Síða 1 af 1

Logitech G Pro X TKL lyklaborð - Rafhlöðu ending með öll ljós slökkt?

Sent: Lau 22. Jún 2024 16:20
af Runar
Sælir

Fann ekkert um þetta á netinu, bara þetta sem Logitech auglýsa, upp að 50klst endingu með ljósin á 100% styrkleika. Ekkert um endinguna á hleðslunni með ljósin á 0% styrkleika, leitaði á Logitech síðum, google, reviews og reddit, fann ekkert um það.

Væri vel þegið, ef einhver sem á svona lyklaborð, gæti skoðað hvað Logitech G Hub forritið segir um endinguna á hleðslunni þegar hún er í 100% og með RGB'ið off. Takk!

Re: Logitech G Pro X TKL lyklaborð - Rafhlöðu ending með öll ljós slökkt?

Sent: Lau 22. Jún 2024 21:51
af jonsig
RGB ruglið er til að selja þér vöruna ,síðan þarf að slökkva á þessu til að endingin sé almennileg.

Mátt alveg búast við öðrum 50klst+ með þetta slökkt.

Re: Logitech G Pro X TKL lyklaborð - Rafhlöðu ending með öll ljós slökkt?

Sent: Sun 23. Jún 2024 07:47
af Runar
Ég persónulega þoli ekki allt þetta RGB dæmi, vill helst taka sem minnst eftir tölvunni, bæði með hljóð úr henni og lýsingu!

En annars spyr ég um þessa rafhlöðu endingu því ég er með Logitech G915 TKL, það er auglýst með upp að 40klst rafhlöðu endingu, en það fer nefnilega yfir 1000klst!!!! með RGB'ið off. Ákkúrat núna t.d. þá dugar 79% hleðsla í ca. 888klst samkvæmt Logitech G Hub, vill vita hvort það sé svipað með Logitech G Pro X TKL lyklaborðið.

Re: Logitech G Pro X TKL lyklaborð - Rafhlöðu ending með öll ljós slökkt?

Sent: Mið 26. Jún 2024 17:07
af Runar
Einhver? Þarf ekki að vera við 100% hleðslu.. nánast hvaða % og ending sem er ætti að segja manni nóg..

Re: Logitech G Pro X TKL lyklaborð - Rafhlöðu ending með öll ljós slökkt?

Sent: Mið 26. Jún 2024 19:57
af axyne
Ég er með Logitech MX key í vinnunni, hef backlight alltaf slökkt.
Ég held ég sé að að hlaða 3-4 sinnum á ári...
Fyndist skrítið ef þetta lyklaborð sem þú ert að skoða næði ekki einhverju sambærilegu án RGB ljósashows.

Re: Logitech G Pro X TKL lyklaborð - Rafhlöðu ending með öll ljós slökkt?

Sent: Mið 26. Jún 2024 22:33
af braudrist
Er að nota Logitech MX Master í vinnunni. Batteríið endist í ca. 10 mánuði án baklýsingu. Reyndar bara hvít baklýsing — RGB lýsing drainar örugglega batteríið fljótar.

Re: Logitech G Pro X TKL lyklaborð - Rafhlöðu ending með öll ljós slökkt?

Sent: Fös 28. Jún 2024 16:35
af Runar
En það getur verið svo rosalega misjafnt með þessi svokölluðu gaming lyklaborð, mörg sem fara úr 40-50klst með 100% lýsingu í 100-250klst með 0% lýsingu, vill vita hvort þetta tiltekna lyklaborð sé eitt af þessum sem fer í 500+ klst, það er erfitt að fara í minna þegar maður er vanur að vera með 1000+ klst á einni hleðslu! :)