Síða 1 af 2

(o)(o) Snilldar græja! Mini videocamera(lyklakippa)

Sent: Fös 03. Des 2010 19:50
af gustijr
Ekki missa af þessu!
Þetta er algjör snilld. Lyklakippa með video upptöku og myndavél sem svínvirkar!

1. Pínu lítil linsa sem sést ekki nema vita af henni.
2. Mjög skýr upptaka í lit með hljóði
3. Upptaka: AVI Format 720 x 480 High Resolution (30fps)
5. Ljósmyndir: JPEG Format 1024 x 768 pixels
6. Tengist með USB við tölvuna og ekkert mál að spila.
7. Þarf ekki að setja upp neinn hugbúnað.
8. Mjög auðvelt að taka upp
9. Innbyggð endurhlaðanleg Lithium rafhlaða.
10. Notar Micro SD kort (eins og í flestum farsímum)


Mynd
Mynd
Mynd
Mynd

Pakkinn inniheldur:
* Lyklakippuna
* USB snúra

Verð: 7500.- Skoða öll tilboð
.................................

Re: (o)(o) Snilldar græja! Mini videocamera(lyklakippa)

Sent: Fös 03. Des 2010 19:53
af biturk
hummm


væri rosalega gaman að fá að sjá video úr græjunni.........þetta er nefnilega ótrúlega sniðugt ef þetta virkar eitthvað :)

Re: (o)(o) Snilldar græja! Mini videocamera(lyklakippa)

Sent: Fös 03. Des 2010 20:06
af Klemmi
Endilega uploadaðu video-i úr þessu, mjög forvitinn :)

Re: (o)(o) Snilldar græja! Mini videocamera(lyklakippa)

Sent: Fös 03. Des 2010 20:16
af gustijr
smellti smá sýnishorni á Youtube.

http://www.youtube.com/watch?v=FQtXqlQ32Kk


Búinn að vera að leika mér með þetta í dag, snilldar græja.
Er að flytja þetta inn sjálfur svo þetta fæst ekki í neinni búð sem ég veit um.

Re: (o)(o) Snilldar græja! Mini videocamera(lyklakippa)

Sent: Fös 03. Des 2010 20:19
af Godriel
Snilld :)

Re: (o)(o) Snilldar græja! Mini videocamera(lyklakippa)

Sent: Fös 03. Des 2010 20:47
af lukkuláki
Hvað tekur þetta "stórt" minniskort 4 GB ? meira ?
Hvað getur rafhlaðan tekið lengi upp á einni hleðslu ca. ?

Re: (o)(o) Snilldar græja! Mini videocamera(lyklakippa)

Sent: Fös 03. Des 2010 20:56
af gustijr
Lýsingin:
Pixel :2000000 color CMOS
High resolution image with 2000k pixels
Min. illumination:1 Lux (min)
Support USB1.1 and USB2.0
Support AVI video format
Video decode use motion JPEG, recording for AVI format VGA (720 x 480 @ 30fps)
Recording can be sound or manually activated
Working time: 2 hours
Standby time: 250 hours
Store consumption:1GB per 40 min
Support 30 fps for 720x480
With LED indicator
Support Micro SD (TF) card: 1GB/2GB/4GB/8GB/16GB(max.)
Support Windows 98/2000/ME/XP/Vista/WIN 7
How to charge:
Please charge the mini DV before using for the first time.
1. Can be charged by connecting to PC USB port;
2. Can be charged by connecting to adapter with USB cable.

Re: (o)(o) Snilldar græja! Mini videocamera(lyklakippa)

Sent: Fös 03. Des 2010 21:20
af Klemmi
Hvað viltu fá fyrir kastalann?

Re: (o)(o) Snilldar græja! Mini videocamera(lyklakippa)

Sent: Fös 03. Des 2010 21:51
af GuðjónR
Djöfull er þetta magnað :)

Re: (o)(o) Snilldar græja! Mini videocamera(lyklakippa)

Sent: Fös 03. Des 2010 22:08
af xaim
er þessi græja seld á íslandi eða ?

