Síða 1 af 1

Skjáarmar fyrir stacked monitor setup

Sent: Mið 11. Sep 2024 10:28
af Black
Mig langar að breyta aðeins hjá mér og hafa ultrawide skjá og auka 27" skjáinn minn á armi.
Einhver með reynslu af eins setupi og getur mælt með skjáarm fyrir þetta ?

ultrawide skjárinn er 8.5kg án stands
27" skjárinn er 1.5kg

Mynd

Sé að VitaXL eiga það sem ég er að leita af fyrir rosalega lága upphæð, spurning hvort að maður taki sénsinn á því



https://is.vidaxl.is/e/vidaxl-tviskiptu ... 16450.html

Mynd

Re: Skjáarmar fyrir stacked monitor setup

Sent: Fim 12. Sep 2024 08:50
af Black
Ég pantaði þessa festingu frá Vidaxl
Leyfi ykkur að fylgjast með hvort ég treysti henni fyrir þessu. :happy

Re: Skjáarmar fyrir stacked monitor setup

Sent: Mið 02. Okt 2024 21:34
af Black
Jæa.. þetta skilaði sér loksins

leit rosalega vel út þangað til ég setti ultrawide skjáinn á arminn :hmm
festingin heldur ekki 8.5kg skjá
bæði þá er svo mikið slag í lóðrétta boltanum sem er fyrir snúnings færsluna til hliðar að hann hallar töluvert fram
og svo er ekki nógu mikið hald í snúningsfærsluni til að halla skjánum svo hann lekur bara fram.

Ég tók og boraði út boltan og setti sverari bolta og herti þetta alveg í drep. Þetta "heldur" en ég treysti þessu ekki.
svo má varla koma við skjáinn og þá er hann byrjaðu að halla til hliðar eða snúast :lol:

Þannig að þessi festing verður bara notuð í einhvað annað og ég fer aftur í það mission að finna festingu sem þolir þetta.

1000016573.jpg
1000016573.jpg (741.74 KiB) Skoðað 760 sinnum

1000016578.jpg
1000016578.jpg (537.76 KiB) Skoðað 760 sinnum

1000016580.jpg
1000016580.jpg (283.96 KiB) Skoðað 760 sinnum

1000016584.jpg
1000016584.jpg (372.15 KiB) Skoðað 760 sinnum

111.jpg
111.jpg (979.46 KiB) Skoðað 760 sinnum



Ef ég kem síðan til með að nota þessa festingu þá þarf ég að bora út gengjurnar og skipta boltanum út fyrir lengri bolta og ró og herða þetta svo að hann sé ekki á hreyfingu.
og trúlega punktsjóða festinguna þar sem græni hringurinn er. =D>
festing.png
festing.png (813.55 KiB) Skoðað 740 sinnum

Re: Skjáarmar fyrir stacked monitor setup

Sent: Mið 02. Okt 2024 22:29
af Frussi
Geggjað að fá svona review, var einmitt að spá í sama stand

Re: Skjáarmar fyrir stacked monitor setup

Sent: Mið 02. Okt 2024 22:32
af TheAdder
Það er spurning ef þú setur lengri bolta, að lauma gadda skinnu á milli núningsflatanna, eða einhverju álíka.

Re: Skjáarmar fyrir stacked monitor setup

Sent: Fim 03. Okt 2024 22:49
af Black
Jæa náði að breyta festinguni þannig að hún virki :happy
Keypti gaddaskinnur eins og Theadder mælti með hérna fyrir ofan en það var ekki nóg bil til að koma þeim fyrir.
Fór í staðinn meðgrófan sandpappír á "núningsfletina" sem tilta skjánum og það myndaði nóg viðnám þannig að skjárinn hætti að leka fram.

Boraði út gengjurnar fyrir lóðrétta boltan sem er fyrir snúningin á skjánum og setti bolta með ró í staðin.
Herti það svo mjög vel og þá hvarf þetta slag sem var í festinguni og skjárinn helst í réttri stöðu.

Eftir þessar breytingar þá sé ég frammá að nota þessa festingu næstu árin.

Messenger_creation_544A77C7-695E-41EF-9094-90C2EFEE61F1.jpeg
Messenger_creation_544A77C7-695E-41EF-9094-90C2EFEE61F1.jpeg (99.33 KiB) Skoðað 635 sinnum

Messenger_creation_1F7C6BC0-6885-488C-AD3F-D9ED42953075.jpeg
Messenger_creation_1F7C6BC0-6885-488C-AD3F-D9ED42953075.jpeg (117.87 KiB) Skoðað 635 sinnum

Re: Skjáarmar fyrir stacked monitor setup

Sent: Fim 03. Okt 2024 23:12
af Televisionary
Þetta er flott, gaman að sjá svona þræði.

Re: Skjáarmar fyrir stacked monitor setup

Sent: Mán 07. Okt 2024 01:05
af Gunnar
Næs. þetta er flott. hvað er neðri skjárinn stór?

Re: Skjáarmar fyrir stacked monitor setup

Sent: Mán 07. Okt 2024 07:31
af Black
Gunnar skrifaði:Næs. þetta er flott. hvað er neðri skjárinn stór?


45"

https://tolvutek.is/Leikjadeild-Tolvute ... 540.action