Síða 1 af 1

InvisibleShield fyrir HTC Desire

Sent: Þri 12. Okt 2010 20:19
af krusty
Er með tvo pakka af skjáfilmum frá Zagg fyrir HTC desire

Pakki inniheldur filmu fyrir skjáinn, og tól til þess að setja filmuna á ásamt leiðbeiningum.


Fyrstur kemur fær, er svo sem ekki búin að ákveða verð þannig að tilboð í pm takk :)

Re: InvisibleShield fyrir HTC Desire

Sent: Þri 12. Okt 2010 21:02
af Pandemic
Algjörlega tilgangslaus kaup. Glerið í skjánum er harðara en bíllyklar og smápeningar svo það þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af rispum.
Veit að það er leiðinlegt að eyðileggja sölu fyrir öðrum en þetta myth verður að deyja.

Re: InvisibleShield fyrir HTC Desire

Sent: Þri 12. Okt 2010 21:14
af krusty
tja ég verð því miður að vera ósammála :) margir sem hafa fengið rispur á iphone 4 sem eiga að vera scratch proof :) Einnig eru ekki allir sem kaupa filmur bara uppá rispivörn ég var með zagg á nexus símanum mínum og hún hjálpaði mikið með fingraför, og þegar það komu fingraför þá var mjög easy að þrífa þau af.

ég keypti bara of margar filmur þessvegna er ég að selja, en já mér finnst doldið spes að þú sért að eyðileggja þráð :) en svo sem megar allir hafa sínar skoðanir.

Re: InvisibleShield fyrir HTC Desire

Sent: Þri 12. Okt 2010 21:17
af GuðjónR
Til hvers að setja ljótar filmur á shiny síma? til að næsti eigandi geti notið þess að eiga flottari síma?

Re: InvisibleShield fyrir HTC Desire

Sent: Þri 12. Okt 2010 21:19
af Pandemic
Ég er hérna með glerplötu sem er sama gler og er í Desire og Iphone 4. Ef þú nærð að rispa það þá skal ég borða hattinn minn.
Svo er plastið svo ljótt.

Edit: Glerið er hert með quartz og er því á mohs skalanum 7 í harðleika.

Re: InvisibleShield fyrir HTC Desire

Sent: Þri 12. Okt 2010 23:58
af intenz
Pandemic skrifaði:Ég er hérna með glerplötu sem er sama gler og er í Desire og Iphone 4. Ef þú nærð að rispa það þá skal ég borða hattinn minn.
Svo er plastið svo ljótt.

Edit: Glerið er hert með quartz og er því á mohs skalanum 7 í harðleika.

Þú verður að sýna mér þetta. Ég þori annars ekki að taka plastið mitt af. :dontpressthatbutton

Re: InvisibleShield fyrir HTC Desire

Sent: Mið 13. Okt 2010 00:18
af biturk
Pandemic skrifaði:Ég er hérna með glerplötu sem er sama gler og er í Desire og Iphone 4. Ef þú nærð að rispa það þá skal ég borða hattinn minn.
Svo er plastið svo ljótt.

Edit: Glerið er hert með quartz og er því á mohs skalanum 7 í harðleika.



en hvað mig langar mikið að koma í heimsókn og rispa helv glerið og sjá þig svo borða hattin :lol:

Re: InvisibleShield fyrir HTC Desire

Sent: Mið 13. Okt 2010 01:07
af chaplin
Ég hef ekki enþá þorað að taka filmuna af mínum, ertu að segja að ég ætti að taka hana af? =P~

Re: InvisibleShield fyrir HTC Desire

Sent: Mið 13. Okt 2010 07:47
af ZoRzEr
daanielin skrifaði:Ég hef ekki enþá þorað að taka filmuna af mínum, ertu að segja að ég ætti að taka hana af? =P~


Það er fátt sem ég hata jafn mikið og að sjá fólk nota símana sína með plastinu á skjánum. Verð ofsareiður inní mér.

Re: InvisibleShield fyrir HTC Desire

Sent: Mið 13. Okt 2010 08:25
af Jon1
uff hvað ég var sár þegar ég afsannaði þetta með að glerið sé harðara en bíllykklar........ núna er ég með iphone sem er með svakalegri rispu yfir allan efrihlutan á skjánum mínum

Re: InvisibleShield fyrir HTC Desire

Sent: Mið 13. Okt 2010 08:35
af gissur1
Jon1 skrifaði:uff hvað ég var sár þegar ég afsannaði þetta með að glerið sé harðara en bíllykklar........ núna er ég með iphone sem er með svakalegri rispu yfir allan efrihlutan á skjánum mínum


#-o

Re: InvisibleShield fyrir HTC Desire

Sent: Mið 13. Okt 2010 09:18
af Jon1
gissur1 skrifaði:
Jon1 skrifaði:uff hvað ég var sár þegar ég afsannaði þetta með að glerið sé harðara en bíllykklar........ núna er ég með iphone sem er með svakalegri rispu yfir allan efrihlutan á skjánum mínum


