Síða 1 af 1
Hvað þarf ég að breyta.
Sent: Fim 13. Júl 2023 02:45
af Dizzydwarf
góða kvöldið.
Ég er með fínustu tölvu sem ætti að ráða við allt sem ég set fyrir henni. en ég hef verið að fá mikið af Fps droppi í leikjum og er að upplifa það að ég get ekki spilað og horft á sama tíma.
Er me I9-9900k - RTX 3070 Ti - 32Gb RAM og nýjar viftur, nýja kælingu.
Ég skil að það tekur mikið af kortinu að vera með 3 skjái en ég er með tvo 27" skjái og einn 34" skjá.
en bara opna stream á 34" skjáinum notar 75% að GPU hjá mér. spila mikið CSGO og fæ núna alveg slatta af fps droppi eða bara basically frís leikurinn í eina sek þegar ég spila.
er málið bara fá sér betra skjákort ?
Re: Hvað þarf ég að breyta.
Sent: Fim 13. Júl 2023 08:43
af Drilli
Myndi segja nær öruggt að þetta sé skjákortið, það er ekki nægilega gott til að halda uppi allri þessari virkni hjá þér. Tala nú ekki um ef eitthvað af þessum skjáum eru 1440p
Re: Hvað þarf ég að breyta.
Sent: Fim 13. Júl 2023 09:28
af Baldurmar
Hljómar nú eitthvað undarlega ef að stream er að nota 75% af GPU á 3070ti !
Þó þú værir að streama 4k ætti það ekki að vera svona álag.
Að CS:GO sé að frjósa segir líka að það sé eitthvað að, ættir aldrei að fara í 0 fps á þessu korti.
Er hitinn á kortinu kominn eitthvað hátt ?
Re: Hvað þarf ég að breyta.
Sent: Fim 13. Júl 2023 11:56
af gnarr
Drilli skrifaði:Myndi segja nær öruggt að þetta sé skjákortið, það er ekki nægilega gott til að halda uppi allri þessari virkni hjá þér. Tala nú ekki um ef eitthvað af þessum skjáum eru 1440p
Ég myndi segja það nær öruggt að þetta sé bull sem Drilli er að segja. 3070ti er þrusu öflugt kort og ætti að vera miklu meira en nóg. Fjöldi skjáa hefur sama og engin áhrif á afköst skjákorta.
Ef skjákortið sjálft er ekki bara hreinlega bilað, þá þykir mér líklegast að þetta sé einhverskonar drivera vandamál.
Prófaðu að setja upp
SDIO og láttu það um að uppfæra alla drivera á vélinni þinni.
Sæktiu svo
nýjustu nvidia driverana og
DDU, startaðu í safe mode og hreinsaðu út display driverana sem þú ert með núna. Það eru nákvæmar leiðbeiningar á síðunni sem ég mæli með að fara eftir.
Settu svo upp nýju nvidia driverana áður en þú kveikir aftur á netinu.
Byrjaðu á að prófa þetta og láttu okkur vita hvernig það fer.
Re: Hvað þarf ég að breyta.
Sent: Fim 13. Júl 2023 12:44
af Skrekkur
Vantar frekari upplýsingar. Mjög ólíklegt að þetta sé skjákortið.
Ert þú að keyra mikið í bakgrunni? Eins og tabs, strauma o.s.frv? Athugaðu hvað er mikið laust vinnsluminni í task manager þegar CS go er að hökta svona.
Ertu svo ekki örugglega með stýrikerfið og leikinn á Nvme-SSD disk? Eða SSD hið minnsta, það gæti verið að valda þessu. Einnig mögulega ofhitnun á örgjörva eða skjákorti.
Auka skjáir geta étið upp skjáminni, sama með öll opin forrit og tabs. Ef þú ert að klára skjáminnið gæti það lýst sér í svona hökkti.
Skrifaði einusinni stutta grein um þetta málefni sem er enn frekar gild. Gætir rennt yfir hana líka
https://www.skrekkur.com/pc-game-perfor ... ade-guide/
Re: Hvað þarf ég að breyta.
