Síminn er keyptur hjá Epli og eru um 10mánuðir eftir af ábyrgð (var 2ára ábyrgð). Síminn hefur ávallt verið með skjáfilmu framan á sér og yfirleitt í hulstri.
Síminn virkar 100% og batterísendingin er góð, eina sem ég get sett út á símann er að það er pínulítil dæld aftan á símanum, maður tekur varla eftir henni.
Ástæða sölu er að mér áskotnaðist nýr sími.
Nýr svona sími kostar um 100þúsund, þannig að mér finnst sanngjarnt að biðja um 60þúsund fyrir þetta eintak.
Kassinn fylgir með, hleðslutæki og heyrnatól.
EInnig getur fylgt með glært hulstur ef vilji er fyrir hendi.
Endilega sendið mér einkaskilaboð ef það eru einhverjar spurningar
Kv. Sigurður