Síða 1 af 1

[SELT] 42" Philips Plasma

Sent: Mið 13. Jan 2010 13:14
af muntok
Er með til sölu Plasma.

Ég keypti þetta tæki fyrir HM í Þýskalandi 2006 í ELKO.

Síðan þá hef ég verið með það tengt við Mac mini og skilar það 720p
gríðar vel í gegnum DVI tengið! Töluvert betur en 720p tækið hjá tengdó :D

Týpu númerið er: 42PF5520D/10 svo google away

Linkur á tækið: http://www.p4c.philips.com/cgi-bin/dcbi ... nformation


Myndir...

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Og upplýsingar...

Mynd

Mynd

Mynd

Ég veit ekki með verðið en áhugasamir hafi samband á muntok[att]gmail.com

Kv
Jón Heiðar

Re: 42" Philips Plasma

Sent: Mið 13. Jan 2010 13:41
af SteiniP
Þetta er 480p, ekki 720 samkvæmt linknum.

Re: 42" Philips Plasma

Sent: Mið 13. Jan 2010 14:23
af appel
Ekkert HDMI tengi?

Re: 42" Philips Plasma

Sent: Mið 13. Jan 2010 14:38
af muntok
SteiniP skrifaði:Þetta er 480p, ekki 720 samkvæmt linknum.


Já þetta er 480p.

En það er ekkert mál að spila 720p í gegnum DVI og gæðin eru feyki góð.


appel skrifaði:Ekkert HDMI tengi?


Nei en það er DVI sem skilar HD alveg jafnvel og HDMI en það er ekkert hljóð í gegnum það.

Re: 42" Philips Plasma

Sent: Mið 13. Jan 2010 15:22
af gardar
Hmm, hvað er fair prís fyrir svona tæki í dag? 20þús?

Re: 42" Philips Plasma

Sent: Mið 13. Jan 2010 15:35
af muntok
gardar skrifaði:Hmm, hvað er fair prís fyrir svona tæki í dag? 20þús?


Nei ég læt það ekki á 20.000.

Tækið er mjög vel með farið, sér ekkert á því og er notað örugglega langt undir meðal notkun.

Re: 42" Philips Plasma

Sent: Mið 13. Jan 2010 15:48
af kiddi
Það er tölvan/sjónvarpsflakkarinn sem hýsir 720P efnið sem minnkar það og gerir það áhorfanlegt á sjónvarpinu, kemur DVI snúrunni eða sjónvarpinu ekkert við.

En svona þér til aðstoðar, þá færðu ekki gott verð fyrir non-HD sjónvarp á stað eins og Vaktinni, stappfullum stað af HD óðum tækjanördum. Þú færð pottþétt meira fyrir sjónvarpið á Barnalandi...

Re: 42" Philips Plasma

Sent: Mið 13. Jan 2010 16:27
af muntok
kiddi skrifaði:Það er tölvan/sjónvarpsflakkarinn sem hýsir 720P efnið sem minnkar það og gerir það áhorfanlegt á sjónvarpinu, kemur DVI snúrunni eða sjónvarpinu ekkert við.

En svona þér til aðstoðar, þá færðu ekki gott verð fyrir non-HD sjónvarp á stað eins og Vaktinni, stappfullum stað af HD óðum tækjanördum. Þú færð pottþétt meira fyrir sjónvarpið á Barnalandi...


Það eru engu að síður misjöfn gæði tækja á milli, þetta fer ekki bara eftir upplausn.

Ég er HD nörd og er nýbúinn að kaupa mér tæki á yfir 300.000 kr.- . En ég vonast eftir að einhver geti nýtt sér þetta tæki því að það er ansi gott
þótt það jafnist ekki á við 1080p tæki og tæknina sem nú býðst.
Ég ætla mér sannarlega ekki að verða ríkur á því að selja tækið en læt það ekki á 20.000 kr.- þar sem í mínum huga er það aðeins meira virði en það.

En kannski endar það með því að ég auglýsi það á Barnalandi en ég ætla að reyna að komast hjá því þar sem sá vefur fær ekki margar stjörnur í kladdann hjá mér.

Endilega ef þið hafið áhuga á tækinu gerið mér þá tilboð eða spyrjið mig spurninga en ef þið hafið ekki áhuga látið þið þá endilega þráðinn vera.

Re: 42" Philips Plasma

Sent: Mið 13. Jan 2010 17:24
af Gunnar
25?

Re: 42" Philips Plasma

Sent: Mið 13. Jan 2010 17:35
af muntok
Gunnar skrifaði:25?


Kominn með hærra boð en það, takk samt fyrir

Re: 42" Philips Plasma

Sent: Mið 13. Jan 2010 18:17
af kiddi
muntok skrifaði:En ég vonast eftir að einhver geti nýtt sér þetta tæki því að það er ansi gott
þótt það jafnist ekki á við 1080p tæki og tæknina sem nú býðst.


Alveg rétt hjá þér og þetta tæki dugar frábærlega fyrir 99% alls mannkyns sem er ekki hooked á HD, ég er bara að segja að þetta 1% sem stendur eftir er akkurat hér á Vaktinni :-) Það er ekki mikið varið í Barnaland heldur finnst mér, en það er hægt að selja ALLT þar, og þar er fólk sem getur hugsað sér að borga meira heldur en hinn týpíski Vaktari, hefði ég haldið :D

Re: 42" Philips Plasma

Sent: Fim 14. Jan 2010 13:41
af Daz
Er hægt að sjá tækið "in action" ? Ég hef áhuga en vil í það minnsta sjá það virka á sem flesta kannta áður en ég myndi borga fyrir það :)

Re: 42" Philips Plasma

Sent: Fim 14. Jan 2010 13:42
af muntok
Daz skrifaði:Er hægt að sjá tækið "in action" ? Ég hef áhuga en vil í það minnsta sjá það virka á sem flesta kannta áður en ég myndi borga fyrir það :)



Tækið er að öllum líkindum selt.

Re: 42" Philips Plasma

Sent: Fim 14. Jan 2010 15:01
af Lallistori
Hvað er hæsta boð ??

Re: 42" Philips Plasma

Sent: Fim 14. Jan 2010 22:31
af andribolla
sammála,,, hvað er hæðsta boð ?

Re: 42" Philips Plasma

Sent: Fim 14. Jan 2010 22:59
af muntok
Komin nokkur boð upp á 70.000, tók því hjá þeim sem bauð fyrst, hann ætlar að sækja á morgun...