Síða 1 af 1
TS Nýr Nokia 6700 classic CHROME
Sent: Mið 27. Jan 2010 17:32
af gRIMwORLD
Sælir,
Var að fá þennan fína síma í dag en þarf bara ekkert á honum að halda.
Hann er enn í innsigluðum pakkningum frá Símanum. Hægt að finna samanburðarverð og specs
hérFull ábyrgð fylgir hjá Símanum.
Til sölu á 65 þúsund- ATH! Ég svara öllum tilboðum, já/nei, ef menn hafa hæsta boð en eru yfirboðnir fá þeir tilkynningu frá mér.
- Ég ber ekki ábyrgð á því ef menn skoða ekki reglulega póstinn sinn hér á vaktinni og missa af kaupum sökum þess að þeir voru yfirboðnir.
- Sá sem á hæsta boð verður beðinn um að staðfesta það með SMS.
- Ef það kemur ekkert SMS innan þess tíma sem ákveðið er fer salan til þess sem var með næsthæsta boð.
- Ég áskil mér þann rétt að hætta við sölu ef mér finnst endanlegt boð of lágt.
Re: TS Nýr Nokia 6700 classic CHROME
Sent: Mið 27. Jan 2010 18:18
af sakaxxx
Re: TS Nýr Nokia 6700 classic CHROME
Sent: Mið 27. Jan 2010 18:26
af gRIMwORLD
Allt gott og blessað, ef menn hafa áhuga á öðrum dýrari símum hjá Símanum þá geta þeir fengið þennan á 65 þúsund hjá mér og gengið svo út í Símann og sett hann upp í annan síma á 67.900kr
Re: TS Nýr Nokia 6700 classic CHROME
Sent: Fim 28. Jan 2010 11:13
af gRIMwORLD
upp
Re: TS Nýr Nokia 6700 classic CHROME
Sent: Fim 28. Jan 2010 11:25
af kiddi
Fyrirgefðu, ég held ég sé tregur - en hvernig í ósköpunum dettur þér í hug að einhver fari að kaupa þennan síma af þér á 65.000 þegar hann kostar nýr 59.990 hjá Vodafone og 67.900 hjá Símanum? Gerirðu þér grein fyrir á hvaða vef þú ert að auglýsa? Hverju er ég að missa af? Að ætlast til að selja hlut með 3,7% afföllum m.v. Símann hlýtur bara að verðskulda bjartsýnisverðlaun ársins, sérstaklega á Vaktinni. Svo maður tali nú ekki um tímann sem færi í að sækja símann til þín og að standa í þessu rugli, þá eru þessi 3,7% ekki lengi að gufa upp.
Re: TS Nýr Nokia 6700 classic CHROME
Sent: Fim 28. Jan 2010 11:55
af hsm
Miða við að þú er ekki nýr hérna þá er ótrúlegt að þú haldir að þetta gangi upp hér á vaktinni.
Re: TS Nýr Nokia 6700 classic CHROME
Sent: Fim 28. Jan 2010 18:45
af gRIMwORLD
Svo ég stafi þetta nú ofan í ykkur.
Þennan síma fékk ég í einhverjum leik sem Síminn stóð fyrir. Sótti símann í gær. Hann er enn í innsigluðum umbúðum. Honum fylgir tveggja ára ábyrgð. Ennþá er hægt að fara með símann í búðina og skipta honum upp í annan síma en þá verðuru að fara í SÍMANN. Ég er að bjóða hann á 65 þúsund, uppskiptiverð á símanum er 67900. Instant 3000kr gróði. Kannski ekki mikið en samt eitthvað.
Ykkur er ekkert skylt að kaupa hann en ef einhver er í hugleiðingum að kaupa síma hjá Símanum sem kostar meira en 70 þúsund þá getur hann strax sparað sér 3000kr með þessum díl. Ég veit að það er lítið en ég tel það sanngjarnt þar sem síminn er bókstaflega 1. dags gamall.
Ennþá svigrúm til að anda rólega svo ég segi þetta gott í bili
Re: TS Nýr Nokia 6700 classic CHROME
Sent: Fim 28. Jan 2010 18:47
af Gúrú
?Frítt bump?
Ertu nú alveg handviss um að þú getir skilað síma sem að þú vannst hjá símanum fyrir inneign?
Re: TS Nýr Nokia 6700 classic CHROME
Sent: Fim 28. Jan 2010 18:50
af Gunnar
en afhverju ertu að selja hann 65000kr þegar það er hægt að fá hann út úr búð nýjann á 59990 hja vodafone.
INSTANT 5000kr tap....
Re: TS Nýr Nokia 6700 classic CHROME
Sent: Fim 28. Jan 2010 18:53
af Gúrú
Gunnar skrifaði:en afhverju ertu að selja hann 65000kr þegar það er hægt að fá hann út úr búð nýjann á 59990 hja vodafone.
INSTANT 5000kr tap....
Ef að einhver annar sími er ódýrari hjá Símanum og þig langar í hann, m. fyrirvara um að það sé hægt að skipta þessu út fyrir inneign...
Re: TS Nýr Nokia 6700 classic CHROME
Sent: Fim 28. Jan 2010 19:02
af gRIMwORLD
Búinn að athuga það. Hægt að skipta símanum út fyrir annan jafn dýran eða dýrari síma og borga mismun. Ekki hægt að fá krónu í peningum til baka ef símanum yrði skipt út fyrir ódýrari síma, heldur þyrfti þá að kaupa einhverja aukavöru upp í inneignina.
Re: TS Nýr Nokia 6700 classic CHROME
Sent: Mið 03. Feb 2010 00:18
af g0tlife
hahaha ef þú nærð að selja hann svona þá máttu hringja í mig og segja mér það. Held að flestir mundu frekar fara í SÍMANN sjálfan til að kaupann heldur en til þín. Þótt hann spari 3 þús þá frá akstri og öllu því þá er alltaf þægilegra að fá þetta sjálfur í hendurnar útí búð. Allavega mundi ég gera það en gangi þér vel
Re: TS Nýr Nokia 6700 classic CHROME
Sent: Sun 07. Feb 2010 23:26
af kjarnorkudori
40 þús.
Re: TS Nýr Nokia 6700 classic CHROME
Sent: Fim 06. Maí 2010 23:09
af MaggiGunn
Hehe þetta er helvíti gott
Re: TS Nýr Nokia 6700 classic CHROME
Sent: Mán 17. Maí 2010 20:33
af g0tlife
Þetta er klárlega maður með söluvit NAT ! En ég mundi frekar fara í vodaphone
Re: TS Nýr Nokia 6700 classic CHROME
Sent: Mán 17. Maí 2010 23:32
af KermitTheFrog
Skjátlast mér eða stendur 59.900 á linknum sem þú setur?
Re: TS Nýr Nokia 6700 classic CHROME
Sent: Þri 18. Maí 2010 13:19
af Daz
KermitTheFrog skrifaði:Skjátlast mér eða stendur 59.900 á linknum sem þú setur?
Upphaflegi pósturinn er síðan 27. jan
Re: TS Nýr Nokia 6700 classic CHROME
Sent: Þri 18. Maí 2010 18:50
af KermitTheFrog
Daz skrifaði:KermitTheFrog skrifaði:Skjátlast mér eða stendur 59.900 á linknum sem þú setur?
Upphaflegi pósturinn er síðan 27. jan
Jæja já!