Síða 1 af 2

Vesen með gpu drivers [Útkljáð.]

Sent: Mið 11. Sep 2024 17:53
af litli_b
Keypti mér fartölvu af Aliexpress, sem var slæm hugmynd sem þarf ekki að hugsa tvisvar út í, en ég treysti þessu. "Akpad" whatever, N95 örri, 16 gigs og 512 gb. Það sem seldi þetta fyrir mér var gtx 1060 skjákotið. Frá því sem ég skil er þetta það kort, nema bara eitthvað hella modified. Gpu-z kannast ekki við það, nvidia softwares vita ekki hvað þetta er heldur. Engir offical drivers virka, bara kínverksu driverarnir sem fylgdu með, gerðir af "Tcleehcd Corporation". Greinilega selja þeir repurposed mining kort eða eitthvað, ég vann varla neitt um þetta. Skjákortið virkar, alveg frekar vel líka. En bara í þeim leikjum sem virka á þessu eldgömlu drivers. Svo, ég þarf ráð yfir því hvernig ég get reynt að salvagea þetta. Eru einhverjir drivers sem ég gæti notað, modifiað eða forcað til að virka með þessu? Ég er að renna úr hugmyndum, en ekki þrjósku. Er að reyna að láta myndir fylgja með

Re: Vesen með gpu drivers

Sent: Mið 11. Sep 2024 18:11
af olihar
Úff ég myndi ekki snerta svona með löngu priki.

Re: Vesen með gpu drivers

Sent: Mið 11. Sep 2024 18:16
af Uncredible
Má ég spurja hvað þú borgaðir fyrir þessa fartölvu?

Og hvað var það við GTX1060 sem kom út fyrir 8 árum síðan fékk þig til að kaupa þessa fartölvu fram yfir einhvað nýrra og mun afkastabetra?

Re: Vesen með gpu drivers

Sent: Mið 11. Sep 2024 19:59
af litli_b
Uncredible skrifaði:Má ég spurja hvað þú borgaðir fyrir þessa fartölvu?

Og hvað var það við GTX1060 sem kom út fyrir 8 árum síðan fékk þig til að kaupa þessa fartölvu fram yfir einhvað nýrra og mun afkastabetra?

40.000, +8þ með shipping plus toll. Mér fannst þetta fínn díll miðað við budgetið mitt, er alltaf til í að eyða alveg dágóðum en ekki of miklum pening í risky hluti. Með gtx 1060, ég hugsaði "Hey, skjákort = Tölvuleikir." Nýrra og betra var ekki eitthvað sem ég gat fundið á ásættanlegu verði, á mínum mörkum allavega, en hefði bara átt að kaupa notað núna þegar ég hugsa út í það.

Re: Vesen með gpu drivers

Sent: Mið 11. Sep 2024 20:06
af olihar
Þú s.s. Borgaðir 60þ fyrir þessa eldgömlu tölvu sem þarf un-signed drivera til að virka?

Sem þú hefðir getað keypt á sama eða minna hérna heima.

Hljómar aðeins meira eins ig þú hafir fallið fyrir scam-i á Ali.

Re: Vesen með gpu drivers

Sent: Mið 11. Sep 2024 20:12
af nonesenze
ýttu á lookup takkan þarna á gpu-z. og linkaðu því sem kemur upp

https://drive.google.com/uc?export=down ... btLKFtfIuq
prufa þetta?

Re: Vesen með gpu drivers

Sent: Mið 11. Sep 2024 20:16
af litli_b
nonesenze skrifaði:ýttu á lookup takkan þarna á gpu-z. og linkaðu því sem kemur upp

Hef reynt það. Surprisingly kemur bara ekkert upp minnir mig. Það er eins og þetta sé ekki til.

Re: Vesen með gpu drivers

Sent: Mið 11. Sep 2024 20:17
af nonesenze

Re: Vesen með gpu drivers

Sent: Mið 11. Sep 2024 20:20
af litli_b
olihar skrifaði:Þú s.s. Borgaðir 60þ fyrir þessa eldgömlu tölvu sem þarf un-signed drivera til að virka?

