Síða 1 af 1

Besti lóðari í sveitinni?

Sent: Þri 29. Okt 2024 16:17
af traustitj
Er að spá hvort það sé einhver hérna sem er með sérstaklega góða hæfileika í að lóða.

Málið er að HDMI tengið á PS5 vélinni hjá frænda mínum er dáið og það fer ekki á milli mála er maður skoðar þetta á youtube að þetta er risastórt vandamál á þessum vélum.

Er einhver sem treystir sér í að skipta um tengi? Þá koma auka spurningar eins og á ég að panta auka HDMI tengi eða er þetta hreinlega eitthvað sem liggur á lager hjá aðilum hérna?

Lítur ekki út fyrir að vera stórmál, bara að eiga góðar græjur, ég á ekki góðar græjur í svona.

Re: Besti lóðari í sveitinni?

Sent: Þri 29. Okt 2024 16:34
af Semboy
traustitj skrifaði:Er að spá hvort það sé einhver hérna sem er með sérstaklega góða hæfileika í að lóða.

er þetta þess virði að láta einhvern gera þetta? Ef þetta væri mitt vandamál ég mundi sjálfur gera þetta, t.d sími sem ég átti skjárin brotið. Fór að googla og youtuba hvernig á að framkvæma þetta. Og mér tókst það. Og ef ég treysti mér ekki í svona þá þyðir einfaldlega kaupa nýtt tæki, á bátt að treysta þriðja aðila til að gera verkið. Hef lent í t.d vesen þar sem ég keypti mér sirka 600þús heimabío sett og tryggingar fengu þríðja aðila til að gera við þetta og því miður hljómgæðið var ekki eins og þetta var.

Re: Besti lóðari í sveitinni?

Sent: Þri 29. Okt 2024 16:35
af Hausinn
Lóðari hérna með reynslu við það að lóða SMD rásir. Ég gæti sennilegast reddað þessu ef að þú útvegar nýtt tengi, en vil ekki fullyrða neitt fyrr en ég sé skemmdina.

Re: Besti lóðari í sveitinni?

Sent: Þri 29. Okt 2024 21:10
af olihar
Er ekki Sónn Sony verkstæði landsins.

http://www.sonn.is/index.html

Re: Besti lóðari í sveitinni?

Sent: Þri 29. Okt 2024 22:25
af Opes
SmartFix, eru með mjög góðan búnað í component level viðgerðir.

Re: Besti lóðari í sveitinni?

Sent: Þri 29. Okt 2024 22:34
af andriki
traustitj skrifaði:Er að spá hvort það sé einhver hérna sem er með sérstaklega góða hæfileika í að lóða.

Málið er að HDMI tengið á PS5 vélinni hjá frænda mínum er dáið og það fer ekki á milli mála er maður skoðar þetta á youtube að þetta er risastórt vandamál á þessum vélum.

Er einhver sem treystir sér í að skipta um tengi? Þá koma auka spurningar eins og á ég að panta auka HDMI tengi eða er þetta hreinlega eitthvað sem liggur á lager hjá aðilum hérna?

Lítur ekki út fyrir að vera stórmál, bara að eiga góðar græjur, ég á ekki góðar græjur í svona.

hef verið að taka þetta að mér, á til tengi og búin að gera þetta við 10 vélar nú þegar, sendu pm ef þú hefur áhuga

Re: Besti lóðari í sveitinni?

Sent: Mið 30. Okt 2024 11:10
af kusi
Er þetta vandamál við allar gerðir af PS5 vélum eða bara einhverjar ákveðnar?

Re: Besti lóðari í sveitinni?

Sent: Mið 30. Okt 2024 11:54
af Fennimar002
Þeir hjá Kísildal eru byrjaðir að taka að sér viðgerðir á PS5 vélum. Mæli með að kíkja til þeirra.

Re: Besti lóðari í sveitinni?

Sent: Mán 18. Nóv 2024 10:36
af traustitj
Andríki gerði þetta fyrir frænda minn og virkar mjög vel, mjög ánægður með þetta.

Re: Besti lóðari í sveitinni?

Sent: Mán 18. Nóv 2024 10:37
af traustitj
kusi skrifaði:Er þetta vandamál við allar gerðir af PS5 vélum eða bara einhverjar ákveðnar?

Eftir smá googl, þá virðist þetta vera talsvert vandamál með PS5 vélarnar. En hvort þetta er ákveðið tímabil eða ekki, það er ég ekki sjá neitt um. Virðist bara vera ansi stórt vandamál.