Síða 1 af 1

Endurnýja fjöltengi?

Sent: Fim 07. Nóv 2024 23:22
af falcon1
Ég var að rekast á umræðu á netinu um að maður ætti að endurnýja fjöltengin hjá sér á 3-5 ára fresti til að minnka líkur á bruna. Er eitthvað til í því? Ég er líka með nokkra flakkara sem eru með USA tengi og ég nota breytiklær í fjöltengi til að tengja það - einhver meiri hætta á bruna við slíkt fyrirkomulag?

Re: Endurnýja fjöltengi?

Sent: Fös 08. Nóv 2024 07:16
af rostungurinn77
Hefurðu heyrt um marga eldsvoða þar sem fjöltengi var sökudólgurinn?

Re: Endurnýja fjöltengi?

Sent: Fös 08. Nóv 2024 08:15
af ABss
Ég hef séð fjöltengi þar sem plastið er orðið svo stökk og ónýtt að það molnar í höndunum á mér. Þau voru alls ekki 10+ ára, heldur eitthvað algjört drasl. Það er hættulegt. Ofhlaðin fjöltengi eru slæm.

Re: Endurnýja fjöltengi?

Sent: Fös 08. Nóv 2024 11:36
af oliuntitled
Besta reglan þarna er að vera ekki að halda eitthvað sérstaklega mikið utanum budduna þegar kemur að þessu.
Alls ekki kaupa eitthvað rándýrt dót þar sem er augljóslega verið að svindla á þér en ekki taka það allra ódýrasta.

Hef verið að kaupa fjöltengin úr Ikea og er mjög sáttur með þau, hef ekki lent í neinu slíku sem hefur failað hjá mér.

Re: Endurnýja fjöltengi?

Sent: Fös 08. Nóv 2024 17:09
af arons4
3-5 ára fresti er óþarfi, en ef plastið er orðið stökkt þá þarf að skipta um þau, og ef klóin er orðin lausleg og auðvelt að losa hana úr þá þarf eru fjaðrirnar inní fjöltenginu orðnar lélegar og skapa lélega tengingu sem veldur hitamyndun og getur kviknað í útfrá.

Re: Endurnýja fjöltengi?

Sent: Mán 30. Jún 2025 23:08
af falcon1
Það eru 1 eða 2 fjöltengi hjá mér þar sem ljósin eru ekki stöðug heldur virðast titra. Er það eðlileg hegðun eða borgar sig að skipta þeim út?

Ég er að skoða 6x fjöltengi með rofa:

IKEA = 1490 fyrir 2 stk. https://ikea.is/is/products/heimaskrifs ... t-00412015
Byko = 4125 fyrir 1 stk. https://byko.is/vara/fjoltengi-6x-mrofa-2m-hvitt-205933
Elko = 1895 fyrir 1 stk. https://elko.is/vorur/nedis-fjoltengi-m ... SOC630F2WT

Ég skil ekki alvg hvers vegna Byko fjöltengið kostar svona miklu meira, getur einhver útskýrt það?

Re: Endurnýja fjöltengi?

Sent: Þri 01. Júl 2025 09:36
af ejm
Byko fjöltengið er með veggfestingum, s.s. hægt að skrúfa í borð eða vegg, eins er Byko týpísk go-to búð ef maður er í einhverjum framkvæmdum, svo þeir leyfa sér að okra á ansi mörgu.
Ikea er náttúrulega þekkt fyrir quality in bulk, svo ég myndi allan tímann taka Ikea fjöltengin nema ég væri með einhverjar sér-pælingar (veggfesting eða eitthvað þess háttar).
Annars er þetta misjafnt með fjöltengi. Ryk getur sest í þau, og eins getur plastið orðið stökkt. Það borgar sig að yfirfara reglulega og skipta bara út ef eitthvað er brotið eða dodgy.
Ég man svosem ekki eftir eldsvoða sem hefur verið beint út af fjöltengi, líklegra er að það slái hreinlega út ef rafmagn er nýlegt, og þegar of mikill straumur er dreginn í gegnum þau (var ekki einhver að hlaða rafbíl í gegnum eitthvað daisychaining skítamix) þá er ekki við fjöltengið að sakast.

Re: Endurnýja fjöltengi?

Sent: Þri 01. Júl 2025 16:29
af raggos
Mér sýnist á öllu að þessi ráðlegging eigi aðallega við um fjöltengi sem innihalda "surge protection" (yfirálagsvörn / spennuvörn). Slíkar varnir minnka getu sínu með tímanum til að verja þau tæki sem eru tengd við fjöltengið. Svo ráðleggingin um útskiptingu er til þess að vörnin haldi áfram að virka sem skyldi.
Venjuleg fjöltengi með engum slíkum varnarbúnaði endast nokkurn veginn eins lengi og maður vill svo lengi sem þau fyllist ekki af drullu.

Re: Endurnýja fjöltengi?

Sent: Mið 02. Júl 2025 09:28
af mikkimás
rostungurinn77 skrifaði:Hefurðu heyrt um marga eldsvoða þar sem fjöltengi var sökudólgurinn?


Ekki mörg, en það var eitt í fyrra:

https://www.visir.is/g/20242653849d/ein ... kki-vaknad

Re: Endurnýja fjöltengi?

Sent: Fim 03. Júl 2025 14:06
af gRIMwORLD
Fjöltengi ætti að endurnýja þar sem plastið í þeim getur brotnað niður eins og hvert annað plast. Fyrir tveimur árum var ég að aðstoða fyrirtæki út í bæ sem var með tölvubúnað inn á lager hjá sér og skein sólin inn um glugga ( í gegnum gardínur sem ávallt voru fyrir ) og þegar ég var að taka tölvuna og netbúnaðar úr sambandi við fjöltengið þá molnaði það í höndunum á mér. Ég var heppinn af fá ekki straum þar sem hinn endinn var enn í sambandi.

Ég get ekki sagt nákvæmlega hversu gamalt þetta fjöltengi var, líklegast 12-15+ ára gamalt en þetta innsiglaði það fyrir mér, ég er ekkert að halda upp á gömul fjöltengi. Sérstaklega ekki þau sem hafa fengið að baða sig í sólarljósi.