Re: (o)(o) Snilldar græja! Mini videocamera(lyklakippa)

Sent: Fös 03. Des 2010 22:38
af gustijr
ekki svo ég viti, ég er að selja þetta nýtt og ónotað, bara búinn að ganga úr skugga um að þetta sé algjör snilld!!

Re: (o)(o) Snilldar græja! Mini videocamera(lyklakippa)

Sent: Fös 03. Des 2010 22:41
af Klemmi
Og áttu 1 eða fleiri stk?

Re: (o)(o) Snilldar græja! Mini videocamera(lyklakippa)

Sent: Fös 03. Des 2010 22:55
af gustijr
Bara eitt stykki núna, sem er að öllum líkindum selt... en er að fá fleiri eftir ca. viku get tekið pantanir núna.

Re: (o)(o) Snilldar græja! Mini videocamera(lyklakippa)

Sent: Lau 04. Des 2010 00:06
af ZiRiuS
Ég er til í eitt stykki (þ.e.a.s. ef þetta er ekki eitthvað scam :D) sendu mér skilaboð þegar þú ert með fleiri.

Re: (o)(o) Snilldar græja! Mini videocamera(lyklakippa)

Sent: Lau 04. Des 2010 03:27
af Viktor
Vil alls ekki vera leiðinlegur, en svona apparat kostar um 1000 kr. með sendingarkostnaði.
Link

Re: (o)(o) Snilldar græja! Mini videocamera(lyklakippa)

Sent: Lau 04. Des 2010 05:10
af Krisseh
Sallarólegur skrifaði:Vil alls ekki vera leiðinlegur, en svona apparat kostar um 1000 kr. með sendingarkostnaði.
Link


Haha, nett, ég ætla núna pottþétt að gera kaup á eitt stykki víst ef gæðinn eru svona.

*Edit: Var að enda með því að gera kaup á eitt svona stk og áætlað að þetta sé rétt kringum 1.200Kr

Re: (o)(o) Snilldar græja! Mini videocamera(lyklakippa)

Sent: Lau 04. Des 2010 05:26
af sxf
Sallarólegur skrifaði:Vil alls ekki vera leiðinlegur, en svona apparat kostar um 1000 kr. með sendingarkostnaði.
Link


Haha vandræðalegt.

Re: (o)(o) Snilldar græja! Mini videocamera(lyklakippa)

Sent: Lau 04. Des 2010 05:33
af himminn
Myndi hiklaust splæsa í eina ef þetta væri ekki svona okrað verð. Td væri alveg til í að borg 3k fyrir þetta fyrst þetta kostar 1k komið til landsins ef maður gerir þetta sjálfur.

Re: (o)(o) Snilldar græja! Mini videocamera(lyklakippa)

Sent: Lau 04. Des 2010 12:35
af TheVikingmen
Sallarólegur skrifaði:Vil alls ekki vera leiðinlegur, en svona apparat kostar um 1000 kr. með sendingarkostnaði.
Link


Awesome, Takk ;)

Re: (o)(o) Snilldar græja! Mini videocamera(lyklakippa)

Sent: Lau 04. Des 2010 12:39
af MarsVolta
Hingað komið með sendingarkostnaði og virðisaukaskatti kostar svona stykki 1060 ÍSL krónur! Gangi þér vel að fá 7500 kr fyrir þetta :'D.

