Síða 1 af 1

tengja 2 skjái

Sent: Þri 10. Jan 2006 19:38
af Vortex
Er með ATI X700SE PCI-Express 256MB. og mér skilst að það geti verið mismunandi hvernig maður stillir til að vera með auka skjá og TV svo ég er að spá ef einnhver hérna vissi hvernig maður stillir til að hafa 2 skjái og hvernig maður getur breytt því hvaða skjái maður vill hafa sem aðalskjá ?

Sent: Mið 11. Jan 2006 17:55
af Vortex
veit þetta enginn ?
Ég var nefnilega að spá í að kaupa mér snúru til að tengja við TV

Sent: Mið 11. Jan 2006 19:04
af Vilezhout
Er næstum því algjörlega viss um að þú getir ekki haft nema tvo skjái þ.e. annaðhvort 2 skjái eða skjá og sjónvarp

finnur þetta á desktop

hægri klikkar og properties þar

settings

Sent: Mið 11. Jan 2006 19:27
af Vortex
Vilezhout skrifaði:Er næstum því algjörlega viss um að þú getir ekki haft nema tvo skjái þ.e. annaðhvort 2 skjái eða skjá og sjónvarp

finnur þetta á desktop

hægri klikkar og properties þar

settings


Ég veit hvar það er en ég veit ekki alveg hvernig maður stillir þetta. t.d. eins og hvernig ég geti fengið TV til að verða aðalskjár, Mér vantar bara að geta tengt tölvuna við TV til að horfa á mynd eða eitthvað álíka

Sent: Fim 12. Jan 2006 09:36
af Mazi!
ertu með tv out???
allavegana ef þú ert með tv out er þetta ekkert mál

Sent: Fim 12. Jan 2006 13:57
af Vortex
maro skrifaði:ertu með tv out???
allavegana ef þú ert með tv out er þetta ekkert mál


ertu þá að meina TV-out tengi aftaná tölvuni þá já, en ég kann ekki alveg að stilla þetta alemnnilega, eða ég held það allavega. Á eftir að kaupa snúruna reyndar :?

Sent: Fim 12. Jan 2006 14:54
af mjamja
hægri klikkar á desktop->properties->settings->advanced->displays->kveikir á tv takkanum og gerir það sem aðalskjá

Sent: Fim 12. Jan 2006 15:02
af gnarr
afhverju að gera það sem aðalskjá? Miklu þægilegra að hafa bara overlay stillt á theater mode.

Sent: Mán 16. Jan 2006 16:35
af Vortex
ég vissi nú ekki að þetta væri sonna auðvelt að tengja þetta, en núna er ég komin með mynd á skjáinn en myndinn er svarthvít , hvað get ég gert til að fá lit á myndina ? :(

Sent: Mán 16. Jan 2006 16:55
af Vortex
búinn að fynna þetta út :D

Sent: Mán 16. Jan 2006 17:07
af @Arinn@
Góður =D>

Sent: Mán 16. Jan 2006 18:21
af Rusty
Hvað gerðirðu?

Sent: Mán 16. Jan 2006 20:29
af Vortex
Rusty skrifaði:Hvað gerðirðu?


ég tók bara snúru eins og sonna skarttengi nema með sonna 3 tengjum, og tengdi það við gula tengið í sjónvarpinu og svo í tölvuna.