Sent: Fim 13. Júl 2023 13:02
af gunni91
þetta er nokkuð þekkt, að vera með marga mismunandi týpur af skjáum tengt við sama skjákortið, með mismunandi Hz support og jafnvel mismunandi upplausn sem truflar suma leiki við að multitaska. Þá hef ég heyrt þetta nokkrum sinnum sérstaklega með CS:GO.
það sem ég myndi mæla með að pruf:
Eru þetta tveir eins 27" skjáir? Prufaðu þá að vera bara með þá tengda, ekki 34". Passa að sömu Hz sé notuð í display settings og sama upplausn.
Ef vandamálið er ekki til staðar þá, prufaðu að tengja þriðja skjáinn við og hafa sömu upplausn ( og sömu Hz ). Efast samt um að 34" bjóði uppá sömu Hz ef þetta eru 27" gaming skjáir....
Ef vandamálið kemur upp með þriðja 34" skjáinn, þá eru þetta bara því miður hardware conflictar sem er ótrúlega erfitt að leysa
EDIT, kemstu upp með að nota Display port fyrir þá alla? og passa uppá að það séu 1.4+ kaplar, þá er hægt að strika það af tékklistanum.
Re: Hvað þarf ég að breyta.
Sent: Fim 13. Júl 2023 14:53
af Drilli
My bad! Takk fyrir að leiðrétta mig.
Re: Hvað þarf ég að breyta.
Sent: Fim 13. Júl 2023 19:50
af Dizzydwarf
Baldurmar skrifaði:Hljómar nú eitthvað undarlega ef að stream er að nota 75% af GPU á 3070ti !
Þó þú værir að streama 4k ætti það ekki að vera svona álag.
Að CS:GO sé að frjósa segir líka að það sé eitthvað að, ættir aldrei að fara í 0 fps á þessu korti.
Er hitinn á kortinu kominn eitthvað hátt ?
nei stable myndi ég segja í, 40 gráður þegar ég er ekki að gera neitt fer upp í 78 sirka við spilun
Re: Hvað þarf ég að breyta.
Sent: Fim 13. Júl 2023 19:52
af Dizzydwarf
Skrekkur skrifaði:Vantar frekari upplýsingar. Mjög ólíklegt að þetta sé skjákortið.
Ert þú að keyra mikið í bakgrunni? Eins og tabs, strauma o.s.frv? Athugaðu hvað er mikið laust vinnsluminni í task manager þegar CS go er að hökta svona.
Ertu svo ekki örugglega með stýrikerfið og leikinn á Nvme-SSD disk? Eða SSD hið minnsta, það gæti verið að valda þessu. Einnig mögulega ofhitnun á örgjörva eða skjákorti.
Auka skjáir geta étið upp skjáminni, sama með öll opin forrit og tabs. Ef þú ert að klára skjáminnið gæti það lýst sér í svona hökkti.
Skrifaði einusinni stutta grein um þetta málefni sem er enn frekar gild. Gætir rennt yfir hana líka
https://www.skrekkur.com/pc-game-perfor ... ade-guide/
nei er alls ekki að keyra mikið í bakrunni, erum að tala um kannski discord og einn glugga a opera gx, vinnsluminnið ætti að vera meira en nóg þegar ég spila en skal prófa spila aðaeins ogfylgjast með hvað spækar upp þegar það frýs
Re: Hvað þarf ég að breyta.
Sent: Fös 14. Júl 2023 09:51
af Dizzydwarf
gnarr skrifaði:Drilli skrifaði:Myndi segja nær öruggt að þetta sé skjákortið, það er ekki nægilega gott til að halda uppi allri þessari virkni hjá þér. Tala nú ekki um ef eitthvað af þessum skjáum eru 1440p
Ég myndi segja það nær öruggt að þetta sé bull sem Drilli er að segja. 3070ti er þrusu öflugt kort og ætti að vera miklu meira en nóg. Fjöldi skjáa hefur sama og engin áhrif á afköst skjákorta.
Ef skjákortið sjálft er ekki bara hreinlega bilað, þá þykir mér líklegast að þetta sé einhverskonar drivera vandamál.
