Síða 1 af 1

Hvað á ég að fá mér ?

Sent: Mán 16. Jan 2006 20:49
af typer
Sælir ég er mjög févana, semsagt; ég ætla ekki að eyða mikið í þetta...
Okey við erum að tala um sirca 20-27þ krónur...

Mig vantar Móðurborð, örgjörva, Viftu, Innraminni (má sleppa en helst)

Það sem ég geri mest er að vinna með Photoshop og heimasíðuhönnun...
Spila svolítið bílaleiki en ekkert svona quake eða cs steypa !

Mig langar mest í Intel Pentium, er með AMD en ég hef ekkert mikið álit á þeim.

------ Fyrsta sem mig datt í hug:

Móðurborð: MSI 915P Combo FR - 7.950 kr-
Örgjafi: Intel Celeron D-340 2.93GHz - 8.950kr-
Vifta: Coolmaster 775 / 2200rpm - 1.950 kr-
Vinnsluminni: Corsair ValueSelect 512MB DDR400 - 4.450 kr-
Einhver 24þ kall

----
Svo líst mér ágætlega á þessa uppfærslu hjá þeim sem er reyndar AMD með ágætis skjákorti: hérna


Hvað segiði, einhverjir pakkar??

Sent: Mán 16. Jan 2006 22:40
af Rusty
Hví langar þig í Intel?

Sent: Mán 16. Jan 2006 22:44
af MuGGz
skal selja þér AMD64 3000+ s939 örgjörva

http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=9704

hann rústar þessum celeron örgjörva :wink:

Sent: Mán 16. Jan 2006 23:36
af typer
Hmm það væri spurning...

Þá væri það:

MSI RS482M-IL - M-ATX - 10.950kr-
Amd Athlon 64 3000+ (2.0GHz) - 7.000kr-
Corsair ValueSelect 512MB DDR400 - 4.450kr-

Hvernig hljómar svoleiðis pakki ? 23000 kall

Sent: Mán 16. Jan 2006 23:37
af typer
en það er samt svolítill munur,
2.89Ghz -> 2.0Ghz
intel -> amd
32 -> 64
nýtt -> notað

þannig það er spurning sko...

Sent: Mán 16. Jan 2006 23:39
af Veit Ekki
typer skrifaði:en það er samt svolítill munur,
2.89Ghz -> 2.0Ghz
intel -> amd
32 -> 64
nýtt -> notað

þannig það er spurning sko...


AMD örgjörvi sem er 3000+ 64 og 2Ghz er sambærilegur við 3Ghz Intel örgjörva og mun betri en 3Ghz Celeron örgjörvi. Ég myndi frekar taka þessa AMD uppfærslu, kaupa þá örgjörvan notaðan og svo hitt sem þú nefndir.

Sent: Þri 17. Jan 2006 11:27
af typer
nújæja, maður sér það líka á verðinu... ætla að athuga þetta.. :)

spjalla við þig á l2c bara :)

Sent: Þri 17. Jan 2006 12:24
af MuGGz
búin að senda þér PM á l2c :wink: