það er kveikt á skjánum, en hefur hingað til ekki truflað mig. Bakhliðin er mjög illa rispuð.

Það virkar samt allt eins og það á að gera.

SELDUR

Hægt að hafa samband við mig í gegnum PM eða 867-5202

Re: Til Sölu: iPod Touch 2nd gen 32gb

Sent: Þri 28. Des 2010 03:23
af Danni V8
TTT.

Er ég að verðsetja þetta of hátt?

Endilega bjóðið það sem ykkur þykir sanngjarnt fyrir þetta!

Re: Til Sölu: iPod Touch 2nd gen 32gb

Sent: Þri 28. Des 2010 07:58
af HelgzeN
mér finnst þetta dáldið mikið miðan við að það er rispa framan á og það er komið 4th generation ...

Re: Til Sölu: iPod Touch 2nd gen 32gb

Sent: Þri 28. Des 2010 08:33
af Viktor
Mjög raunhæft verð 20-25k

http://catalog.ebay.com/Apple-iPod-touc ... -/70606864

Skoðaðu grafið.

Svona innskot:
Refurbished products could possibly be the products which are returned by the customer within the 90 day period Returns Policy of the company which sold the product, without any defect with the product. Studies show that 83% of "refurbished items" are, in fact, not broken or damaged in any way. Refurbished products are generally bench tested and certified by the authorized service centers of the company and then re-packaged, labeled as a Refurbished Product.

Re: Til Sölu: iPod Touch 2nd gen 32gb

Sent: Fim 30. Des 2010 10:28
af Danni V8
Jæja þá er nýtt verð 25k eða besta boð :D

Re: Til Sölu: iPod Touch 2nd gen 32gb

Sent: Fim 30. Des 2010 10:38
af JohnnyX
Danni V8 skrifaði:Jæja þá er nýtt verð 25k eða besta boð :D


Snilldar gripur hér á ferð! Gangi þér vel með söluna ;)

Re: Til Sölu: iPod Touch 2nd gen 32gb

Sent: Fim 30. Des 2010 15:18
af BjarkiB
Hvernig er batterí-endingin?

Re: Til Sölu: iPod Touch 2nd gen 32gb

Sent: Fim 30. Des 2010 15:35
af Danni V8
Ég slekk nú alltaf alveg á honum þegar ég er ekki að nota hann (held inni power takkanum ofaná og síðan "Slide to power off") þannig ég hann helst vel hlaðinn. En einu sinni gleymdi ég því og þá var hann alveg STEIN dauður þegar ég tók hann næst, en það voru 2 mánuðir sem ég notaði hann ekki neitt vegna þess að útvarpið í bílnum bilaði og ég hafði þar af leiðandi ekkert uppúr því að vera með hann tengdan í FM sendinn :P

Annars horði ég á Pulp Fiction í honum um daginn án þess að verða rafmagnslaus, en spáði ekkert í því hvernig staðan var á rafhlöðunni fyrir og eftir myndina... en hún er 2klst og 30mín.

Svo ég satt að segja get ekki gefið marktækt svar um hvort endingin er góð/slæm/eðlileg/óeðlileg þar sem ég einfaldlega veit það ekki.

Skelli honum bara í hleðslu núna og hef kveikt á honum stanslaust eftir að hann verður full hlaðinn og athuga hversu lengan tíma hann tekur að koma með 20% meldinguna

Re: Til Sölu: iPod Touch 2nd gen 32gb

Sent: Lau 01. Jan 2011 16:04
af Danni V8
Jæja núna eru komnir 2 sólarhringar síðan ég tók hann í hleðslu. Það er búið að vera kveikt á honum allan tímann og það er bara 1 strik farið. Tók reyndar smá tölvuspil svo það hefur tekið eitthvað af. En ég get ekki séð betur en að batterí endingin er eins og hún á að vera :happy

Re: Til Sölu: iPod Touch 2nd gen 32gb

Sent: Mið 05. Jan 2011 20:25
af Danni V8
TTT.

Re: Til Sölu: iPod Touch 2nd gen 32gb

Sent: Fim 13. Jan 2011 20:54
af Danni V8
TTT lækkað verð 20þús.

Re: Til Sölu: iPod Touch 2nd gen 32gb

Sent: Fim 13. Jan 2011 21:00
af BjarkiB
Úff þetta er freistandi, er þó að spá í að spara held ég. Frítt Bump.