Síða 1 af 1

[ÓE] strákarnir á DVD

Sent: Sun 20. Júl 2025 01:15
af littli-Jake
Það er smá norstalgíu fílingur í gangi. Á þetta einhver og svipað dót á DVD uppí hillu og vill láta frá sér?

Re: [ÓE] strákarnir á DVD

Sent: Sun 20. Júl 2025 03:13
af Henjo
Ekki gleyma að rippa almennilega og henda því upp á góðan aðgengilegan stað. Þarf að passa uppá menningararfleið okkar íslendinga.

Re: [ÓE] strákarnir á DVD

Sent: Sun 20. Júl 2025 16:33
af littli-Jake
Henjo skrifaði:Ekki gleyma að rippa almennilega og henda því upp á góðan aðgengilegan stað. Þarf að passa uppá menningararfleið okkar íslendinga.


Hef það bak við eyrað. Skandall að þetta sé ekki aðgengilegt.

Re: [ÓE] strákarnir á DVD

Sent: Sun 20. Júl 2025 18:35
af Henjo
littli-Jake skrifaði:
Henjo skrifaði:Ekki gleyma að rippa almennilega og henda því upp á góðan aðgengilegan stað. Þarf að passa uppá menningararfleið okkar íslendinga.


Hef það bak við eyrað. Skandall að þetta sé ekki aðgengilegt.


Það er klikkað hvað allt íslenskt efni hverfur bara og er aldrei aðgengilegt. Okay, hvað getum við sagt ef þetta er bara framleitt af stöð 2 og kemur okkur ekkert við. En stór hluti af kvikmyndum og sjónvarpsefni sem er framleitt á íslandi er gert með styrk frá skattgreiðendum.

Og síðan er fjarsjóður eins og Næturvaktin bara til í 480 gæðum. Algjör skandall.