Síða 1 af 1

Óska eftir active bassaboxi fyrir heimabíómagnara.

Sent: Þri 27. Júl 2010 08:46
af Valdimarorn
Góðan daginn.

Ég óska eftir bassaboxi fyrir heimabíómagnara. Best væri að hafa það active. Stærð og útlit skiptir svo sem ekki öllu. Bara að það virki vel og skili sínu. Tengist með RCA kapli.

Ef einhver á eitthvað, endilega látið mig vita. Sárvantar eitt slíkt.

Kv Val.

Re: Óska eftir active bassaboxi fyrir heimabíómagnara.

Sent: Mið 18. Ágú 2010 23:05
af prg_
Sæll ég er með svona box, vantar þig það enn þá? Ætlaði að tengja það við hátalara sem ég átti fyrir, en svo keypti ég mér heilt sett, hef því aldrei sett það í samband. Keypti það á netinu á 18 þús og er til í að láta það bara á sama seðil.

Ef ég man rétt er það Dali AW10, sem er til sölu núna í Heimilistækjum á 40 þús nýtt. Hef aldrei tengt það hjá mér en heyrði í því áður en ég keypti það.

Re: Óska eftir active bassaboxi fyrir heimabíómagnara.

Sent: Fim 19. Ágú 2010 18:42
af Valdimarorn
Sæll og takk fyrir svarið.

Ég er búinn að kaupa box. Er mjög ánægður með það. Það heitir Paradigm PDR-8 http://www.audioreview.com/cat/speakers/subwoofers/paradigm-reference/pdr-8/PRD_120356_2741crx.aspx

En Dali stendur alltaf fyrir sínu. Er boxið þitt með innbyggðum magnara?

Kv Valdimar Örn.

Re: Óska eftir active bassaboxi fyrir heimabíómagnara.

Sent: Fim 19. Ágú 2010 18:49
af prg_
Jebb, það er innbyggður magnari. Ég keypti mér einmitt Paradigm sett til að koma í stað þessa kombós, alveg bjútifúl...