Síða 1 af 1

Hvernig usb-c muliport á maður að fá sér?

Sent: Mán 03. Okt 2022 23:45
af steini_magg
Ég er að velta því fyrir mér hvernig usb-c muliport á maður að fá sér? Ég sá mikið er ég var í ljósmyndanáminu að margir Apple notendur voru með einhverskonar beinan framlengingu án snúru. Spáði lítið í þessu þar til að ég fékk mér núna litla Samsung fartölvu sem er ekki með usb-a. Ég er hins vegar ekki að finna slíkt nema frá einhverjum vafasömum merkjum. Er það einhver ástæða eða og er því kannski bara best að fá sér með litla snúru?
Set hérna mynd ef þið eruð ekki alveg að skilja hvað ég er að þvaðra.

Re: Hvernig usb-c muliport á maður að fá sér?

Sent: Þri 04. Okt 2022 19:31
af Viktor

Re: Hvernig usb-c muliport á maður að fá sér?

Sent: Þri 04. Okt 2022 23:10
af steini_magg


Þetta er nú sniðugt. Ég reyndar þarf USB-A svo ég get sett kortalesara minn i og svo HDMI þannig ég gæti tengt borðtölvuskjáinn minn í. Síðan fattaði ég fljótlega eftir að ég ýtti á enter að það er augljóslega til USB-C kortalesari. Ég er hins vegar forvitin af hverju það hættu allir að vera með svona port líkt og ég sýndi. Eyðileggur það tölvuna eða? Ég er augljóslega ekki með tölvunarmenntun að neinu tagi :)

Re: Hvernig usb-c muliport á maður að fá sér?

Sent: Mið 05. Okt 2022 09:34
af TheAdder
steini_magg skrifaði:


Þetta er nú sniðugt. Ég reyndar þarf USB-A svo ég get sett kortalesara minn i og svo HDMI þannig ég gæti tengt borðtölvuskjáinn minn í. Síðan fattaði ég fljótlega eftir að ég ýtti á enter að það er augljóslega til USB-C kortalesari. Ég er hins vegar forvitin af hverju það hættu allir að vera með svona port líkt og ég sýndi. Eyðileggur það tölvuna eða? Ég er augljóslega ekki með tölvunarmenntun að neinu tagi :)

Þú getur fengið usb-c dokkur af ýmsum stærðum og gerðum hjá flest öllum tölvubúðum hérna, með mismikið af portum, skoðaðu hvað þín uppáhaldsbúð er með í boði og athugaðu hvort þæu finnur ekki eitthvað sniðugt.
Hérna er til dæmis úrvalið hjá computer.is:
https://www.computer.is/is/products/dokkur-f-fartolvur

Re: Hvernig usb-c muliport á maður að fá sér?

Sent: Mið 05. Okt 2022 11:12
af Viktor
Er ekki hægt að tengja tæki sem nota kort beint við tölvu?

Þ.e.a.s. nota kortalesarann á tækinu sjálfu og sleppa svona dongle rugli?

Re: Hvernig usb-c muliport á maður að fá sér?

Sent: Mið 05. Okt 2022 11:35
af ZiRiuS
Viktor skrifaði:Er ekki hægt að tengja tæki sem nota kort beint við tölvu?

Þ.e.a.s. nota kortalesarann á tækinu sjálfu og sleppa svona dongle rugli?


Er langt síðan þú áttir fartölvu? Flestar tölvur í dag eru með 1-2 USB-C port og kannski 1-2 USB-A port, that's it, það er gert ráð fyrir dokkum eða dongles í dag.

Er nota bene bara að tala um venjulegar fartölvur, ekki "leikja"vélar eða margmiðlunarvélar.

Re: Hvernig usb-c muliport á maður að fá sér?

Sent: Mið 05. Okt 2022 16:58
af Viktor
ZiRiuS skrifaði:
Viktor skrifaði:Er ekki hægt að tengja tæki sem nota kort beint við tölvu?

Þ.e.a.s. nota kortalesarann á tækinu sjálfu og sleppa svona dongle rugli?


Er langt síðan þú áttir fartölvu? Flestar tölvur í dag eru með 1-2 USB-C port og kannski 1-2 USB-A port, that's it, það er gert ráð fyrir dokkum eða dongles í dag.

Er nota bene bara að tala um venjulegar fartölvur, ekki "leikja"vélar eða margmiðlunarvélar.


Nota bara fartölvu, USB-C í skjá svo er restin Bluetooth.

Alltaf þrjú port laus ;)