Síða 1 af 1

Búa til NAS?, tillögur

Sent: Fim 27. Okt 2022 23:33
af beggi702
Nú er ég í hugleiðingum um að búa til budget NAS fyrir hana móðir mína og mig langar að heyra hvað þið hafið að segja.
Hafið þið verið að græja ykkar eigin búnað ?(Kassa, MOBO, PSU og osf)
Eða hafið þið keypt ykkur tilbúið setup eins og Synology, Zyxel eða Qnap ?

Hugmyndin er að reyna hafa þetta eins idiot proof eins og hægt er til að notast við.
Hún er aðalega að geyma myndir og myndbönd ásamt einhverjum excel skjölum, en þetta er samt allt mjög mikils virði fyrir henni.
Engar plex pælingar hérna.

Mig langar að vita hvaða leið þið fóruð, afhverju og hvernig reynslan hefur verið. (pre-build?, stýrikerfi, búnaður)
ég er aðalega að pæla í þessu þar sem hún er núna með nokkra utanáliggjandi flakkara( HDD 8-[ ) sem virðast vera gefa upp öndina.
og mig langar að vera með einskonar RAID til að hafa þessi gögn hennar nokkuð örugg fyrir hana.
Vitaskuld mun ég þurfa að sjá um að viðhalda þessu NAS-i eins og þið vitið sjálfir með ykkar "tækni heftu fjölskyldumeðlimi", og ætti ég að geta fundið út úr flestu svo lengi sem það er ekki non gui based linux dót. :D

Ég á einhvern búnað í að búa til þetta sjálfur en áður en ég dýfi mér í þetta langar mér að heyra hvað þið hafið að segja.

Re: Búa til NAS?, tillögur

Sent: Fös 28. Okt 2022 00:00
af CendenZ

Re: Búa til NAS?, tillögur

Sent: Fös 28. Okt 2022 00:19
af beggi702
CendenZ skrifaði:Hvað þarf mörg tb ?

viewtopic.php?f=11&t=92481&p=765152&hilit=Qnap#p765152


Ekkert svo mörg, en ef ég er að fara að gera þetta þá er smuga að ég nýti mér þetta pláss sjálfur líka :lol:

Re: Búa til NAS?, tillögur

Sent: Fös 28. Okt 2022 07:21
af Hjaltiatla
Idiot proof = Synology Nas (getur stillt á mjög einfaldan máta Sync eða backup á móti Backblaze).
https://www.backblaze.com/blog/how-to-connect-your-synology-nas-to-backblaze-b2-cloud-storage/


Færð meira fyrir peninginn að smíða þitt eigið Nas box bæði Hardware-lega séð og Enterprise fídusalega séð, kostar hins vegar vinnu og fyrirhöfn.

Re: Búa til NAS?, tillögur

Sent: Fös 28. Okt 2022 09:10
af oliuntitled
Ég notaði gamalt hardware (i5-2500k með 32gb ram) sem ég átti liggjandi inní skáp og setti upp með OpenMediaVault, er að keyra á þessu 2x NAS (einn með redundancy og hinn fyrir plex) ásamt plex server, password manager og home assistant

Re: Búa til NAS?, tillögur

Sent: Fös 28. Okt 2022 11:14
af B0b4F3tt
En afhverju ekki að hugsa út í einhverja cloud backup lausn? Þá ertu kominn með örugga geymslu sem er ekki á sama stað og frumgögnin. Og þarft ekki að standa í neinu uppsetngarveseni né að sinna einhverju viðhaldi á þessu í framtíðinni :)

Re: Búa til NAS?, tillögur

Sent: Fös 28. Okt 2022 12:25
af urban
Ef að gögnin skipta mjög miklu máli fyrir hana, þá er að koma upp backup á þau off site, t.d. heima hjá þér eða cloud lausn einhverja.

NAS á sama stað og gögnin verndar engan í altjóni einsog eldsvoða eða innbroti þar sem að tæknibúnaði væri rænt.
bara svona hafa það í huga.

Re: Búa til NAS?, tillögur

Sent: Fös 28. Okt 2022 12:36
af Hjaltiatla
Vill nefna það að Onedrive er ekki klassísk Backup lausn (þótt MS bjóði uppá einhvers konar Version History á skrám).
Ef aðili lendir í Encryption/Ransomware óværu þá er alveg einhverjar líkur á í því ferli sé verið að Re-namea skrár til að komast framhjá Version history.

Re: Búa til NAS?, tillögur

Sent: Fös 28. Okt 2022 16:21
af Hlynzi
Ég er bara með Western Digital Mycloud box, svo stilliru bara hvaða raid þú villt hafa, lét það bara spegla diskana og er með 2 stk. WD RED NAS diska í honum (6TB hvor).
Það er líka ekkert hræðilega dýrt að gera backup á skýjið, google drive e-ð.

Re: Búa til NAS?, tillögur

Sent: Fös 28. Okt 2022 19:34
af playman
Mæli með að skoða backblaze https://www.backblaze.com/cloud-backup.html
Endalaust magn fyrir aðeins 7$ á mánuði, held að það sé no brainer fyrir mikilvæg gögn.

Re: Búa til NAS?, tillögur

Sent: Lau 29. Okt 2022 01:10
af AntiTrust
Ég er búinn að keyra unRAID í mörg ár heima sem primary gagnageymslu, notandi bara tiltölulega low-spec vélbúnað en diska sem eru gerðir fyrir 24/7 keyrslu og mjög sáttur - þægilegt viðmót, docker sem sér um að keyra Sonarr, Radarr, Plex, NZB etc. Aldrei farið í OEM SAN lausn sbr. Synology og tilheyrandi þar sem afkastagetan í vél fyrir sama pening og þessi NAS box eru að kosta er svo umtalsvert meiri.

Annars er alveg vert að skoða Google Drive, það er ennþá hægt að græja unlimited aðgang þar og svo lengi sem þú notar hugbúnað eins og CloudDrive t.d. til að dulkóða efnið þá er það látið í friði - ég er búinn að vera með sér Plex þjón sem notast eingöngu við GDrive í mörg ár og slær nær aldrei feilpúst - en bandvíddin getur orðið vandamál ef þú ætlar að gefa mörgum aðgang að Plex hjá þér.