Síða 1 af 1
Nvidia 5090 SLI með Intel Core Ultra
Sent: Mán 10. Mar 2025 17:16
af Templar
Intel að stefna á að setja upp sérstakan stuðning fyrir 5080 og 5090 kortin með pci-Express 5 backburner SLI stuðningi á z890 kubbasettniu, virkar á alla leiki.
Skellti mér í aðal tölvuverslunina, Kísildal, og keypti því auka kort vegna yfirvonandi skorts út allt árið.
Þvílík veisla maður.
Re: Nvidia 5090 SLI með Intel Core Ultra
Sent: Mán 10. Mar 2025 17:38
af GuðjónR
Templar skrifaði:Intel að stefna á að setja upp sérstakan stuðning fyrir 5080 og 5090 kortin með pci-Express 5 backburner SLI stuðningi á z890 kubbasettniu, virkar á alla leiki.
Skellti mér í aðal tölvuverslunina, Kísildal, og keypti því auka kort vegna yfirvonandi skorts út allt árið.
Þvílík veisla maður.
Ertu búinn að kaupa tvö 5090 kort?

Re: Nvidia 5090 SLI með Intel Core Ultra
Sent: Mán 10. Mar 2025 17:45
af Templar
Það er skortur og verður skortur.
Re: Nvidia 5090 SLI með Intel Core Ultra
Sent: Mán 10. Mar 2025 17:54
af GuðjónR
Templar skrifaði:Það er skortur og verður skortur.
Ég get geymt það fyrir þig.

Re: Nvidia 5090 SLI með Intel Core Ultra
Sent: Mán 10. Mar 2025 18:19
af rostungurinn77
En ráða þau við Crysis?
Re: Nvidia 5090 SLI með Intel Core Ultra
Sent: Mán 10. Mar 2025 19:44
af EinnNetturGaur
rostungurinn77 skrifaði:En ráða þau við Crysis?
Vonandi kominn tími til

Re: Nvidia 5090 SLI með Intel Core Ultra
Sent: Mán 10. Mar 2025 20:23
af Vaktari
Hvernig kemst ég í sömu vinnu og þú? Mátt senda mér pm

Re: Nvidia 5090 SLI með Intel Core Ultra
Sent: Mán 10. Mar 2025 21:37
af gnarr
Hvaðan hefurðu það að intel ætli að styðja SLI fyrir þessi kort? Síðan hvenær er intel að grúska í nvidia drivernum?
Re: Nvidia 5090 SLI með Intel Core Ultra
Sent: Mán 10. Mar 2025 21:49
af GuðjónR
Vaktari skrifaði:Hvernig kemst ég í sömu vinnu og þú? Mátt senda mér pm

Réttara væri að spyrja hvort þú gætir fengið vinnu hjá honum.

Re: Nvidia 5090 SLI með Intel Core Ultra
Sent: Þri 11. Mar 2025 09:09
af nidur
Veisla
Re: Nvidia 5090 SLI með Intel Core Ultra
Sent: Þri 11. Mar 2025 09:14
af Moldvarpan
gnarr skrifaði:Hvaðan hefurðu það að intel ætli að styðja SLI fyrir þessi kort? Síðan hvenær er intel að grúska í nvidia drivernum?
Þetta er BS. Hann er að kaupa þetta fyrir aðra tölvu, og er að reyna æsa okkur upp, fá okkur til að googla þessa vitleysu.
Re: Nvidia 5090 SLI með Intel Core Ultra
Sent: Þri 11. Mar 2025 09:56
af GuðjónR
Moldvarpan skrifaði:gnarr skrifaði:Hvaðan hefurðu það að intel ætli að styðja SLI fyrir þessi kort? Síðan hvenær er intel að grúska í nvidia drivernum?
Þetta er BS. Hann er að kaupa þetta fyrir aðra tölvu, og er að reyna æsa okkur upp, fá okkur til að googla þessa vitleysu.
Líklega mynd sem hann fann á netinu.

Re: Nvidia 5090 SLI með Intel Core Ultra
Sent: Mið 12. Mar 2025 12:16
af Templar

- Það er ekkert SLI að koma á kubbasetið en "in theory" væri slíkt hægt.
Ég er hins vegar með 2 5090 kort frá Kísildal.
Við höfum það gott þegar kemur að tölvuverslunum, félagi minn erlendis hefur ekki tekist að fá kort þar og þau eru dýrari en í Kísildalnum og þeir voru tilbúnir að selja mér eitt auka sem að félagi minn tekur svo seinna.
Kúdos og hrós til þeirra í kísildal enda kaupi ég allt sem ég þarf þar nema þessa extreme hluti sem ekki er glóra fyrir neinn að flytja inn.
Re: Nvidia 5090 SLI með Intel Core Ultra
Sent: Mið 12. Mar 2025 13:56
af gilli666
Pælið í því að eiga nóg til og kaupa palit skjákort... TVÖ Palit skjákort!