Prófaðu að setja upp
SDIO og láttu það um að uppfæra alla drivera á vélinni þinni.
Sæktiu svo
nýjustu nvidia driverana og
DDU, startaðu í safe mode og hreinsaðu út display driverana sem þú ert með núna. Það eru nákvæmar leiðbeiningar á síðunni sem ég mæli með að fara eftir.
Settu svo upp nýju nvidia driverana áður en þú kveikir aftur á netinu.
Byrjaðu á að prófa þetta og láttu okkur vita hvernig það fer.
ég held að þetta hafi bara virkað, átti allavegana betri session i gær! takk fyrir þetta
Re: Hvað þarf ég að breyta.
Sent: Fös 14. Júl 2023 09:58
af gnarr
Dizzydwarf skrifaði:gnarr skrifaði:Drilli skrifaði:Myndi segja nær öruggt að þetta sé skjákortið, það er ekki nægilega gott til að halda uppi allri þessari virkni hjá þér. Tala nú ekki um ef eitthvað af þessum skjáum eru 1440p
Ég myndi segja það nær öruggt að þetta sé bull sem Drilli er að segja. 3070ti er þrusu öflugt kort og ætti að vera miklu meira en nóg. Fjöldi skjáa hefur sama og engin áhrif á afköst skjákorta.
Ef skjákortið sjálft er ekki bara hreinlega bilað, þá þykir mér líklegast að þetta sé einhverskonar drivera vandamál.
Prófaðu að setja upp
SDIO og láttu það um að uppfæra alla drivera á vélinni þinni.
Sæktiu svo
nýjustu nvidia driverana og
DDU, startaðu í safe mode og hreinsaðu út display driverana sem þú ert með núna. Það eru nákvæmar leiðbeiningar á síðunni sem ég mæli með að fara eftir.
Settu svo upp nýju nvidia driverana áður en þú kveikir aftur á netinu.
Byrjaðu á að prófa þetta og láttu okkur vita hvernig það fer.
ég held að þetta hafi bara virkað, átti allavegana betri session i gær! takk fyrir þetta
Gott að heyra!
Btw, heitirðu Dwarff í CS ?
Re: Hvað þarf ég að breyta.
Sent: Þri 18. Júl 2023 19:59
af Dizzydwarf
gnarr skrifaði:Dizzydwarf skrifaði:gnarr skrifaði:Drilli skrifaði:Myndi segja nær öruggt að þetta sé skjákortið, það er ekki nægilega gott til að halda uppi allri þessari virkni hjá þér. Tala nú ekki um ef eitthvað af þessum skjáum eru 1440p
Ég myndi segja það nær öruggt að þetta sé bull sem Drilli er að segja. 3070ti er þrusu öflugt kort og ætti að vera miklu meira en nóg. Fjöldi skjáa hefur sama og engin áhrif á afköst skjákorta.
Ef skjákortið sjálft er ekki bara hreinlega bilað, þá þykir mér líklegast að þetta sé einhverskonar drivera vandamál.
Prófaðu að setja upp
SDIO og láttu það um að uppfæra alla drivera á vélinni þinni.
Sæktiu svo
nýjustu nvidia driverana og
DDU, startaðu í safe mode og hreinsaðu út display driverana sem þú ert með núna. Það eru nákvæmar leiðbeiningar á síðunni sem ég mæli með að fara eftir.
Settu svo upp nýju nvidia driverana áður en þú kveikir aftur á netinu.
Byrjaðu á að prófa þetta og láttu okkur vita hvernig það fer.
ég held að þetta hafi bara virkað, átti allavegana betri session i gær! takk fyrir þetta
Gott að heyra!
Btw, heitirðu Dwarff í CS ?
nei því miður það er ekki ég, en hef notað DizzyDwarf stundum
Re: Hvað þarf ég að breyta.
Sent: Þri 18. Júl 2023 21:25
af Gummiv8
Ef ég ætti að gíska á hardware myndi ég skjóta frekar á örgjörvan, Hef verið að hugsa hvort það sé kominn tími til að uppfæra við sem erum með Coffee Lake kynslóðina frá Intel. Nýji I5 er aðeins of góður fyrir verð