#-o


hahahhaha sá hvernig þetta leit út þegar ég skoðaði þetta seinna. En nei ég gerði það ekki viljandi, heldur lykklar í sama vasa og síminn, eitthvað sem ég geri aldrei en útaf því að þetta voru aukalyklarnir mínir þá henti ég þeim í vitlausan vasa og síminn koma svona út

Re: InvisibleShield fyrir HTC Desire

Sent: Mið 13. Okt 2010 09:44
af krusty
:) sumir eru bara paranoid með græjurnar sínar hehe og það er bara allt í lagi :)

Re: InvisibleShield fyrir HTC Desire

Sent: Mið 13. Okt 2010 09:55
af gissur1
krusty skrifaði::) sumir eru bara paranoid með græjurnar sínar hehe og það er bara allt í lagi :)


Jájá, ég er alltaf með plastfilmurnar sem koma á símum nýjum á í viku og jafnvel lengur :roll:

Re: InvisibleShield fyrir HTC Desire

Sent: Mið 13. Okt 2010 10:50
af Tesli
ZoRzEr skrifaði:
daanielin skrifaði:Ég hef ekki enþá þorað að taka filmuna af mínum, ertu að segja að ég ætti að taka hana af? =P~


Það er fátt sem ég hata jafn mikið og að sjá fólk nota símana sína með plastinu á skjánum. Verð ofsareiður inní mér.


x2

Re: InvisibleShield fyrir HTC Desire

Sent: Mið 13. Okt 2010 16:07
af Pandemic
http://www.youtube.com/watch?v=GEvYVTauMuI

Tók smá tilraun á þetta og fékk engar rispur hvorki í tilrauninni sem ég tók áður en myndbandið var gert eða á meðan það var gert. Þetta er Titanium Leatherman með hertu stálblaði úr 154-cm stáli.
Erfitt að taka upp og rispa á sama tíma en allavegana þetta gler er það svipað og það sem er í Desire og Iphone. Ef eitthvað þá er það aðeins mjúkara og ætti að vera auðveldara að rispa.

Re: InvisibleShield fyrir HTC Desire

Sent: Mið 13. Okt 2010 16:15
af nessinn
Rosalega er þetta blurry video. Sé nánast ekkert hvað er að gerast.

Ég er með svona invisibleshield á mínum síma og þetta sést ekki. Keypti áður í carphoneshop eitthvað svona cover sem ég átti að klippa sjálfur út en það var algert drasl, var frekar skeptískur að kaupa invisibleshield en sé alls ekki eftir því í dag.

Mér finnst betra að kaupa skjávörn á símann heldur en að þurfa að kaupa nýjan síma ef skjárinn rispast.

Re: InvisibleShield fyrir HTC Desire

Sent: Mið 13. Okt 2010 18:06
af BjarniTS
http://www.youtube.com/watch?v=qg1ckCkm8YI

Hefðu átt að vera með svona filmu þarna.

Re: InvisibleShield fyrir HTC Desire

Sent: Mið 13. Okt 2010 18:15
af Pandemic
Ef þið skoðið þá kemur neisti úr hnífnum 1:16 :sleezyjoe

Re: InvisibleShield fyrir HTC Desire

Sent: Mið 13. Okt 2010 20:53
af dori
Pandemic skrifaði:Ef þið skoðið þá kemur neisti úr hnífnum 1:16 :sleezyjoe

Haha, vá, ég sá það ekki við fyrsta áhorf.

Re: InvisibleShield fyrir HTC Desire

Sent: Mið 13. Okt 2010 21:34
af Gúrú
Það er sjúklega gaman að því að við getum myndað svona harða fleti sem virka vel sem snertiskjáir \:D/

Þökk sé Biblíunni.

Re: InvisibleShield fyrir HTC Desire

Sent: Mið 13. Okt 2010 22:14
af GuðjónR

Re: InvisibleShield fyrir HTC Desire

Sent: Mið 13. Okt 2010 22:16
af gissur1
GuðjónR skrifaði:http://www.mbl.is/mm/frettir/taekni/2010/10/13/skjar_iphone_4_vidkvaemur/


Eru þeir ekki bara að reyna að selja tryggingar :?:

Re: InvisibleShield fyrir HTC Desire

Sent: Mið 13. Okt 2010 23:29
af Jim
Ég er með svona á æpodinum mínum og ekki sé ég eftir því að hafa keypt þetta... Mun betra grip er á tækinu og það koma engin fingraför.

Re: InvisibleShield fyrir HTC Desire

Sent: Mið 13. Okt 2010 23:30
af Pandemic
Harðleiki á efni er auðvitað ekki það sama og hversu högghelt það er. Sprungur í skjá koma rispum ekkert við. Það er ekkert mál að brjóta gler en að rispa það er annað mál.