Re: Nvidia 5090 SLI með Intel Core Ultra
Sent: Mið 12. Mar 2025 14:49
af worghal
Fyndna er að þú gætir ekki einusinni notað kort númer tvö sem physx kort

Re: Nvidia 5090 SLI með Intel Core Ultra
Sent: Mið 12. Mar 2025 15:20
af olihar

- IMG_2515.jpeg (51.56 KiB) Skoðað 1312 sinnum
Re: Nvidia 5090 SLI með Intel Core Ultra
Sent: Mið 12. Mar 2025 19:06
af Templar
gilli666 skrifaði:Pælið í því að eiga nóg til og kaupa palit skjákort... TVÖ Palit skjákort!

Ég segja þér einn betri Gilli666 Kruger að ég er að uppfæra í PALIT 5090 frá MSI 4090 Suprim X OC. Þar áður átti ég PALIT Gamerock 4090 sem á metið hérna á vaktinni en Andrikri keypti Palit kortið mitt.
@Olihar kortið er að keyra í 45-55C í Stalker 2 4k. Kaldara en mörg kort idle-a á.
Re: Nvidia 5090 SLI með Intel Core Ultra
Sent: Fim 13. Mar 2025 10:27
af olihar
Templar skrifaði:gilli666 skrifaði:Pælið í því að eiga nóg til og kaupa palit skjákort... TVÖ Palit skjákort!

Ég segja þér einn betri Gilli666 Kruger að ég er að uppfæra í PALIT 5090 frá MSI 4090 Suprim X OC. Þar áður átti ég PALIT Gamerock 4090 sem á metið hérna á vaktinni en Andrikri keypti Palit kortið mitt.
@Olihar kortið er að keyra í 45-55C í Stalker 2 4k. Kaldara en mörg kort idle-a á.
Þú póstaðir hérna á vaktinni að þú hefðir basically brætt úr tenginu á nýja kortinu (eins og margir hafa lent í annarstaðar) ef þú hefðir ekki checkað með hitamyndavél. Þetta er sturluð hönnun.
Lágmarkskrafa er aðgangur að hitamyndavél fyrir 5090, það er crazy stupid.
Re: Nvidia 5090 SLI með Intel Core Ultra
Sent: Fim 13. Mar 2025 13:34
af Templar
@olihar
AMD 9K línan standard í 95c við minnstu vinnslu, er það ekki að bræða úr sér þá allan tímann? Nei, AMD hannaði þetta svona og ég myndi ekki setja þetta fyrir mig að kaupa AMD örgjörva.
Markmið þessa innleggs míns er að láta aðra 5090 notendur vita að þeir verði að hafa nýlegan kapal eða nota millistykkið sem fylgir því þetta high end stöff hitnar, það er nákvæmlega ekkert "Crazy" við það. Sportbílar hitna meira en Skoda Octavia bílar, það er ekki fail frá framleiðenda eða neitt crazy, kallast eðlisfræði. c'est la vie.
Hvað er marmið þitt Olihar með þessu innleggi? Reyna að sannfæra aðra að kaupa ekki high end GPUs því þér finnst þau hitna of mikið? Hættur að skilja þig en þeir sem elska PC hardare líta á allt info sem gott info.
Re: Nvidia 5090 SLI með Intel Core Ultra
Sent: Fim 13. Mar 2025 13:48
af olihar
Templar skrifaði:@olihar
AMD 9K línan standard í 95c við minnstu vinnslu, er það ekki að bræða úr sér þá allan tímann? Nei, AMD hannaði þetta svona og ég myndi ekki setja þetta fyrir mig að kaupa AMD örgjörva.
Markmið þessa innleggs míns er að láta aðra 5090 notendur vita að þeir verði að hafa nýlegan kapal eða nota millistykkið sem fylgir því þetta high end stöff hitnar, það er nákvæmlega ekkert "Crazy" við það. Sportbílar hitna meira en Skoda Octavia bílar, það er ekki fail frá framleiðenda eða neitt crazy, kallast eðlisfræði. c'est la vie.
Hvað er marmið þitt Olihar með þessu innleggi? Reyna að sannfæra aðra að kaupa ekki high end GPUs því þér finnst þau hitna of mikið? Hættur að skilja þig en þeir sem elska PC hardare líta á allt info sem gott info.
Hvað ertu að bulla, það er allt annað að eitthvað sé heitt beint undir kælingu heldur en kapall sem hitnar þetta mikið.
Þetta snýst ekkert um gamlan eða nýjan kapal, millistykki eða beint í High Power kapal, Allir þessi kaplar geta klikkað útaf þvi það er ekkert check gert á köplunum eins og var alltaf gert í gömlu köplunum.
Það er enginn að tala um hvað CPU, GPU hitnar mikið, heldur kaplar og tengi. Þeir eiga ekki að bráðna, punktur.
Hættu svo að snúa öllu útur.