Re: (o)(o) Snilldar græja! Mini videocamera(lyklakippa)

Sent: Lau 04. Des 2010 12:40
af Pandemic

Re: (o)(o) Snilldar græja! Mini videocamera(lyklakippa)

Sent: Lau 04. Des 2010 14:32
af BjarniTS
Sallarólegur skrifaði:Vil alls ekki vera leiðinlegur, en svona apparat kostar um 1000 kr. með sendingarkostnaði.
Link

Þú ert sá sorglegasti sem ég veit.
Skemmandi söluþræði með svona rugli.
Þú finnur scam á ebay og skemmir söluþræði hér með því.
Seljandinn hér búinn að prufa vöruna , selur hana hér með bræðralagsábyrgð , þýðir auglýsinguna og svarar fyrirspurnum og fær svo svona hálvitacomment eins og þú kemur með.
Farðu í tölvutek með þessar athugasemdir þínar og láttu hlægja af þér þar.

Þú skemmdir minn þráð með svona og ég ætla ekki að horfa upp á þig skemma fleiri.

Re: (o)(o) Snilldar græja! Mini videocamera(lyklakippa)

Sent: Lau 04. Des 2010 14:35
af Daz
BjarniTS skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Vil alls ekki vera leiðinlegur, en svona apparat kostar um 1000 kr. með sendingarkostnaði.
Link

Þú ert sá sorglegasti sem ég veit.
Skemmandi söluþræði með svona rugli.


Ég hélt að þetta væri tröllakomment, þangað til ég fann viðeigandi þráð :o

Það vantar verðlöggu-löggur til að verja alvöru verðlöggur.

Re: (o)(o) Snilldar græja! Mini videocamera(lyklakippa)

Sent: Lau 04. Des 2010 15:07
af biturk
BjarniTS skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Vil alls ekki vera leiðinlegur, en svona apparat kostar um 1000 kr. með sendingarkostnaði.
Link

Þú ert sá sorglegasti sem ég veit.
Skemmandi söluþræði með svona rugli.
Þú finnur scam á ebay og skemmir söluþræði hér með því.
Seljandinn hér búinn að prufa vöruna , selur hana hér með bræðralagsábyrgð , þýðir auglýsinguna og svarar fyrirspurnum og fær svo svona hálvitacomment eins og þú kemur með.
Farðu í tölvutek með þessar athugasemdir þínar og láttu hlægja af þér þar.

Þú skemmdir minn þráð með svona og ég ætla ekki að horfa upp á þig skemma fleiri.


einn sár yfir að fá ekki að okra á fólki haha
mundu að þú ert a vaktini og hér er reint að sporna við okri lol

Re: (o)(o) Snilldar græja! Mini videocamera(lyklakippa)

Sent: Lau 04. Des 2010 16:24
af Viktor
BjarniTS skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Vil alls ekki vera leiðinlegur, en svona apparat kostar um 1000 kr. með sendingarkostnaði.
Link

Þú ert sá sorglegasti sem ég veit.
Skemmandi söluþræði með svona rugli.
Þú finnur scam á ebay og skemmir söluþræði hér með því.
Seljandinn hér búinn að prufa vöruna , selur hana hér með bræðralagsábyrgð , þýðir auglýsinguna og svarar fyrirspurnum og fær svo svona hálvitacomment eins og þú kemur með.
Farðu í tölvutek með þessar athugasemdir þínar og láttu hlægja af þér þar.

Þú skemmdir minn þráð með svona og ég ætla ekki að horfa upp á þig skemma fleiri.

Jæja, Hr.HarðurBakviðSkjáinn.

Kynntu þér Ebay.

Tökum sem dæmi þennan seller: Link

Hann er búinn að selja samtals 93.117 vörur á Ebay og 99% af hans viðskiptavinum eru ánægðir með vörurnar og þjónustuna sem þeir fá.
Einnig sérðu þarna hægramegin að hann er búinn að selja 2,573 svona lyklakipputæki.

Ef þetta væri "scam" eins og þú vilt meina, þá myndu allavega 80% af þessum 2,573 kaupendum gefa þessu "Negative Feedback" og þetta myndi aldrei fá að vera inná Ebay.
Kínverjar eru vanmetnir. Þetta kostar ekki rassgat í Kína.