Síða 1 af 1

Endalok innbyggðra DVD, blu-ray drifa?

Sent: Mið 05. Jún 2024 03:36
af jonfr1900
Ég ákvað eftir umhugsun hjá mér að fjarlægja innbyggða dvd drifið sem ég hef verið með. Þar sem ég þarf að gera pláss fyrir nýjum hörðum disk í framtíðinni. Þetta fékk mig til þess að hugsa um að líklega sé tími innbyggðra dvd drifa og blu-ray drifa kominn, ef hann hann er ekki nú þegar byrjaður. Sérstaklega þar sem annar tölvukassinn hjá mér er ekki einu sinni með pláss fyrir dvd drif eða nokkurt annað drif en harða diska og varla það. Þar sem m2 ssd diskar á móðurborðin eru að skipta út venjulegum hörðum diskum að mestu leiti, nema kannski stærstu diskunum (6TB og stærra).

Það verður söknuður af dvd drifunum með tímanum hjá mér.

Re: Endalok innbyggðra DVD, blu-ray drifa?

Sent: Mið 05. Jún 2024 06:30
af ABss
Sá tími kom fyrir um 15 árum hjá mér.

Re: Endalok innbyggðra DVD, blu-ray drifa?

Sent: Mið 05. Jún 2024 07:08
af rostungurinn77
Já ok

Ertu að spá í að uppfæra úr Windows 95 í 98 samhliða þessum breytingum?

Re: Endalok innbyggðra DVD, blu-ray drifa?

Sent: Mið 05. Jún 2024 10:39
af rapport
En já, var með Thermaltake Kandalf og með nóg pláss og þetta var bara alltaf í kassanum ótengt en svo fór þetta í geymslukassann...

Svo seinast þegar ég þurfti á þessu að halda þá kom í ljós að þetta var IDE drif en sem betur fer átti ég IDE/SATA í USB plug síðan god knows when.

Re: Endalok innbyggðra DVD, blu-ray drifa?

Sent: Mið 05. Jún 2024 11:04
af Jón Ragnar
Ertu búinn að uppfæra í 56k módem líka? :D

Re: Endalok innbyggðra DVD, blu-ray drifa?

Sent: Mið 05. Jún 2024 11:10
af hagur
Ég hef ekki séð optical drif í tölvu í a.m.k 1ö ár. Þessi tími er sko fyrir lööööööngu kominn.

Re: Endalok innbyggðra DVD, blu-ray drifa?

Sent: Mið 05. Jún 2024 11:25
af Hausinn
Ó nei hvernig mun ég brenna diska fyrir PS1 tölvuna mína núna?

Re: Endalok innbyggðra DVD, blu-ray drifa?

Sent: Mið 05. Jún 2024 18:10
af jonfr1900
rostungurinn77 skrifaði:Já ok

Ertu að spá í að uppfæra úr Windows 95 í 98 samhliða þessum breytingum?


Þú segir nokkuð.

Screenshot from 2024-06-05 18-10-12.png
Screenshot from 2024-06-05 18-10-12.png (15 KiB) Skoðað 2273 sinnum

Re: Endalok innbyggðra DVD, blu-ray drifa?

Sent: Mið 05. Jún 2024 18:17
af jonfr1900
Jón Ragnar skrifaði:Ertu búinn að uppfæra í 56k módem líka? :D


Það er fyrir löngu búið að leggja niður POTS kerfi allstaðar og afleggja modem hjá öllum. Ég á samt modem í kassa einhverstaðar. Það líklega virkar ef það væri einhver búnaður á hinum endanum sem gæti talað við það.

Re: Endalok innbyggðra DVD, blu-ray drifa?

Sent: Mið 05. Jún 2024 18:18
af jonfr1900
rapport skrifaði:En já, var með Thermaltake Kandalf og með nóg pláss og þetta var bara alltaf í kassanum ótengt en svo fór þetta í geymslukassann...

Svo seinast þegar ég þurfti á þessu að halda þá kom í ljós að þetta var IDE drif en sem betur fer átti ég IDE/SATA í USB plug síðan god knows when.


Það er algjörlega nauðsynlegt að eiga gögn í formi sem er eingöngu hægt að lesa. Þannig er hægt að tryggja öryggi þessara gagna sem þarf að geyma með þessum hætti. Þó eru DVD diskar fyrir löngu síðan orðnir of litlir í þetta verkefni í mörgum tilfellum.