Síða 1 af 1

2012 iMac

Sent: Mán 05. Ágú 2024 11:10
af GunnGunn
Sælir vaktarar,

Félagi minn er með 5-6 gamlar iMac vélar frá 2012. Vitið þið hvort það sé einhver markaður fyrir svona og eitthvað vit í að reyna að gera eitthvað við þetta?

Kv Gunngunn

Re: 2012 iMac

Sent: Mán 05. Ágú 2024 11:50
af litli_b
Algjörlega. Ef þær virka er hægt að selja þær. Það er algjörlega einhverjir þarna úti sem eru apple fanatics og eru að leita sér að ódýri tölvu. Settu þær til sölu á spjallinu og bland.is, leyfðu því að liggja þar í einhvern tíma og ef það selst ekki geturu bara gefið þær í burtu eða hent þeim

Re: 2012 iMac

Sent: Mán 05. Ágú 2024 11:54
af TheAdder
Einhverjar hugmyndir um verð?

Re: 2012 iMac

Sent: Mán 05. Ágú 2024 13:36
af Le Drum
Ég væri til í að komast yfir eina. Er hægt að sjá specs?

Re: 2012 iMac

Sent: Mán 05. Ágú 2024 13:53
af litli_b
TheAdder skrifaði:Einhverjar hugmyndir um verð?

Fer eftir stöðu, speccum og markað. Leitaði upp tölvuna, ég myndi persónulega segja 12-22þ. Mögulega einhverjar fjölskyldur sem eru að leita sér að ódýri tölvu, þetta gæti fyllt það hlutverk.

Re: 2012 iMac

Sent: Mán 05. Ágú 2024 23:23
af AntiTrust
Ef þú hendir inn spekkum og skjástærð þá getum við vaktararnir örugglega hjálpað til með grófa verðlagningu - eins og @litli_b segir, það er eiginlega alltaf markaður fyrir Apple vörur, sama hvað það er.

Re: 2012 iMac

Sent: Mán 05. Ágú 2024 23:53
af Nördaklessa
Er með eina 2013. 27" með i5 4670 quad core með 32gb ram. hvað er sú að fara á í dag?

Re: 2012 iMac

Sent: Þri 06. Ágú 2024 00:27
af Harold And Kumar
Nördaklessa skrifaði:Er með eina 2013. 27" með i5 4670 quad core með 32gb ram. hvað er sú að fara á í dag?

Frekar gömul & ekki lengur með update síðan 2019-20, nitt besta gísk væri 25.000kr max, en ég er enginn sérfræðingur í Mac tölvum :)

Re: 2012 iMac

Sent: Þri 06. Ágú 2024 13:40
af Nördaklessa
Harold And Kumar skrifaði:
Nördaklessa skrifaði:Er með eina 2013. 27" með i5 4670 quad core með 32gb ram. hvað er sú að fara á í dag?

Frekar gömul & ekki lengur með update síðan 2019-20, nitt besta gísk væri 25.000kr max, en ég er enginn sérfræðingur í Mac tölvum :)


úff, það er ekki mikið :face

Re: 2012 iMac

Sent: Þri 06. Ágú 2024 17:45
af ABss
Þetta er mögulega nýtilegt sem heimilsvél með Linux stýrikerfi.

Re: 2012 iMac

Sent: Þri 06. Ágú 2024 18:00
af asgeirj
Nördaklessa skrifaði:úff, það er ekki mikið :face


Neibb, sárt en satt.
Gallinn við þessa iMac er að skjárinn með 2560x1440 (108PPI) á ekki eftir að líta vel út á nýju osx sem er gerir ráð fyrir nýrri hidpi/retina skjá. Retina/5K modelin hafa haldið sér betur í verði.

Kostur við þessa eldri iMac er að þú getur notað hana sem auka display í target mode fyrir aðra vél...eða rifið innvolsið úr og sett $30 display controller í og þá ertu kominn með skjá með mörgum inngöngum fyrir klink. Hægt að troða RPi eða minipc a bakvið, hef sett mac mini M1 móðurborð í 2017 27” 5K sem kom fáránlega vel út

En já, myndi skjóta á <25k