Sælir, mig vantar tæknilega aðstoð með dæmi sem ég hef aldrei séð áður. Ég er með litla Optiplex tölvu sem ég nota fyrir plex, sonarr, radarr osfrv. og við tölvuna er ég með utanáliggjandi harðan disk (icybox) sem geymir allt efnið en svo allt í einu gerist það að þrjár möppur hreinlega hverfa. Það eru möppurnar TV, Movies og Other, downloads og annað varð eftir, sem er í sömu yfirmöppunni. Það sem skrítið er, er að það er bara ca 2TB laust en diskurinn er 4TB og er svo gott sem tómur eftir þetta atriði.
Hér er það sem ég er búinn að prófa til að endurheimta möppuna:
Restart, indexa harða diskinn, skoða recycle bin, skoða hidden files, ath hvort windows security hafi eytt þessu en ekkert í protection history, tengja harða diskinn við aðra tölvu, error checking. Það síðasta sem ég prófaði að gera vara að sækja data recovery forrit, það finnur 50GB af rar fælum og fleira sem sabnzbd eyðir eftir notkun en ekki eina einustu kvikmynd.
Hvað gæti hafa gerst?
2TB media mappa hvarf af hörðum disk
-
Höfundur - Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 308
- Skráði sig: Sun 26. Sep 2010 21:24
- Reputation: 7
- Staða: Ótengdur
Re: 2TB media mappa hvarf af hörðum disk
Update - allir fælarnir fundnir og mér tókst að endurheimta þá. Þeir voru í falinnni möppu sem heitir found.000 og ég gat einfaldlega fært þá á upprunalega stað. En nú langar mig að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur. Hvað gæti hafa gerst og hvernig get ég komið í veg fyrir að þetta komi fyrir aftur?
- Viðhengi
-
- 1.PNG (28.51 KiB) Skoðað 2334 sinnum
-
- 2.PNG (22.89 KiB) Skoðað 2334 sinnum
Re: 2TB media mappa hvarf af hörðum disk
Hef aldrei heyrt um svona en lærði af biturri reynslu að nota öryggisafritun, eitthvað eins og backblaze.
-
- Vaktari
- Póstar: 2796
- Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
- Reputation: 349
- Staðsetning: Danmark
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: 2TB media mappa hvarf af hörðum disk
sxf skrifaði:Update - allir fælarnir fundnir og mér tókst að endurheimta þá. Þeir voru í falinnni möppu sem heitir found.000 og ég gat einfaldlega fært þá á upprunalega stað. En nú langar mig að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur. Hvað gæti hafa gerst og hvernig get ég komið í veg fyrir að þetta komi fyrir aftur?
Þetta bendir til þess að harði diskurinn sé að bila og indexið hafi hreinlega spillst og því hafi allt horfið.
-
- Vaktari
- Póstar: 2347
- Skráði sig: Fös 08. Ágú 2008 00:11
- Reputation: 59
- Staðsetning: 105 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: 2TB media mappa hvarf af hörðum disk
eftir stutta google leit fann ég þetta
FOUND.000 is a system folder used to store fragmented files recovered by CHKDSK.
https://www.minitool.com/news/found-000.html
vonandi gefur þetta eitthvað ljós hvað þetta er.
FOUND.000 is a system folder used to store fragmented files recovered by CHKDSK.
https://www.minitool.com/news/found-000.html
vonandi gefur þetta eitthvað ljós hvað þetta er.
Re: 2TB media mappa hvarf af hörðum disk
jonfr1900 skrifaði:sxf skrifaði:Update - allir fælarnir fundnir og mér tókst að endurheimta þá. Þeir voru í falinnni möppu sem heitir found.000 og ég gat einfaldlega fært þá á upprunalega stað. En nú langar mig að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur. Hvað gæti hafa gerst og hvernig get ég komið í veg fyrir að þetta komi fyrir aftur?
Þetta bendir til þess að harði diskurinn sé að bila og indexið hafi hreinlega spillst og því hafi allt horfið.
Sammála diskurinn er að byrja að bila hef lent í þessu áður með harða disk. Myndi skipta út strax ef þú vilt ekki missa gögnin.
Fractal Define S, Asus X99-S, Xeon 1660 V3 @4.4ghz, 128gb ecc Rdimm @2666 cl13, AORUS 3080 XTREME WATERFORCE WB, Corsair RM1000x, Samsung NVME SSD 950 pro 512Gb +500Gb og 1tb sata ssd