Sem þú hefðir getað keypt á sama eða minna hérna heima.

Hljómar aðeins meira eins ig þú hafir fallið fyrir scam-i á Ali.

48þ, ekki 60þ. Ég get alveg viðurkennt að ég féll fyrir þessu, en er samt alveg dáldið ósamálla því að það væri mikið betra til. Ég elska pening en hata að eyða mikið af því á einum hlut. Það eina annað sem ég hefði getað fengið á þessu verði væru einhverjar fartölvur sem eru 3-5 ára gamlar, super basic og með sambærilega mikinn grafíkskraft og gt710 kort.

En hey, get spilað nýja legend of zelda á þessu, og get þá hent leikjum upp á sjónvarpið án vesens.

Re: Vesen með gpu drivers

Sent: Mið 11. Sep 2024 20:22
af litli_b
nonesenze skrifaði:https://drive.google.com/uc?export=download&confirm=no_antivirus&acknowledgeAbuse=true&id=1o8mkToO0ssKjTdF-C90LjKbtLKFtfIuq

edit .. svona sem ég fljótlega fann
https://github.com/arutar/FrankenDriver

Æ já, þessir. Þetta var einmitt gert til að hjálpa þeim sem fengu þetta frá TEchleed eða hvaða bullshit nafn þeir hafa. Er búinn að reyna að nota þetta, ekki mikill heppni so far. Þarf að modifia inf files, eða eitthvað þannig, og það eiginlega gengur aldrei. Spurning hvort ég reyni að heyra í gæjanum og fá hann til að hjálpa mér?

Re: Vesen með gpu drivers

Sent: Mið 11. Sep 2024 20:29
af olihar
litli_b skrifaði:
olihar skrifaði:Þú s.s. Borgaðir 60þ fyrir þessa eldgömlu tölvu sem þarf un-signed drivera til að virka?

Sem þú hefðir getað keypt á sama eða minna hérna heima.

Hljómar aðeins meira eins ig þú hafir fallið fyrir scam-i á Ali.

48þ, ekki 60þ. Ég get alveg viðurkennt að ég féll fyrir þessu, en er samt alveg dáldið ósamálla því að það væri mikið betra til. Ég elska pening en hata að eyða mikið af því á einum hlut. Það eina annað sem ég hefði getað fengið á þessu verði væru einhverjar fartölvur sem eru 3-5 ára gamlar, super basic og með sambærilega mikinn grafíkskraft og gt710 kort.

En hey, get spilað nýja legend of zelda á þessu, og get þá hent leikjum upp á sjónvarpið án vesens.

Sagðir þú ekki 48 + vsk (toll)

En ég skil ekki alveg, þú talar um að þú hefðir bara getað fengið 3-5 ára gamalt dót fyrir sama pening. En kaupir tölvu sem er í raun meira en 8 ára gömul. Ég skil ekki alveg.

Re: Vesen með gpu drivers

Sent: Mið 11. Sep 2024 20:39
af litli_b
olihar skrifaði:

Ég skal vera alveg hreinskilinn. Ég sá skjákort og það var allt sem ég þurfti að heyra. Líka, 1060 er ekkert það gamalt. Ok það er víst það gamalt en það er samt ennþá mjög fínn kostur til að hafa.
Sko, ekki til þess að vera leiðinlegur en ég er ekki að nenna að sita hérna og vera barinn af kennsluninni þinni, helst væri ég bara til í að sjá hvort einhver hérna veit hvað er hægt að gera. (sem er mjög ólíklegt.) Svo ef þú ert að plana að sita hérna og skamma mig meira máttu hreinlega bara fara.

Re: Vesen með gpu drivers

Sent: Mið 11. Sep 2024 20:58
af Daz
Miðað við vesenið myndi ég giska á að þetta sé scam GPU. Sem sagt lélegri GPU með hackaðan BIOS. Gætir mögulega staðfest það með að taka tölvuna í sundur og lesa serial númer af chippinu sjálfu.

Re: Vesen með gpu drivers

Sent: Mið 11. Sep 2024 20:59
af litli_b
Daz skrifaði:Miðað við vesenið myndi ég giska á að þetta sé scam GPU. Sem sagt lélegri GPU með hackaðan BIOS. Gætir mögulega staðfest það með að taka tölvuna í sundur og lesa serial númer af chippinu sjálfu.

Hérna er almennileg hugmynd. Trúi því ekki að ég datt þetta ekki í sundur fyrr. Ég reyni þetta þegar ég er byrjaður að missa von. Get þá minnsta kosti fundið drivers eða eitthvað.

Re: Vesen með gpu drivers

Sent: Mið 11. Sep 2024 22:02
af olihar
Daz skrifaði:Miðað við vesenið myndi ég giska á að þetta sé scam GPU. Sem sagt lélegri GPU með hackaðan BIOS. Gætir mögulega staðfest það með að taka tölvuna í sundur og lesa serial númer af chippinu sjálfu.

Þetta er einmitt það sem ég segi hérna að ofan, þetta er s.s. GPU sem aldrei virkaði frá verksmiðju. Það er mikið talað um svona Scam á Ali á netinu.

Ég læt þetta duga þar sem ég má víst ekki comment-a lengur.

Re: Vesen með gpu drivers

Sent: Mið 11. Sep 2024 23:37
af IceThaw
litli_b skrifaði:
Uncredible skrifaði:Má ég spurja hvað þú borgaðir fyrir þessa fartölvu?

Og hvað var það við GTX1060 sem kom út fyrir 8 árum síðan fékk þig til að kaupa þessa fartölvu fram yfir einhvað nýrra og mun afkastabetra?

40.000, +8þ með shipping plus toll. Mér fannst þetta fínn díll miðað við budgetið mitt, er alltaf til í að eyða alveg dágóðum en ekki of miklum pening í risky hluti. Með gtx 1060, ég hugsaði "Hey, skjákort = Tölvuleikir." Nýrra og betra var ekki eitthvað sem ég gat fundið á ásættanlegu verði, á mínum mörkum allavega, en hefði bara átt að kaupa notað núna þegar ég hugsa út í það.

...

olihar skrifaði:
litli_b skrifaði:
olihar skrifaði:Þú s.s. Borgaðir 60þ fyrir þessa eldgömlu tölvu sem þarf un-signed drivera til að virka?

Sem þú hefðir getað keypt á sama eða minna hérna heima.

Hljómar aðeins meira eins ig þú hafir fallið fyrir scam-i á Ali.

48þ, ekki 60þ. Ég get alveg viðurkennt að ég féll fyrir þessu, en er samt alveg dáldið ósamálla því að það væri mikið betra til. Ég elska pening en hata að eyða mikið af því á einum hlut. Það eina annað sem ég hefði getað fengið á þessu verði væru einhverjar fartölvur sem eru 3-5 ára gamlar, super basic og með sambærilega mikinn grafíkskraft og gt710 kort.

En hey, get spilað nýja legend of zelda á þessu, og get þá hent leikjum upp á sjónvarpið án vesens.

Sagðir þú ekki 48 + vsk (toll)

En ég skil ekki alveg, þú talar um að þú hefðir bara getað fengið 3-5 ára gamalt dót fyrir sama pening. En kaupir tölvu sem er í raun meira en 8 ára gömul. Ég skil ekki alveg.

...

olihar skrifaði:
Daz skrifaði:Miðað við vesenið myndi ég giska á að þetta sé scam GPU. Sem sagt lélegri GPU með hackaðan BIOS. Gætir mögulega staðfest það með að taka tölvuna í sundur og lesa serial númer af chippinu sjálfu.

Þetta er einmitt það sem ég segi hérna að ofan, þetta er s.s. GPU sem aldrei virkaði frá verksmiðju. Það er mikið talað um svona Scam á Ali á netinu.

Ég læt þetta duga þar sem ég má víst ekki comment-a lengur.

