Síða 1 af 1
Spjall milli tveggja aðila..
Sent: Fös 24. Feb 2023 23:58
af Molfo
Kvöldið..
Ég er búinn að vera að leita eftir einhverju forriti þar sem tveir til fjórir aðilar geta spjallað saman(skrifast eða talað saman).
Flest spjallforrit(messenger og svoleiðis) þvinga mann til að logga inn á einhvern þjón og guð má vita hvað er tekið þaðan út...
Er til eitthvað forrit þar sem tveir til fjórir aðilar geta rætt saman án þess að þurfa að logga sig inn á einhvern central þjón?
Allir notendur notast við Windows þannig að það er must að við getum notað það.
Kannski einhver server sem er hægt að setja upp á einni vél eða eitthvað svoleiðis?
Hvað segja fróðir notendur hérna inni?
Kv.
Molfo
Re: Spjall milli tveggja aðila..
Sent: Lau 25. Feb 2023 01:49
af Baldurmar
Ef að þú vilt hýsa sjálf(ur) spjall, þá var ég einhvern tímann með Rocket-chat
https://www.rocket.chat/install
Re: Spjall milli tveggja aðila..
Sent: Lau 25. Feb 2023 02:58
af Hizzman
búinn að skoða mattermost?
Re: Spjall milli tveggja aðila..
Sent: Lau 25. Feb 2023 07:47
af Moldvarpan
Ég nota aðallega símann í dag til svona samskipta frekar en tölvuna.
Mæli þar með Telegram, þar er hægt að chatta dulkóðað án mikillar fyrirhafnar.
Re: Spjall milli tveggja aðila..
Sent: Lau 25. Feb 2023 10:12
af Hausinn
Var einhver búinn að búa til Discord server fyrir Vaktina? Gæti verið sniðugt ef hægt væri fyrir tvo aðila að hoppa yfir þangað til þess að troubleshoota hitt eða þetta.
Re: Spjall milli tveggja aðila..
Sent: Lau 25. Feb 2023 11:25
af kornelius
Tek undir með þeim sem mælti með Mattermost - hef sett upp slíkan server - svín virkar.
K.
Re: Spjall milli tveggja aðila..
Sent: Lau 25. Feb 2023 16:26
af himminn
Gamla góða IRCið bara?
Re: Spjall milli tveggja aðila..
Sent: Sun 26. Feb 2023 00:53
af kjartann
Molfo skrifaði:Kvöldið..
Ég er búinn að vera að leita eftir einhverju forriti þar sem tveir til fjórir aðilar geta spjallað saman(skrifast eða talað saman).
Flest spjallforrit(messenger og svoleiðis) þvinga mann til að logga inn á einhvern þjón og guð má vita hvað er tekið þaðan út...
Er til eitthvað forrit þar sem tveir til fjórir aðilar geta rætt saman án þess að þurfa að logga sig inn á einhvern central þjón?
Allir notendur notast við Windows þannig að það er must að við getum notað það.
Kannski einhver server sem er hægt að setja upp á einni vél eða eitthvað svoleiðis?
Hvað segja fróðir notendur hérna inni?
Kv.
Molfo
Hljómar eins og Matrix sé ágæt lausn fyrir þig,
https://matrix.org/, ef að þú nennir að fikta þig aðeins áfram við að hýsa þjón. Þá er central þjóninn bara undir þinni stjórn. Ef þú ert frekar að leita að einhverju sem er ekki miðstýrt þá eru bæði Telegram og Signal ágætir valkostir þar sem að báðir kostir dulkóða skilaboðin sem þú sendir og hafa kost á hópspjöllum.
Re: Spjall milli tveggja aðila..
Sent: Sun 26. Feb 2023 02:13
af Molfo
Takk fyrir þessar uppástungur..
Málið er að einn af þessum vinum býr erlendis þannig að sími er ekki alveg auðvelt option..
Svo sé ekki talað um fóbíu hans að logga sig inn eða búa til notanda hjá einhverju fyrirtæki. Hann er t.d ekki á Facebook bara af prinsippinu.. sem ég skil svosem alveg.. algert glæpafyrirtæki..
Hefði helst vilja vera laus við að setja upp server en ef að það sem þarf þá hefði ég helst viljað að það væri frítt.. veit að það eru draumórar.. en ok.
Kv.
Molfo
Re: Spjall milli tveggja aðila..
Sent: Sun 26. Feb 2023 02:51
af Hizzman
Er vinurinn búinn að taka vel í að nota slíka lausn ef hún er self-hosted? Getur verið að hann 'nenni' bara ekki samskiptum?