Síða 1 af 1

Val milli tveggja skjáa

Sent: Mán 23. Jún 2003 20:47
af Redfish
Eftir leit að skjá í helstu búðum landsins fann ég tvo sem mér lýst best á.

Þeir eru:

19" Hansol (920P) sem fæst í Tölvulistanum á 19.900 kr.

&

19" Samtron (96P) sem fæst í computer.is á 22.040 kr.

Eiginleikar sem ég leitaði að í skjáunum var að hafa þá 19" og á góðu verði.
Ég hef betri tilfinningu fyrir Samtron vegna þess að hann var til í mörgum búðum en ódýrastur í computer.is. En ef þessir skjáir eru alveg ómögulegir og einu skjáirnir sem eitthvað vit í sem eru á kringum 20.000 eru 17" endilega látið mig vita.

Heimasíða framleiðanda Hansol: http://www.hansol-uk.com/framesets/frameset.html
Heimasíða framleiðanda Samtron: http://www.samtron.com/product/96p_spec.html

Re: Val milli tveggja skjáa

Sent: Mán 23. Jún 2003 21:04
af gumol
Redfish skrifaði:Eiginleikar sem ég leitaði að í skjáunum var að hafa þá 19" og á góðu verði.

LOL :lol: :lol:
Svaka eiginleikar :)

Sent: Mán 23. Jún 2003 21:05
af MezzUp
Ég er með Hansol 920D sem að er einsog P nema með flatri túbú. Flöt túba er eina vitið segja gárungarnir.
Hef allavega ekkert nema gott um Hansolinn minn að segja(kostaði 33k um jólin, 26k núna).

Sent: Mán 23. Jún 2003 23:54
af Redfish
Jæja þá, ekki eiginleikar heldur... viðmið?

En átti maður þá að fá sér aðeins dýrari Hansol með flatri túbu?

Sent: Þri 24. Jún 2003 00:10
af gumol
Já anaðhvort viðmið eða kröfur :)

Sent: Þri 24. Jún 2003 01:52
af halanegri
Nauðsynlegt að hafa flatann, MIKLU þægilegra.

Sent: Þri 24. Jún 2003 16:54
af Redfish
En þegar maður er að spila leiki? Er það mikið betra, eða hugsanlega verra?

Sent: Þri 24. Jún 2003 17:49
af Castrate
Aldrei að spara þegar þú ert að kaupa þér skjá safna frekar meiri pening og kaupa þér dýran og góðan skjá sem endist þér þá í mörg mörg ár.

Sent: Þri 24. Jún 2003 19:45
af halanegri
Redfish skrifaði:En þegar maður er að spila leiki? Er það mikið betra, eða hugsanlega verra?


Ef þú ert að tala um hvort það sé betra að vera með flatann í leikjum eða ekki, þá er svarið já. Það er ekki verra á neinn hátt, bara miklu þægilega.

Sent: Fim 26. Jún 2003 00:34
af Redfish
En ef maður ætlar að fá sér flatan, er ekki til annar skjár á hagstæðu verði en Hansol?

Sent: Fim 26. Jún 2003 07:53
af Mal3
Castrate skrifaði:Aldrei að spara þegar þú ert að kaupa þér skjá safna frekar meiri pening og kaupa þér dýran og góðan skjá sem endist þér þá í mörg mörg ár.


Algerlega hárrétt. Nú stefni ég að því að uppfæra og það eina sem mun verða haldið eftir úr gömlu vélinni er lyklaborð, mús, hátalarar og, vitiði hvað? Skjár!

Hvað af ofantöldu haldið þið að hafi kostað mest? Skjárinn. Reyndar ekki með flatri túbu, en þetta er ViewSonic E790 19". Kostaði mig, að mig minnir, yfir 40þ. þegar ég verslaði hann fyrir 2½ ári og mun ekki fá að víkja fyrr en LCD skjáir lækka mun meira í verði eða þá ég get fengið enn stærri skjá á lágum prís.