Síða 1 af 1

5700x3d

Sent: Þri 01. Okt 2024 11:11
af Archdukemelon
Jæja var að spá hvort það væri eitthvað vit í því að panta 5700x3d af Ali, eru eitthverjir sem eru búnir að prófa og geta ráðlagt mér?

Re: 5700x3d

Sent: Þri 01. Okt 2024 11:39
af worghal
:sleezyjoe þú færð allavega eitthvað merkt 5700x3d en það er ekkert bókað að kubburinn sé 5700x3d :sleezyjoe

Re: 5700x3d

Sent: Þri 01. Okt 2024 11:49
af GuðjónR
Aldrei góð hugmynd að panta tölvubúnað af AliX.

Re: 5700x3d

Sent: Þri 01. Okt 2024 12:52
af Archdukemelon
GuðjónR skrifaði:Aldrei góð hugmynd að panta tölvubúnað af AliX.


Skal alveg játa ég var þarna líka, en hef svo pantað bæði 11700k og X99 með Xeon örgjöva og bæði reyndust genuine þannig þess vegna spyr ég :)

Re: 5700x3d

Sent: Þri 01. Okt 2024 12:53
af Archdukemelon
worghal skrifaði::sleezyjoe þú færð allavega eitthvað merkt 5700x3d en það er ekkert bókað að kubburinn sé 5700x3d :sleezyjoe



haha já það er einmitt hugsuninn mín, hvað maður fengi í raun og veru, gamlan AM4 örgjöva eða eitthvað.

Re: 5700x3d

Sent: Þri 01. Okt 2024 14:01
af olihar
Aldrei, aldrei… nýbúið að vera dæmi um hvað eru nánast 100% líkur að gerist hérna á spjallinu.

Þú færð í besta falli notaðan(sem er ekkert neikvætt svo sem), versta falli skraut upp í hillu.

Finnst þér verðmiðinn hérna heima upp á 35þ fyrir nýjan svona svakalegt? (Og tala nú ekki um díl fyrir notaðan)

Re: 5700x3d

Sent: Þri 01. Okt 2024 14:14
af litli_b
olihar skrifaði:Aldrei, aldrei… nýbúið að vera dæmi um hvað eru nánast 100% líkur að gerist hérna á spjallinu.


Það var ég, er það ekki? :lol:
Alveg samálla, ekki kaupa af Ali. 90% Líkur á að þetta sé falsað eða druggað. Fékk fartölvu sem var með skjákort sem var greinilega ætlað fyrir teslu bílana???
Bara ekki gera það, örrugast að kaupa á íslandi, þar sem verðin eru ekkert mikið betri á amazon þegar maður tekur toll og flutnings kostnað í talið.

Re: 5700x3d

Sent: Þri 01. Okt 2024 16:31
af Viggi
Hef keypt china branded m.2 ssd diska fyrir torrent/steam og hdd backup box og ýmislegt annað og virkar flest allt fínt mörgum árum seinna

Ali er bara samansafn af mörgum seljendum. Lesa vel dóma. Versla við búðir sem hafa verið opnar í góðan tíma og svo lesa sig til um draslið

Re: 5700x3d

Sent: Þri 01. Okt 2024 16:34
af olihar
Viggi skrifaði:Hef keypt china branded m.2 ssd diska fyrir torrent/steam og hdd backup box og ýmislegt annað og virkar flest allt fínt mörgum árum seinna

Ali er bara samansafn af mörgum seljendum. Lesa vel dóma. Versla við búðir sem hafa verið opnar í góðan tíma og svo lesa sig til um draslið


Eru þeir það mikið ódýrari þegar 2TB Samsung diskur er kannski að kosta $100 hjá BH.

Hvað er 2TB fake knock off diskur að kosta með sendingu frá Ali.

Re: 5700x3d

Sent: Þri 01. Okt 2024 16:39
af Viggi
olihar skrifaði:
Viggi skrifaði:Hef keypt china branded m.2 ssd diska fyrir torrent/steam og hdd backup box og ýmislegt annað og virkar flest allt fínt mörgum árum seinna

Ali er bara samansafn af mörgum seljendum. Lesa vel dóma. Versla við búðir sem hafa verið opnar í góðan tíma og svo lesa sig til um draslið


Eru þeir það mikið ódýrari þegar 2TB Samsung diskur er kannski að kosta $100 hjá BH.

Hvað er 2TB fake knock off diskur að kosta með sendingu frá Ali.


Hvorki fake né knock off bara brand sem er minna þekt hér í vestrinu

kostaði eithvað 12k hingað kominn minnir mig

https://www.kingspec.com/

Re: 5700x3d

Sent: Þri 01. Okt 2024 16:45
af olihar
Fletti upp nokkrum af þessum Kingspec diskum virðast vera á 17-20þ plús vsk Fyrir t.d. 2TB M.2, svo það er ódýrara eða sama verð að kaupa alvöru diska t.d. Frá BH.

Held valið sé mjög auðvelt þarna.

Re: 5700x3d

Sent: Mið 02. Okt 2024 08:38
af Dropi
Minn Crucial P5 Plus 2TB Nvme (Gen 4x4) kostaði innan við 18k hingað kominn nýr frá UK í fyrrasumar, keyptur af Ebay. Verð hafa aðeins hækkað síðan í fyrra en það er engin ástæða til að kaupa no-name diska. Örgjörvi virkar eða virkar ekki (oftast), getur mælt það tiltölulega snögglega þannig að ég er ekki að kippa mér upp við 5700X3D af Ali, enda keypt góð móðurborð í heimaserver þar. En SSD diskar geta verið meira ves, getur lent í hauga veseni ef það er búið að eiga við firmware til að blöffa eitthvað.