Er ekki bara allt í lagi að lesa vel yfir það sem sagt var áður. Hann er að leita ráða og hjá sumum skiptir hver þúsundkall máli - já ég veit að stundum getur það orðið dýrkeyptara að reyna spara sér, núna er þetta búið og gert. Þarna geta allir dregið lærdóm af þessu sem ekki vita betur (nei það vita ekki allir betur þó margir hér séu mjög klárir).

Re: Vesen með gpu drivers

Sent: Fim 12. Sep 2024 00:11
af jonfr1900
Það besta sem ég fæ upp. Miðað við upplýsingar hérna er GPU frá árinu 2016.

NVIDIA GP106 (techpowerup.com)

Hversu rétt það er veit ég ekki. Þar sem það er hægt að láta firmware ljúga til um hvað er raunverulega í tölvunni.

Re: Vesen með gpu drivers

Sent: Fim 12. Sep 2024 08:29
af Daz
IceThaw skrifaði:Er ekki bara allt í lagi að lesa vel yfir það sem sagt var áður. Hann er að leita ráða og hjá sumum skiptir hver þúsundkall máli - já ég veit að stundum getur það orðið dýrkeyptara að reyna spara sér, núna er þetta búið og gert. Þarna geta allir dregið lærdóm af þessu sem ekki vita betur (nei það vita ekki allir betur þó margir hér séu mjög klárir).

Verð hlutar er heildarverð með öllum gjöldum, ekki bara upphaflegt verð úr búð. Í þessu tilfelli er gott að reyna að draga það fram til að hægt sé að læra meira af vandræðum OP en bara GPU tengt.
Hér má t.d. læra hvað gott tilboð á AliExpress getur kostað þegar það er komið í hendurnar á manni (hér í það minnsta 60 þúsund). Í samanburði við hvað væri hægt að kaupa notað hérna á vaktinni þá eru þetta ekkert endilega góð kaup, burtséð frá GPU vandræðum.

jonfr1900 skrifaði:...

GP106 er GTX1060, það stendur á síðunni sem þú linkaðir á. Svo þetta eru ekki nýjar upplýsingar.

Re: Vesen með gpu drivers

Sent: Fim 12. Sep 2024 14:23
af IceThaw
Daz skrifaði:
IceThaw skrifaði:Er ekki bara allt í lagi að lesa vel yfir það sem sagt var áður. Hann er að leita ráða og hjá sumum skiptir hver þúsundkall máli - já ég veit að stundum getur það orðið dýrkeyptara að reyna spara sér, núna er þetta búið og gert. Þarna geta allir dregið lærdóm af þessu sem ekki vita betur (nei það vita ekki allir betur þó margir hér séu mjög klárir).

Verð hlutar er heildarverð með öllum gjöldum, ekki bara upphaflegt verð úr búð. Í þessu tilfelli er gott að reyna að draga það fram til að hægt sé að læra meira af vandræðum OP en bara GPU tengt.
Hér má t.d. læra hvað gott tilboð á AliExpress getur kostað þegar það er komið í hendurnar á manni (hér í það minnsta 60 þúsund). Í samanburði við hvað væri hægt að kaupa notað hérna á vaktinni þá eru þetta ekkert endilega góð kaup, burtséð frá GPU vandræðum.

OP tekur fram að verðið hingað komið var 48þ, ekki 60þ, endilega lestu, það munar um þúsundkalla og hvað þá 12þ, virðist vera mikil lesblinda á þessa blessuðu peninga sérstaklega kannski fyrir þá sem munar minna um það.

Re: Vesen með gpu drivers

Sent: Fim 12. Sep 2024 14:49
af olihar
IceThaw skrifaði:

40+8+innflutningsgjöld var talað um… anyways… kannski með vsk númer. Ég veit ekki neitt.

En þetta skiptir kannski engu máli þar sem virðist vera að varan sé fake, sama hvað hún kastaði lítið/mikið. Svo ég mæli með að sækja endurgreiðslu til AliExpress, þeir eiga að taka á svona málum.

Re: Vesen með gpu drivers

Sent: Fim 12. Sep 2024 14:56
af Daz
IceThaw skrifaði:...
OP tekur fram að verðið hingað komið var 48þ, ekki 60þ, endilega lestu, það munar um þúsundkalla og hvað þá 12þ, virðist vera mikil lesblinda á þessa blessuðu peninga sérstaklega kannski fyrir þá sem munar minna um það.

litli_b skrifaði:
Uncredible skrifaði:Má ég spurja hvað þú borgaðir fyrir þessa fartölvu?
...

40.000, +8þ með shipping plus toll.

40.000 + 8.000 + "tollur" hljómar eins og 60.000 í mín eyru. Eins og olihar segir líka.

Eins og þú segir þessar, upphæðir skipta máli til dæmis ef einhver hraðles þennan póst og heldur að hægt sé að gera ódýr kaup á fartölvu á AliExpress

Re: Vesen með gpu drivers

Sent: Fim 12. Sep 2024 15:22

.

Það er bara 1 plús, 40 + 8, þar sem 8 er (“með”) shipping plus tollur, op tekur fram 48þ aftur seinna. En já að sjálfsögðu skiptir þetta ekki máli, driver support minnkar frá release date og eftir 8 ár er ólíklegt að það komi update sem gagnast eða update yfir höfuð. Það komu margar útgáfur af 1060, ein þeirra var td 5gb útgáfa gerð fyrir kínverskan markað, átti að vera cheap og íhlutir því í samræmi við það. Það að googla gp160 útgáfuna sem um ræðir gefur manni lítið (er þetta mobile útgáfa td?, 3gb 4gb 5gb 6gb?).

Besta sem hægt er að gera úr þessu er að spila það sem “nýjasti” driverinn getur keyrt, læra smá af þessu og mögulega leita ráðlegginga áður en kostnaður er lagður út ✌️

Re: Vesen með gpu drivers

Sent: Fim 12. Sep 2024 19:23
af litli_b
Ég tók fartölvuna í sundur. Held að þetta sé gtx 1050 ti eitthvað? Chatgpt sagði mér það allavega þegar ég sýndi því þessa mynd, og google leit er samálla. Þarf bara að finna út úr því af hverju engir drivers vilja downloadast.

Re: Vesen með gpu drivers

Sent: Fim 12. Sep 2024 19:47
af olihar
Þetta já virðist vera Engineering sample af GTX 1050 TI (Spurning hvort þetta sé Max-Q þar sem Clock passar við það ekki venjulega) Eða algjörlega sér útgáfa notuð í embedded tölvur, Pascal arcitecture, 768 Cuda cores (ef chip er í lagi). Þar sem þú ættir að fá 768:48:32 en ert að fá ?:36:32 sem þýðir að það er slökkt á töluvert af virkni kubbsins.

https://web.archive.org/web/20180316214 ... s/laptops/

Ætti að líta svona út sem production vara.

PCGHX-Promo-Review-KFA-GTX-1050-Ti-OC-LP_010-pcgh.jpg
PCGHX-Promo-Review-KFA-GTX-1050-Ti-OC-LP_010-pcgh.jpg (154.23 KiB) Skoðað 388 sinnum

Re: Vesen með gpu drivers

Sent: Fös 13. Sep 2024 10:52
af worghal
litli_b skrifaði:Ég tók fartölvuna í sundur. Held að þetta sé gtx 1050 ti eitthvað? Chatgpt sagði mér það allavega þegar ég sýndi því þessa mynd, og google leit er samálla. Þarf bara að finna út úr því af hverju engir drivers vilja downloadast.

það er mjög algengt að skjákort frá kína séu lower tier kort flöshuð með custom bios svo þau sýna annað kort.
dæmi hefur verið að fólk kaupi 3090 á kosta kjörum á ali/temu og kemur svo í ljós að þetta er bara flashed 770gtx eða eitthvað álíka með 3090 cooler :thumbsd